Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: "Hverjir Ætla?"

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Góð hugmynd…

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Tónastöðin - ömurleg þjónusta!

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Uss, þetta var líka svona með Rín einhverntímann þegar ég var að bíða eftir vissum gítar, reyndar endaði það á því að ég bara pantaði aðeins annan gítar af netinu og sá ekki eftir því. Málið er að þetta er bara allt of oft svona í öllum búðum held ég.

Re: Sendingakostnaður?

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Þú getur gáð hvað sendingarkostnaður er í checkoutinu. Farðu fyrst í add to cart á hvoru tveggja, farðu svo í calculate shipping cost eða eitthvað þannig og skrifaðu viðeigandi hluti í reitina. (svo lengi sem þú velur íslands þá kemur það allt út á einu held ég). Varan er send með UPS(TVG Zimsen er með UPS á Íslandi)

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Borgaralegar fermingar - Fyrir hálfvita !

í Deiglan fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Thorinn:“Það er nú ótrúlegt að þú skulir vera foreldri, með svona óþroskað tal.” Rétt, hann hljómar frekar eins og einhver krakki sem er að fara að fermast á meðan bekkjarfélagi hans fermist borgaralega og hann er eitthvað pissed út af því.

Re: Borgaralegar fermingar - Fyrir hálfvita !

í Deiglan fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Satt best að segja finnst mér trúleysi ekkert meira töff en hvaða trúarbrögð sem er. Mér finnst bara sniðugast þegar fólk viðurkennir hvað sem það finnur sig best í, hvort sem er trú eða trúleysi. En ferming snýst í raun ekki um trúarbrögð, let's face it, það er bara átylla, ferming er bara tilefni einu sinni á ævi manns til að geta haldið stóra veislu og verið miðpunktur athygli og er bara viss tímamót í ævi hvers sem er. Reyndar finnst mér þessi aldur full ungt til að geta raunverulega...

Re: Borgaralegar fermingar - Fyrir hálfvita !

í Deiglan fyrir 22 árum, 2 mánuðum
ERTU HÁLFVITI?!?!?! Djöfulsins fordómafulla fífl! Geturðu leyft þér sem foreldri að tala um nokkurn krakka sem HÁLFVITA? Mér finnst að börn eigi alveg eins að vera verðlaunuð fyrir að velja að fermast ekki og að fermast. Það er hvort tveggja svar við sömu spurningunni og hvorugt er réttara en hitt. Auk þess hafa krakkar nú talsvert fyrir því að fara út og syngja fyrir nammi. Yfirleitt labba þeir langar vegalengdir og leggja(stundum) talsvert á sig til að læra/semja lögin eða redda sér...

Re: HiHat !!!MEIRI LÆKKUN!!!

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég býð 30 krónur og hálfan tyggjópakka.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Aldursmunur!!!

í Rómantík fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Málið er að það er miklu meiri munur á 14 og 18 ára manneskjum heldur en 20 og 24 ára. Það eru breytingar sem þú ferð í gegnum, bæði líkamlegar og andlegar, á aldrinum 12-16ára(svona eitthvað til eða frá) og því er 18 ára manneskja bara allt öðruvísi í þroska en 14 ára manneskja.

Re: Feminismar! Við höfum rétt fyrir okkur!

í Deiglan fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég styð fullkomið jafnrétti heilum hug. Ég vil endilega sjá að jafn margar konur séu á Alþingi og karlar. En hinsvegar virðist nú á dögum vera komið á hálfgert veiðileyfi á karla. Það má endalaust bauna á karlmenn hvað þeir eru óþarfir og ófullkomnir og má segja allt í nafni femínisma. Þetta finnst mér líka visst ójafnrétti og það kalla ég öfgafemínisma, þ.e. femínismi sem er kominn yfir það að vera bara að vilja jafnrétti, og er komið í hálfgert hatur á karlmönnum. Femínistar eru fínir, en...

Re: Hvað á að gera við nördana?

í Skóli fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég komst aldrei í neina af þessum stjörnubókum, ég var alltaf frekar eftirá í stærðfræðibókunum, en samt er ég með þeim bestu í stærðfræði allavega í árgangnum. Hitt er svo annað mál að ég mæli nú ekki með því að vanrækja svona heimanámið. Bara helvítis leti í mér.

Re: Korn á leiðinni til andsins...vuppí :(

í Rokk fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Korn eru svona álíka kúl og Í svörtum fötum, bara aðeins ömurlegri.

Re: Hvað á að gera við nördana?

í Skóli fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Btw. Ég myndi frekar kalla þetta proffa en nörd. Nörd er svona aðeins sterkara orð, og eins og einhver nefndi svo viðeigandi hér á undan mér að nörd er ekki bara að vera góður í skóla, nörd er lífsstíll. ;)

Re: Hvað á að gera við nördana?

í Skóli fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Já. Mér finnst svolítið sniðugt eins og í Garðaskóla heyrði ég að bestu nemendurnir í 10 bekk væru bara farnir að taka menntaskólastærðfræði. Auðvitað er ekkert vit að halda aftur af þeim bestu út af því að restin ræður ekki við það.

