Ég vil taka fram tvennt: Í fyrsta lagi það að ég er ekki trúlaus, ég er trúaður, en ég get ekki fundið mig í þeim boðskap sem þjóðkirkjan boðar. Í öðru lagi fékk ég þegar ég fermdist, að minnsta kosti á mælikvarða margra, frekar lítið af gjöfum. Tek það samt fram að ég var bara nokkuð ánægður með fermingarveisluna mína og það. Ég fékk engar græjur, enga tölvu, ekkert sjónvarp og hvað þá vídeotæki eða DVD. Þar fyrir utan deildi ég fermingarveislu með systur minni sem er einum bekk fyrir neðan...