Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Daniel Bedingfield

í Popptónlist fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ekkert persónulegt, en ég bara verð að segja þetta: Óþolandi tónlistarmaður.

Re: 5 bestu kvikmyndir ársins 2003

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hmm, ég myndi segja að Bowling og Gangs of New York væru 2002 myndir, allavega unnu þær Óskarinn fyrir 2002.

Re: disel gallabuxur

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Fáránlegt hvað fólk lætur bjóða sér. Verið að eyða 10-30þús í einhverjar buxur, og öllum er sama um gæðin. Það eina sem skiptir máli er merkið. Og meiri og meiri öfgar eru í þessum efnum svo er virðist.

Re: Mitt álit á LOTR: The return of the king.

í Tolkien fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég er allskostar ósammála því að PJ hafi breytt þessum atriðum í brandara(með Gollum og Dynþór). Atriðið þegar Gollum fellur í Mt. Doom með hringinn undirstrikar einfaldlega hve heltekinn af hringum hann er. Hann stefnir beina leið í bráðan bana, en er samt himinlifandi yfir því að hann hafi endurheimt hringinn. Þetta með Dynþór þótti mér engan veginn fyndið og þvert á móti því sem þú talar um finnst mér það undirstrika vitfirringu hans og örvæntingu. PJ lagði líka miklu meira upp úr...

Re: Nirvana Suck

í Rokk fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Haha, þetta er skemmtileg spurning fyrir þetta feikrokklið.

Re: Metár í íslenskri hljómplötusölu - STEF

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hvaða helvítis missi? Ég finn nærri aldrei íslenska tónlist á netinu(Nema stundum á DC).

Re: ROKK ER STYTTING Á FOKKT!!!!!

í Rokk fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hvað í fjandanum er þetta? Einhverskonar korkadriveby? Allavega, þetta missti þokkalega marks.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Nirvana Suck

í Rokk fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Viðbót við fyrra greinarsvar: Þú finnur hvergi nokkursstaðar tónfræðilega vel hugsaða melódíu hjá Nirvana. Hlustaðu á Stairway to Heaven, Since I've been loving you, Baby, I'm gonna leave you, Immigrant song(ég get haldið áfram að telja ef þú vilt). Það sem næst kemst því að vera tónfræðileg hugsun hjá Nirvana er notkun á hljómum.

Re: Nirvana Suck

í Rokk fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Led Zeppelin er miklu(miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu) vinsælli og frægari en Nirvana nokkurntímann. Nirvana er bara einhver hljómsveit með þunglyndan, drykkfelldan söngvara og góðan trommara sem lenti á góðum umboðsmanni og varð heimsfræg fyrir vikið. Svo vildi til að einhverjum hálfvita datt í hug að gefa út safnplötu nýlega og þá eru allir allt í einu hardcore nirvana fans. Led Zeppelin...

Re: Nirvana Suck

í Rokk fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Led Zeppelin er miklu(miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu, miklu) vinsælli og frægari en Nirvana nokkurntímann. Nirvana er bara einhver hljómsveit með þunglyndan, drykkfelldan söngvara og góðan trommara sem lenti á góðum umboðsmanni og varð heimsfræg fyrir vikið. Svo vildi til að einhverjum hálfvita datt í hug að gefa út safnplötu nýlega og þá eru allir allt í einu hardcore nirvana fans. Led Zeppelin...

Re: nei

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það skiptir ekki einu sinni máli hvort þetta komi fram á skattbyrðinni að mínu mati. Við eigum að láta okkur skipta hvernig annað fólk fer með sig. Með því að stofna samfélög af þeirri stærðargráðu sem raun ber vitni erum við að gera vandamál annarra að eigin vandamálum. Enginn maður er eyland er stundum sagt og það er satt. Myndi baugur vera stórveldi án viðskiptavina? Ef allir í heiminum hyrfu og þeirra störf með, hvernig færir þú að? Gætir þú framleitt allar þínar nauðsynjar sjálfur?...

Re: nei

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ertu að segja að ef dóp væri leyft væri minni neysla á því? Þetta er bara kjaftæði, það hefur alveg sýnt sig og sannað, miklu meiri kannabisneysla er í Hollandi en á Íslandi eða öðrum löndum þar sem þetta er bannað. Veit ekki hvort sígarettur ættu að vera bannaðar en ég þori allavega að fullyrða að ef áfengi væri að koma fram núna yrði það að öllum líkindum bannað og sett í flokk með eiturlyfjum, sama gildir sjálfsagt um tóbak.

Re: Eg var að heyra

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 3 mánuðum
En ef mann langaði í svona eins og Vox Wah eða eitthvað þannig, væri það ekki frekar mikið vesen?

—————- Bara bull, bara lag…

Re: (Fender) Lampamagnari óskast

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég meina að sjálfsögðu gítarmagnara.

—————- Bara bull, bara lag…

Re:

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það er nú kannski ólíkt, en samt líkt. En ef þú veist að barnið þitt er að fara að hugleiða sjálfsmorð, myndir þú ekki reyna eftir fremsta megni að koma í veg fyrir það? Þú myndir ekki bara láta það hafa skammbyssu því það er betra en að hengja sig. Það eru ýmis hlutir sem þú getur gert til að koma í veg fyrir að barnið þitt drekki. Að hjálpa er bara auðvelda leiðin út úr málinu. ps. Ég er 15 og drekk ekki og reyki ekki

Re: Lord Of The Rings Kvikmyndirnar Spoiler

í Tolkien fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Jú, ég var nefnilega að svara greinarsvari sjoefn7 og er þetta svar svolítið úr samhengi ef þú lest þetta svona. Hann var að setja út á hvað væri gert út á það mikið að frodo væri hetja o.s.fr.

Re: Nirvana Suck

í Rokk fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ok, Þetta er lélegasta grein sem ég hef nokkurntímann lesið… nokkurntímann, án djóks. Ég er nú ekkert nirvana fan, og get alveg viðurkennt að sumt fólk hlusti bara á nirvana vegna þess að það skilur ekki alveg tónlist og vill líta töff út, en það kæmi mér nú ekki á óvart ef þú hlustar á þessar hljómsveitir/tónlistarfólk sem þú nefnir bara af sömu ástæðu, þ.e. að þykjast vita eitthvað um tónlist. Ekki segja fólki hvað á að hlusta á til að geta talist hafa vit á tónlist, það er þó skömminni...

Re: Lord Of The Rings Kvikmyndirnar Spoiler

í Tolkien fyrir 22 árum, 4 mánuðum
En Frodo brást… Hann hætti við að henda hringnum í pyttinn, bara fyrir tilstuðlan Gollums var hringnum fargað.

Re: Gibson SG Special Faded

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Humm, ef gott verð býðst sel ég hann hæstbjóðanda, en annars er þetta svona frekar tilraun en að ég þurfi raunverulega nauðsynlega að selja hann.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Að smíða sér effektabretti...

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Já, skemmtileg aðferð, nú þarf ég bara að fara að safna mér effectum :)

Re: Hugleiðing um fermingu

í Deiglan fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég hugsaði um hvort ég ætti að fermast sennilega frá því að ég var um 10 ára. Ég trúði nú sennilega á Krist og Guð og svona, en svo var það þetta með kirkjuna, hvort ég væri tilbúinn til að játa trú mína á það að kirkjan hefði rétt fyrir sér, og að þetta væri sú kirkja til að trúa á. Ég er ekki trúlaus í dag, en ég á erfitt með að lýsa trú minni sem neinni sérstakri trú. Ég er oft efins um hvort ég hefði átt að fermast inn í íslenska þjóðkirkju. Mér finnst ekkert að því að fermast...

Re: music123 í þúundasta sinn

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Hvar er þetta? Ég lenti í miklum vandræðum við að redda mér einhvern með kreditkort og vesin.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Magnarar

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég held það sé kannski meira upp á að það sé gaman heldur en endilega verðið.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Gibson SG Special Faded

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ah, ég vildi að ég ætti pening fyrir alvöru LP, nú eða bara SG, ég hef mjög gaman af SG. En það kemur seinna.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Alger byrjandi !

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
1. Með svona byrjunargítar skiptir kannski minnstu máli hvar. Ég hef samt heyrt að Gítarinn sé algert svindl, haft lítil viðskipti við þá, en ég hef ekki mjög góða reynslu af þeim, þ.e. sú litla reynsla sem ég hef af þeim. 2. Bestu gítararnir fást í hljóðfærahúsinu, rín, tónastöðinni eða jafnvel tónabúðinni, allt eftir því hvað manni finnst, líka fer það eftir hvort þú sért að tala um kassagítara eða rafmagnsgítara. Það eru samt mjög góðir kassagítarar út í tónastöð held ég. 3. Ég byrjaði...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok