Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: mjög erfið pæling varðandi hljóðfæri

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Uhh.. ég skil ekki alveg… Ertu að meina að við séum að eyða pening sem færi annars í fátæka, eða ertu að segja að hljóðfæraframleiðendur fari illa með fátækar þjóðir? Því að minn gítar er bara framleiddur af vitleysingunum í USA.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Fender eða Fender :)

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég myndi nú velja P-Bass…

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Skjár einn ónýtur!

í Tilveran fyrir 22 árum, 1 mánuði
HAH! Sammála! Samt spurning… sjónvarpsstjórinn sagði í viðtali í sjónvarpinu að þetta væri of dýrt efni til að vera ókeypis, sem þýðir þá annað hvort að hann ætli að fara að rukka fyrir skjá einn, eða að Íslenska sjónvarpsfélagið ætli að stofna nýja sjónvarpsstöð.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: TVíhöfði!!

í Tilveran fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég er eiginlega alveg sammála. Þetta getur í mesta lagi sómað sér sem einhver bullþáttur í útvarpi klukkan 6 á morgnana. Þetta er ástæðan fyrir því að útvarpsþættir eru ekki sjónvarpsþættir.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Lesendur

í Rokk fyrir 22 árum, 1 mánuði
Hmmm… mér finnst margar/flestar þessara platna hvorki bestu né þær áhrifamestu allra tíma - eða bara að þær komist nálægt því, allra síst áhrifamestu. Eins og annar á undan mér nefndi finnst mér klárlega vanta Pet Sounds og Sgt. Pepper, og reyndar að mínu mati margar fleiri - t.d. Who's Next með The Who. Kannski gefur þetta hugmynd um tónlistarsmekk Breta, en lítið meira en það.

Re: Hvað ertu að spila ?? Np

í Tilveran fyrir 22 árum, 1 mánuði
Summerime blues - flutt af The Who, samið að ég held af Alan Jackson

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Nirvana

í Rokk fyrir 22 árum, 1 mánuði
Vó… alveg bara ítarlegasta grein sem ég hef lesið.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: led zeppelin

í Gullöldin fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þó að Page hafi verið snillingur á bogann og svona voru þeir á heldur afmörkuðu sviði í tónlist, á meðan Bítlarnir voru hins vegar frumkvöðlar og snillingar á rosalega breiðu sviði, og ekki bara það, heldur brutu þeir múrinn milli dægurtónlistar og klassíktónlistar. ps. ekki misskilja mig, Led Zep er uppáhalds bandið mitt - næst á eftir bítlunum.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Einkunnakerfi í stað stiga

í Hugi fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ef þetta myndi vera eins og þú segir… þannig að fólk myndi missa stig við að gefa óréttlátar einkunnir(einkunnir sem stangast á við heildareinkunnir) myndi það kannski leiða til óréttlátrar einkunnargjafar með því að t.d. finnist einhverjum raunverulega grein sem er með 9 í heildareinkunn eiga skilið 5, en vill ekki kjósa það til að missa ekki stig, svo hann kýs heldur hærri einkunn en honum finnst greinin eiga skilið.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Gítar

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Það er líka einn MJÖG ódýr pakki í Tónabúðinni á að ég held 15.000 kall, Behringer gítar og magnari, dugar vel fyrir þá sem eru að koma nýjir inn í þetta held ég.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Giftingar

í Deiglan fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þú getur gift þig hjá ýmsum trúfélögum, en hinsvegar þegar allt kemur til alls hefur gifting meira að gera með stöðu fólks í samfélaginu. Trúfélagið hefur bara að gera með athöfnina. Jújú, sennilega ættu trúfélög að geta ráðið því hvort þau gifti fólk eða ekki, en hinsvegar er eins og málin standa í dag ekki leyft með lögum að fólk af sama kyni gifti sig, en þar ættu trúfélögin hvergi að hafa hönd í bagga að mínu mati, enda hef ég alltaf sagt að ríki og kirkja ættu bara að tengjast sem allra minnst.

Re: Fender jaguar

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Vó, ég segi bara til hamingju: Til hamingju!

Deep Purple

í Tilveran fyrir 22 árum, 1 mánuði
Vona að það sé eitthvað til í þeim orðrómi að Deep Purple sé að koma hingað til að spila.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Hvaða hljómsveit mundi þig langa til að fá?

í Tilveran fyrir 22 árum, 1 mánuði
Hmmm, varla sérðu Led Zeppelin spila á Íslandi… nú eða nokkursstaðar annarsstaðar. Trymbill þeirra, John Bonham, drakk sig í hel 1980, og í kjölfarið á því hættu þeir að spila saman, þó að endrum og sinnum hafi þeir spilað með syni Johns, Jason. Hitt er annað mál að ég væri til í að sjá tónleika með Jimmy Page og Robert Plant hérna.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Smá spurning

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ástæðurnar eru sennilega nokkrar, í fyrsta lagi langar alla að vera eins og Jimi Hendrix eða Angus Young eða Jimmy Page eða Matt Bellamy eða eitthvað, gítarleikarar eru alltaf í spotlightinu. Svo er sennilega aðal ástæðan fyrir skortinum á trommuleikurum hvað það er dýrt og umfangsmikið að spila á trommur, maður verður að hafa bílskúr eða að minnsta kosti nokkuð stórt herbergi í einbýli.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Godin gítar

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Fyrir mitt leyti myndi ég velja einhvern með mjórri háls, en það er líka bara því að ég bý ekki yfir mjög miklum hraða í fingrunum. Annars virðist þetta vera fjandi skemmtilegur gítar.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Giftingar samkynhneigðra/tvíkynhneigðra.......

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 1 mánuði
Það er að segja kristna fólkið…

Re: Giftingar samkynhneigðra/tvíkynhneigðra.......

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 1 mánuði
Frá náttúrunnar hendi? Heyrðu, maður, þú ert að tala við fólk sem trúir að stafir geti breyst í snáka.

Re: Violoncello

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Zitu? Meinarðu Sítar(á ensku Zither eða Sitar)?

Re: Violoncello

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Það er misskilningur að þverbönd séu bara til að hjálpa til að hitta á réttan stað. Í fyrsta lagi væru nóturnar á gítarnum mun styttri ef engin væru þverböndin, því að þá myndu fingurgómarnir strax drepa nótuna. Í staðinn er fingrunum haldið aftan við þverböndin og þverböndin sjá um að halda strengjunum í réttri lengd án þess að drepa nótuna. Með því að hafa ekki þverbönd er hægt að spila fjórðungsnótur og hvaðeina, og það er ekki jafn mikill ókostur að hafa engin þverbönd til að lengja...

Re: Annað hljóð í magnaranum

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Gullsnúrur(þ.e. yfirleitt með gullhúðuðum jack tengjum) eru það besta sem fæst, gull bara leiðir best. Ég hef svosem aldrei heyrt um snúru sem er öll úr gegnheilu gulli :)

—————- Bara bull, bara lag…

Re: um sílófóna....

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
Nei, hljómar svona svipað og að ætla að droppa D á píanói eða eitthvað.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: um sílófóna....

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Xylophone - Klukkuspil held ég að það kallist líka á íslensku, hef allavega líka heyrt það einhverntímann. Það er svona nótnaborð með svona tréstöngum sem maður slær á með… ég man ekki hvað það heitir, svona kjuðar… dæmi eitthvað. Enginn sérfræðingur :P

—————- Bara bull, bara lag…

Re: HljóðfæraTollar

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hljóðfæri eru tollfrjáls, en hér er smá reikningur fyrir þig: Innkaup:20.000kr Sendingarkostnaður:5-10.000kr VSK:25%(24,5%)=7500(ef við reiknum með 10.000 kr sendingarkostnaði) Þarna er kominn 37.500 kall, svo gætir þú alveg reiknað með svona 100% álagningu, það getur vel talist eðlilegt, reyndar samkvæmt þessum reikningi næði það því ekki, en þá getum við bara gert ráð fyrir að innkaupakostnaður með sendingarkostnaði og VSK sé í kringum 30.000 eða eitthvað. Ofan á það bætist svo 24.5% VSK...

Re: Borgaralegar fermingar - Fyrir hálfvita !

í Deiglan fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Þú talar hérna sínkt og heilagt um að maður sé ekkert að fá gjafir fyrir að læra hluti, og þvertekur fyrir að ferming sé í raun manndómsvígsla. Borgaraleg ferming þýðir í raun bara að maður ætli sér ekki að fermast, og því alveg jafn mikilvæg og stór ákvörðun og að fermast. Kæri Logaritmi, geturðu vinsamlegast sagt mér hvað það er við kristna fermingu sem gerir það fremur að verkum að krakkar eigi að fá gjafir heldur en við borgaralega fermingu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok