Ég ætla bara að skrifa hérna mína skoðun á aldursmun. Ég hef lesið greinar og korka um aldursmun eða aldursmunur í samböndum kemur oft upp. Eins og til dæmis bitch1 skrifaði grein um daginn að fyrrverandi kærasta síns ofsækti þau og hún var að biðja um hjálp. Hún tók fram aldur kærasta síns í þessari grein og var hann 15ára og hún 13ára mér finnst ekkert að því. En hún fékk svör hvað er 15ára strákur að gera með 13ára stelpu og allskonar gagngrýni fyrir aldursmun sem er ekki það óvenjulegur og alls ekki mikill ég meina þetta er mjög algegnt.
Kærasti minn er 4 árum eldri en ég og hef ég fengið mikla gagngrýni fyrir þetta samband og mamma mín öskraði á hann hvað hann væri mikill perri að vera með 14ára stelpu og hann sé 18ára og allt það bla bla bla.
En ég er komin með nóg af því að fólk sé að gagngrýna sambönd fólk, annað fólk og þroska þess og draga ályktanir vegna aldurs og aldursmun í sambandi þeirra.
Fólk segir oft að stelpur eigi ekki að vera í sambandi við eldri stráka bara vegna þess að þeir eru bara að nota þær. Auðvitað er það alltaf til í dæminu með suma stráka en alls ekki alla! Kærasti minn er alls ekki að nota mig eins og það hefur verið sagt við mig af fólki sem að þekkir hann ekki. En sú er ekki raunin ég er sammála þetta væri allt öðruvísi ef að við værum 20 og 24 ára. En afhverju telur fólk þetta vera sonna sick ef að þetta er löglegt? Ég meina fólk er að segja að eldri strákar eru bara að hugsa um kynlíf, en það eru ekkert allir. Ég finn ekkert fyrir þessum svakalega þroskamun og við erum ekkert að flýta okkur.
En ég vildi bara að segja hættið að gagnrýna sonna rosalega aldursmun eins og að segja hvað er hann að gera með henni. Bara vegna þess að hún er soldið yngri. Ástin spyr ekki um aldur, tíma eða staðsetningu, maður getur ekkert ráðið tilfinningum sínum. Mér finnst ekkert að aldursmun ef að fólk hefur þroska til þess að vera í þannig sambandi. Þannig hættið að gaggnrýna aldursmun, þið vitið ekkert um samband einhverja og hvernig það er eða hvernig þau eru með því að lesa um það á huga.

Kv. Disneyfan