Það er eins og einhverjum hafi
tekist að fanga sólargeislana
og sett þá í brosið þitt.

Það er eins og einhver hafi
náð öllu heimsins sakleysi,
allri heimsins forvitni,
auk tveggja stjarna af himninum
og sett það allt í augun þín.

Þessi sami einhver
er sólin þín,
heimur þinn,
himinn þinn,
móðir þín.