Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Deiglan (0 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Sprengjuglampar yfir Gaza-borg í árásum Ísraelsmanna

Ég vil ekki sjá (7 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Brennimerktu mig á hnakkann með tungu þinni Ristu mér húðflúr með sálarbrotinu sem ég gaf þér Með svita og tárum málaðu mynd á bakið af hjarta þínu Merktu svo verkið fangamarki þínu með blóði En þurrkaðu út fótspor þín áður en þú ferð

Gamlar greinar notanda (5 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Mig langar að vita eitt; hvers vegna er bara hægt að skoða 15 nýjustu greinar notanda? Af hverju er ekki lengur hægt að fletta upp eldri greinum, ekki einu sinni eigin greinum? Finnst þetta frekar hvimleitt. kv. D<br><br><b>Tom Waits skrifaði:</b><br><hr><i>Never trust a man in a blue trench coat, never drive a car when you're dead!</i><br><h

Draumstafaljóð (5 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Í huga mínum felurðu þig drauminn sem mig hefur ekki dreymt hulinn þoku eftirvæntingar og ég bíð eftir þér Mesti ótti minn er að vakna og sjá þig þar enn hulinn þoku eftirsjár drauminn sem mig dreymdi aldrei

Skáldalíf (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég kíki reglulega inn á kaffihús hugans og fæ mér bolla af heitum og koffeinríkum innblæstri Sit þar svo mislengi Eftir góða stund blæs ég orðunum frá mér drep í pennanum á hvítum öskubakka og geri upp

Veiðigyðja í bleiku (5 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Með gríðarlega fjölbreytt vopnabúr heldurðu til veiða. Orðin eru skotfærin. Af natni velur þú rétta vopnið. Með þjálfaðri fimi og fráum augum miðar út skotmarkið. Skýtur svo niður hugsanir mínar og fangar í net ofið úr pennastrikum. Bráðina berð þú síðan á borð fyrir okkur.

Ljóðakvöld (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Malbik og 11 ljóð kynna ljóðakvöld. Miðvikudaginn 16. júní klukkan 21:00. Átta skáld koma fram og hugsanlega blanda einhver þeirra lifandi tónlist við upplesturinn. Kaffihúsið 11 er á Laugavegi 11, á mótum Smiðjustígs. Ljóðakvöldið verður á efri hæðinni. Eftirfarandi skáld lesa: Arnar Sigurðsson Bjarni Bernharður Halldór Marteinsson Hildur Lilliendahl Viggósdóttir Hinrik Þór Svavarsson Hneta Rós Þorbjörnsdóttir Urður Snædal Þórdís Helgadótti

Skot úr myrkri (11 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Eins og stjörnuhrap í dagsbirtu fellur ást mín hljóðlaust og ósýnileg framhjá þé

Country-pæling (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hófadynur hugsananna hugann fælir Tilfinningar að sér tælir tregablúsinn áfram væli

Malbik - vinnuflokkur ljóð.is (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Sælir ljóðaunnendur! Nú hefur Malbik - vinnuflokkur ljóð.is tekið til starfa. Við, flokksmeðlimir, ætlum að reyna okkar besta til að gera ljóðið svolítið meira áberandi í sumar með ýmis konar uppákomum. Uppákomurnar verða fjölbreytilegar í stærð og gerð, það verður hefðbundinn ljóðaupplestur í bland við óvenjulegri atburði. Við munum setja fréttir og tilkynningar um væntanlega viðburði á heimasíðu okkar http://malbik.ljod.is Öll hjálp er vel þegin, hvort sem eru sjálfboðaliðar til að lesa...

Fornleifar (15 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Undir hrjóstrugu landslagi andlits þíns meðal fallinna dropasteina finn ég þornaðan steingerving Leifar horfins tíma og merki um lífið sem va

Heiðarleg ást (8 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ef þú hélst að ég hafi gefið þér hjarta mitt, þá var það misskilningur. Ég afhenti það einungis til láns, til geymslu. Einhvern dag mun ég horfa framhjá sólþurrkuðum tárum alla leið inn í augu þín og biðja þig að skila því - einhvern dag. Bara ekki í dag…

spjöll (10 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ósnortin var laut í skjóli tveggja hlíða sem hönd raskaði

án titils (3 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 12 mánuðum
á sama hátt og titill þessa ljóðs er ég mín eigin þversögn ég afneita sjálfum mér og neita að standa fyrir það sem ég raunverulega e

Nostalgía (9 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Fortíðin er hóra! Gleðikona með tælandi bros, daðursfullt augnaráð og geislandi fegurð (geislandi í myrkrinu) sem stenst þó varla við nánari (mun nánari) skoðun. Hún heillar, þar sem hún hallar sér upp að ljósastaur á horni Draumastrætis og Veruleikagötu og kallar á mig. Hið mjúka blússtef sem fylgir henni er lokkandi. Ég róta um í sálarpyngjunni til að sjá hvað ég get borgað henni í kvöld.

Örlítil pæling varðandi líf mitt og tilgang þess (11 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Ég kom hingað inn hafði eina bók með mér með auðum síðum

Sjálfsvorkunnaróð ljóð (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Stökkva fram úr myrkrinu, sálþyrstar blóðsugur. Galopna andfúlan kjaftinn og sýna ryðgaðar og bitlausar vígtennurnar. Augun eru líflaus og tóm. Reyna að bíta mig en ég finn ekkert nema vandræðalegan pirring. Mig langar til að berjast, mig langar að reka fleyg í brjóst óvættanna og murka úr þeim lífið. En það eina sem ég get gert er að slá pestina af mér eins og flugur. Ég steyti því hnefa til skapara þeirra í hamslausri bræði minni og öskra að þeim þar til mig sárverkjar í háls og lungu og...

Lífið (8 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
,,Nei, hefurðu grennst?" Ég brosi. Ég hef ekki hugmynd um það. Það eina sem ég veit er að sólin er aftur byrjuð að skína.

Berskjaldaður ég (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Líf mitt er fjólublátt. Ég er þar sem rauður mætir bláu. Líkt og guðinn Janus lít ég í báðar áttir, fram og aftur, jafnt yfir hið rauða sem bláa. Og ég bý í miðjunni.

Ástin þeirra? (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þetta var ekki ást fyrir gyðjur og goð, ekki skýjaást. Þetta var “bara” þeirra ást. Eitt skiptið, skolaðist hún niður með uppvaskinu… Annað skipti, gufaði hún upp með vatninu í kartöflupottinum… Enn annað skipti, fór hún í ruslið með kúkableyjunni… Og svo, þurrkaðist hún upp með hinum þvottinum… Því eftir alltsaman þá var þetta ekki nema dauðleg ást.

Sú fyrsta (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nóttin kom til mín, svört og fögur, með freistingablik stjarnanna sem soguðust inn í svarthol augna hennar og í hungangssætri lyktinni grétum við saman svitatárum. Sitt hvort tungumálið, en þessa nótt skildum við bæði aftur og aftur og svo aldrei aftur.

Pæling (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ætli það sé hægt að lifa í friði og ró nálægt svartholi? Ætli það sé hægt að flytja yl og birtu inn í svarthol án þess að það tapist? Ætli það sé hægt að fylla upp í svarthol? Þeir segja að það sé ekki hægt Hvernig get ég verið ósammála þeim, bara vegna þess að ég upplifði þetta sjálfur?

Sú fyrsta (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nóttin kom til mín, svört og fögur, með freistingablik stjarnanna sem soguðust inn í svarthol augna hennar og í hungangssætri lyktinni grétum við saman svitatárum. Sitt hvort tungumálið, en þessa nótt skildum við bæði aftur og aftur og svo aldrei aftur.

Ófagnaðarfundur (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þegar ég loksins loksins fann sjálfan mig komst ég að því mér til skelfingar að ég var aleinn og yfirgefinn á miðjum öræfum með bilaðan áttavita og ekkert kort og sólin hló hæðnishlátri þar sem hún var við það að setjast Þegar ég tók fyrsta skrefið í heimferðinni hugsaði ég með mér hve ljúft það væri ef ég gæti bara týnt mér aftu

Púki.is v.2 (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Kreist píþol öll te völd limönd gösls, limönd gösls. Sjóvís bors, sjóvís bors önd öll te lúnapíps. VÍ HVE ÞÚ TÚNÆT!! Þreprisent æst sæt un te væst sæt VÖRU!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok