Tveir heimar
berjast um yfirráð
yfir mér

Ég bý
á landamærunum
og fylgist með

Reglulega
heimsæki ég
annan hvorn staðinn
en sný þó alltaf
að lokum aftur
á landamærin

Þangað til
eitthvað fær mig
til að flytja…