Re: Mínus láta ekki kúa sig !

í Rokk fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég veit ekkert hverjir lesa þetta greinarsvar, það lendir víst mjög neðarlega á greininni, en við bara sjáum til. Ég tek það fram að ég er 15 ára unglingur, sumsagt í 10 bekk núna. Mér finnst þetta vera rangt að tala um að Samfés sé með forræðishyggju og séu að gera lítið úr greind unglinga. Unglingar eru virkilega opnir og móttækilegir fyrir öllum skilaboðum, og þá sérstaklega frá helstu fyrirmyndum. Það er einfaldlega staðreynd. Samfés er stofnað með því markmiði að hafa góð áhrif á...

Re:

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég segi bara það að ég er feginn að ég þurfi ekki að prófa þetta ;) en gangi þér annars vel, hljómar bara nokkuð vel.

Re: Ísraelshatursáróður DV og Ísland-Palestínufélags

í Deiglan fyrir 22 árum, 2 mánuðum
(ég ætla að byrja á að biðjast afsökunar á ruglingslegri uppbyggingu þessa greinarsvars, það var skrifað í miklum flýti.) Einmitt, það er einmitt líka mjög leiðinlegt hvað allir voru á móti Nasistum í seinni heimstyrjöldinni, bara eins og einhver tíska eða eitthvað.(Fyrir þá sem ekki skilja, þetta er kaldhæðni) Í fyrsta lagi eru landvinningar ólöglegir samkvæmt alþjóðlegum stríðslögum og engin ástæða fyrir Ísraela til að fá að halda áfram sínum landvinningum. Auðvitað er ekkert nema eðlilegt...

Re: Upphitunarkerfi!

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
C/P yfir í word(eða annað forrit) og nota svo courier(new), monaco, eða eitthvað annan þannig monotype font.

Re: Smíða Hátalara keilu (venjulegir)

í Græjur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hefðirðu ekki þurft lengri vír eða eitthvað? Fyrir meira viðnám. Hvar getur maður annars fengið þokkalega öfluga segla? Það eru náttúrulega alltaf þessir crappy ísskápaseglar. En þeir duga sennilega ekki mikið þegar að þessu kemur.

Re: er eldurinn lífvera?!?

í Heimspeki fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Nokkuð skemmtileg pæling hjá þér. En það fyrsta er náttúrulega að allt líf er úr kolefnissamböndum. Hinsvegar er eldur ekkert annað en efnahvörf(oftast reyndar kolefnishvarf, en stundum eitthvað annað, s.s. vetnisbruni) og því erfitt að skilgreina eldinn sem lífveru þó að þetta séu svona “basic” skilgreiningar. Svo er annað að þó að hann væri lífvera þyrfti ekki að vera siðferðislega rangt að drepa hann frekar en gerla eða plöntur.

Re: Byltingarkenndasta hljómsveitin - ekki Nirvana!

í Rokk fyrir 22 árum, 3 mánuðum
OK. Smá rök fyrir því að Nirvana er ekki sérstaklega áhrifamikil hljómsveit: 1. Auðvitað þekkja margir unglingar og ungt fólk Nirvana mun betur en Bítlana eða Led Zeppelin einfaldlega vegna þess að hún er miklu nær okkar samtíð. En á sínum tíma tröllriðu þessar hljómsveitir heiminum. Nirvana var engan veginn nokkurn tímann eins stór og B. eða LZ. 2. Hvaða tónlistarstefnu inleiddi Nirvana? Eru einhverjar hljómsveitir sem voru sérstaklega stofnaðar upp úr stíl Nirvana? Auðvitað eru einhverjar…...

Re: Þarf maður að vera TÍK í nútímasamfélagi ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Yfirgangurinn virðist vera það sem blífar í nútíma samfélagi. Góðu strákarnir virðast aldrei fá neinu framgengt, óþolandi fyrirkomulag.

Re: Nýja tækniundrið frá Nintendo

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Semiconductor=Hálfleiðari, sum sagt sílíkondíóður hefði ég haldið.

Re: G5 leiðangurinn minn

í Apple fyrir 22 árum, 3 mánuðum
PPC stendur einfaldlega fyrir PowerPC og er bara fínt nafn yfir 2. kynslóð Macörgjörva. G3 stendur svo fyrir Generation3, og þá skiljið þið sennilega hvað g4 og 5 stendur fyrir. Samt er PowerPC enn notað yfir seinni tíma mac örgjörva.

Re: Gítar kaup

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ekta? Meinarðu þá American made eða bara ekki squier? Annars er Les Paul nú sennilega fjölhæfari, þó að fenderinn sé nú bara fjandi skemmtilegur gítar.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Hugleiðing um fermingu

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Varðandi síðustu málsgrein Soldiers: Ég hef þá kenningu að öll/flest trúarbrögð séu tilraun til að skýra sama fyrirbæri, þannig að það eru nú kannski ekki beint rök heldur frekar andrök.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok