Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Gibson SG Special Faded

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Góð hugmynd. Ég efast um að ég myndi skipta hvort sem er. Ég er Gibson maður, og þó að fender sé nú alltaf skemmtilegur, og kannski meira virði, myndi ég seint skipta þarna held ég, þetta eru illa sambærilegir gítarar.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Gibson SG Special Faded

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Humm, varla, en það fer eftir ýmsu. Hvað er hann gamall? Eru einhverjir gallar eða lýti? Áttu mynd?

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Gibson SG Special Faded

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Já, en ef þú kaupir miða til USA bara til að kaupa gítarinn ferðu svolítið laglega yfir þetta verð, ekki satt ;)

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Music123 í 100. skipti

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég held að þar til þú skrifar undir hjá sendlinum hjá UPS beri þeir alveg ábyrgðina á gítarnum(og kannski eftir það, en allavega er best held ég að skrifa ekki undir ef þú verður var við hnjask) En auðvitað er þetta alltaf áhætta, ég er bara ekki klár á þessu með ShopUSA.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Gibson SG Special Faded

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Onei, hann kostaði nær 70.000 kalli með öllu, þó hann sé í ódýrari kantinum fæ ég hann ekkert á neinn 42.000 kall kominn til landsins.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: gítarinn...

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Persónulega hef ég ekki prófað svona gítar, hvorki Gibson né Epiphone. Epiphone eru ágætis gítarar, örlítið stirðari og með þrengra tónsvið en gibson samt. En ef hann jafnast á við aðra Gibsona sem ég hef prófað hlýtur hann að vera nokkuð góður, mér finnst þessi gítar persónulega ótrúlega flottur. En hinsvegar ef hann er mjög óþægilegur gæti verið ráðlegt að velja annan gítar, spilun og hljóð eiga alltaf að vera ráðandi þættir í að ákveða slík kaup.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Music123 í 100. skipti

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Þú þarft ekki að kaupa þetta í gegn um ShopUSA. Að fá þetta með sendingu frá Music123 með UPS(hraðsendingarþjónustan sem þetta fer í gegnum hjá M123) er fljótlegra, hentugra, öruggara og ekki mikið dýrara, kannski ekkert dýrara, ekki viss.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Skilngingsleysi??

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Mikið var að einhver benti á þetta, ég hef einmitt verið að hugsa um þetta og ég held að ef jafn mikið væri gert til að hvetja krakka til að læra á hljóðfæri og að fara í íþróttir væru örugglega tvöfalt fleiri að læra/spila á hljóðfæri(og þá meina ég ekki bara gítar, bassa eða trommur). Þetta er bara hrein og bein mismunun

Re: gítarinn...

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Þetta er ágætis gítar held ég. Epiphone geta verið ótrúlega skemmtilegir. Ég þekki samt þennan ekki af persónulegri reynslu.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Fender bassi til sölu

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Nei takk, ekkert vera að hafa fyrir því, ég spila ekki á bassa og er því ekki á leiðinni að kaupa mér slíkan :)

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Fender bassi til sölu

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ef hann er vel farinn finnst mér 20þús lækkun frá upphaflega verðinu bara ágætis verð.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: gítar pickupar

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það má líka nefna að Humbuckerar voru upphaflega gerðir vegna þess að suðið minnkaði við að nota tvöfaldan pickup. Svo má líka nefna eina enn tegund sem ég hef séð, reyndar aldrei heyrt í því en er forvitinn, hann er þrefaldur og eina nafnið sem ég hef séð yfir hann er ‘motherbucker’

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Gibson SG Standard

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Svo er líka Pete Townshend úr The Who(reyndar var það SG Special með P90 Single Coil pickuppum) og svo notaði auðvitað Jimmy Page doubleneckinn svolítið.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Line6 vs Marshall

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Svona AVT(valvestate) þá? Þá er náttúrulega ekkert að marka hvað hann er öflugur, en magnarar með lampa í kraftmagnaranum gefa sko alvöru sánd.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Könnun...

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Jú, ætli það ekki

—————- Bara bull, bara lag…

Re: PRS guitars

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Já, það er nú talsverður tími síðan hélt ég.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Line6 vs Marshall

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það er reyndar rétt að ég hef ekkert prófað neinn helling af Marshall mögnurum, en ég er að tala um lampamagnarana í þessu tilfelli. En ég þekki þetta nógu vel til að leyfa mér að segja að digital er aldrei eins gott og original lampamagnarar(þetta á við um fender alveg jafnt og Marshall, þess vegna líka Vox eða Laney). Digital effectar eru oftast leiðinlega stífir á miðað við aðra. Þó vil ég líka segja að Line6 eru vissulega fremstir á sviði digital effecta og magnara.

—————- Bara...

Re: Hackara Áhugarmál

í Hugi fyrir 22 árum, 4 mánuðum
1. Ef þú ert að tala um svona tölvuinnbrot ertu heimskur og ég veit ekki alveg hvað þú ert að reyna, því slíkt er ólöglegt. 2. Ef þú ert að tala um svona hack eins og í unix forritun er allavega eins og þú sért að monta þig á því að vita þetta og auk þess er þegar til áhugamál sem hentar ágætlega fyrir það; forritun.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Line6 vs Marshall

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Sko, Line6 jafnast hvergi á við Marshall magnara. Málið er að Line6 byggjast alveg á þessu digital rugli, svo ef við tölum um alvöru Marshall magnara eins og jcm eða þannig dót eru engir digital effectar á því, enda ætti enginn professionalisti nokkurntímann að leyfa sér að nota digital effect sé kostur á öðru. Þetta er mitt álit.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Hljómsveitar Nöfn

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Humm, URL er(eða var?) hljómsveit.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Magnari

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Kannski þess vert að taka það fram að hausinn er magnarinn sjálfur, boxið eru bara 4(geta verið 1 eða 2) keilur(hátalarar) í kassa.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Jimmy Hendrix

í Gullöldin fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Jimmy(Jimi) er stytting á James

Re: veit að þetta er gegt þreytt

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það gerist endrum og sinnum, en þá er það bara á ábyrgð UPS hraðsendingarþjónustunnar(TVG Zimsen er með UPS á íslandi)

—————- Bara bull, bara lag…

Re: les paul

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það gerir þetta fyrsta orð… ‘Epiphone’

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Gæði effekta

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Já, í tónabúðinni spara þeir ekkert hrósið á þessa Zoom effecta(stompboxin). Ég hef aðallega prófað þennan metal effect, ágætis effect svosem, en það gæti bara verið langvinn áhrif frá sölumennsku mannsins í tónabúðinni. Ég vorkenni þér ekkert ef þú færð þér Zoom stompbox, mér líst ágætlega á þá, en hinsvegar hef ég ekki sem besta reynslu af Zoom multieffectinum. Line6 er rándýr, en gæti verið þess virði ef þú ert á annað borð að spá í multieffecta.

—————- Bara bull, bara lag…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok