Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

vanþakklæti (18 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Mér finnst vanta í uppeldi sumra krakka að þeir þakki fyrir sig. Ég er ekki að alhæfa, bara tala um það sem ég hef séð í dag. Ég fór í afmæli milli jóla og nýárs. Það var 8 ára frænka mín sem átti afmæli. Ég sagði til hamingju, en hún tók bara pakkann án þess að segja takk, opnaði hann labbandi á leiðinni til mömmu sinnar og lét hana fá það sem í honum var og labbaði svo burt. Ég var stórhneyksluð og hef misst áhuga á að gefa henni gjafir. Ég á frænku sem var ættleidd 5 ára frá landi...

Mjööög ósanngjarnt!!!!!!!! (12 álit)

í Skóli fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Í mörg ár hefur það verið þannig í mínum skóla, að útskriftarnemendur þriðja árs eru útskrifaðir úr öllum heimspeki- og listasögutímum því nú fyrir jól eiga þeir að fá frið til að gera lokaritgerð og undirbúa fyrirlestur um hana. Ég er núna á þriðja ári í Listaháskóla og við erum sett í nútíma-Asian art!!!!!! Við fengum áætlun í gær um að skila á önninni samtals 10 greinum um mism. listamenn, gera ritgerð og undirbúa fyrirlestur….hvað svo ef þessi fyrirlestur er daginn fyrir stóra...

Dr. Phil á Skjáeinum (18 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég var að horfa á Dr. Phil á Skjáeinum í gær og þangað koma foreldrar með annaðhvort lítilvæg vandamál (sem maður gæti vel leyst sjálfur) og stór vandamál. Í gær kom ofboðslega sjálfselsk kona!!!! Ég var bara hneksluð. Hún valdi það fyrir mörgum árum að verða ólétt, en sá svo eftir því og hugleiddi að láta ættleiða það eða láta eyða fóstrinu. Mamma hennar var mikið á móti því og krafðist þess að hún myndi eiga barnið sjálf. Þessari konu fannst hún ekki eiga neitt líf lengur og fannst hún...

Hagur barnanna (7 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Það er svo lítið sem ekkert hugsað um hag barnanna þegar foredrarnir eru búnir að skilja og keppast um forréttindin. Forréttindi mömmunnar er sterkur. En hér er eitt dæmi: Pabbinn og mamma hans vilja taka 8 ára dótturina í bústað í viku, en þá missir hún af fyrsta skóladeginum. Kennarinn hringdi og sagði að ef hún missir af fyrsta skóladeginum, nýbúin að missa bestu vinkonu sína í annan skóla, þá kemur hún í skólann þegar allir eru búnir að velja sér sæti hlið við hlið og hún gæti mjög...

Verslunarstjórinn (2 álit)

í Smásögur fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Þessi saga er sönn um mig og mína vinnu. Ég vinn í matvöruverslun og hef sýnt fyrirtækinu mína hollustu í næstum 6 ár og hef sýnt öllum mikið traust. Vandamálið er verslunarstjórinn! Það er sama hvað hann ákveður, sama hvað það er mikið rugl og þó hann viti ekkert hvað hann er að segja, þá er hann svo þver og þrjóskur að hann bakkar ekki með það. Hann hefur ekki þann þroska sem miðaldra maður að breyta aðeins til og viðurkenna mistök sín! Hann fer ofboðslega mikið í taugarnar á starfsfólkinu...

Einhverntímann útskrifuð í heimspeki? (9 álit)

í Heimspeki fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég held maður sé aldrei útskrifaður í heimspeki. Nú er ég búin með 3 áfanga í heimspeki og fékk 6 í einkunn í þeim öllum. Samt fannst mér ég alltaf hugsa voða háfleygt og heimspekilega. Heimspekikennarinn sagði nú að við værum öll einhverjir heimspekingar í okkur í hugsun. Mér finnst maður aldrei vera búinn með heimspeki. Nú á ég eitt ár eftir í skóla og útskrifast næsta vor. Ég fer ekki í heimspeki í vetur, en er óánægð með að hafa bara fengið 6 alltaf í einkunn því ég gjörsamlega lá yfir...

Er verið að fækka í heiminum með krabbameini? (26 álit)

í Heilsa fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Stundum finnst mér, að fyrst okkur fjölgar svona mikið í heiminum þá er verið að reyna að halda mannfjöldanum jöfnum með því að láta koma upp krabbamein, stríð í heiminum og hungur til að fækka okkur…eru þetta svona örlög sem sett eru á okkur? Hvað ef ekkert af þessu væri til? Myndi þá jörðin verða svo þung að hún myndi hrapa með okkur öll af því við erum of mörg? Það er talað um að gsm símar séu svo hættulegir, en er þetta ekki bara hluti af örlögunum? Það er verið að fylla okkur geislum...

Grænukaka (1 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
heitt rúllubrauð Efni: 1 rúllutertubrauð 1 lítil dós majónes 1 bolli þeyttur rjómi 1/2 bolli rifinn ostur 1 og 1/2 bolli soðin hrísgrjón 250 gr rækjur 1 lítil dós grænn aspas 1-2 tsk aromat 1-2 tsk karrý 2 egg(aðskilin) Meðhöndlun: Hrærið saman majónesi,rjóma, eggjarauðum og osti. Þvínæst hrísgrjón og rækjur samanvið. Aspas saxaður og settur í og að lokum kryddið. Þessu er smurt á rúllutertubotn og það rúllað upp. Að lokum eru eggjahvíturnar stífþeyttar og settar utaná rúllutertubrauðið....

SNILLDARHUGMYND!!!!!!!!!!!!!! (9 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Í gær segir kærastinn minn: Þetta gengur ekki! Við verðum að fara að æfa okkur að elda! Ekki getum við alltaf verið í mat hjá foreldrum okkar og lifað svo á junkfood eða á loftinu þegar það er ekki matur hjá þeim. Nú er ég með ágætis hugmynd. Hvað segirðu um að við skiptumst á að elda? Á morgun byrjar hann að elda fyrir mig, og ég má ekki vita hvað það er, og svo á morgun elda ég fyrir hann og svo koll af kolli. Er þetta ekki hrein snilld??? Við ætlum sífellt að koma hvort öðru á óvart með...

Mjööög slæmt!!!! (13 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Kærasta mínum finnst mjööög slæmt að ég kunni lítið að elda og hefur áður farið í fýlu útaf því. En það urðu deilur um það að hann yrði nú líka að kunna það ef það ætti að vera jafnrétti á heimilinu…svo það væri hægt að skiptast á með hlutina. Maður frænku minnar vildi að hún kynni að elda, en þá sagði hún bara: Nei, þú skalt bara SJÁLFUR elda því ég kann það ekki. Sjálf get ég alveg bjargað mér…treysti samt lítið á það hvenær kjöt er almennilega tilbúið því það versta sem væri hægt að lenda...

Veit ekki hvar þessi grein passar (11 álit)

í Heimilið fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ok, ég veit ekki hvar ég átti að setja þessa grein nema á heimilið, þar sem ég var að panta vöru inn á HEIMILIÐ. Ég var að horfa á TV shop í sjónvarpinu og þótt ég hafi hneykslast á þessum ýktu viðbrögðum og hissa-svip á fólkinu þá var það ein varan sem ég ÞARF að eiga!!!!!! Þetta var þetta sem sléttir hárið á manni alveg ótrúlega vel og eins gott að það virki! Því ég er með vandræðalega þykkt hár sem ég á erfitt með að eiga við. Ég borgaði þetta með korti þegar ég pantaði þetta á...

Ósátt (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þótt ósátt við urðum, ég var umburðarlynd. Þótt skelltum við hurðum, ég trúnað þinn bind. Já, það koma tímar og það kemur stund. Þótt þagni okkar símar, ég kem á þinn fund. Æ, viltu ekki sættast, halt´utan um mig. hættum að þrættast, því ég elska þig. En elskar þú mig, ja, það er nú spurn er þetta komið á slig, ja, það er hár turn!

hunangssteiktur kjúklingur (6 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hér er réttur fyrir 4 manns sem ég fékk sendan frá uppskriftir.is. kannski hafa aðrir hér, sem eru skráðir þar, fengið þennan rétt en hér er fyrir þá sem ekki hafa fengið hann: 450 g kjúklingavöðvi 400 gr pastarör, mezza penne tricolori frá Barilla 2 dl rjómi 50 gr sveppir 30 gr spínat 1 msk smjör 1 msk hunang 2 stk hvítlauksrif salt pipar kryddsalt, aromat frá McCormick hrísgrjón uncle Ben´s fáeinir saffran þræðir Matreiðsla: Sjóðið pastað eftir leiðbeiningunum á pakkanum, hellið því í...

Stjörnumerkin (7 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 1 mánuði
Steingeitin vaknaði eldsnemma til að fara í vinnuna. Allt snerist þetta um vinnu og aftur vinnu, því hún var dugleg Steingeit á framabraut. Steingeitin var ávallt þolinmóð í vinnu og leitaði alltaf uppávið-semsagt á toppinn! Hún klæddist dökkum, óáberandi fötum úr vönduðu efni til að falla í hópinn og vann mikið “bakvið tjöldin” lét sig ekki sjást mikið utan skrifstofunnar. Í vinnunni kemur hinn stolti Vatnsberi með góðar hugmyndir fyrir Steingeitina að vinna úr. Vatnsberinn er maður...

ÖFUND (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 1 mánuði
Öfund er öflug, öfund er synd. Gerir illt verra já, öfund er synd. Öfund er vanþroski, öfund er ljót. gerir þig illan já,öfund er ljót. Öfund er grimmileg, öfundin sú. Gerir þig lítinn já, öfundin sú. Öfund er svæsin, öfund er svört. þú gerist grimmur, já, öfund er svört

Ógeðissaga(viðkvæmum bannaður lestur) (22 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Einn daginn mætti Baldur í líffræðitíma, kátur og sæll. Lífið virtist blasa við honum ÞANGAÐ TIL…kennarinn sér hvað hann kemur seint og “tekur hann fyrir” fyrir framan bekkinn. Jón kennari byrjar að blanda einhverja brennandi heita uppskrift af ógeðisblöndu í tilraunaglas, lætur Baldur leggjast ´´a bekk og allir krakkarnir fara að hlæja. Hann heggur í hausinn á Baldri og fer að krukka í hægra heilahvelinu á honum. Heiti safinn hellist yfir hvelið og það heyrist suðuhljóð. Heilinn bráðnar. Nú...

líkamsrækt (15 álit)

í Heilsa fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Var að kaupa mér líkamsræktarkort og byrjaði í gær. Ég varð svo gráðug í að byrja að ég byrjaði alltof hratt….það var gert með því að fara strax í Tae Bo tíma. Þeir timar eru alveg rosalega fjörugir og skemmtilegir…hraði út í gegn ALLAN TÍMANN. Hitti eina stelpu úr mínum skóla sem byrjaði í þessu fyrir jól. Hún spurði:“Ertu ekki með neitt vatn með þér?” Nei, nei, þetta er allt í lagi segi ég. Svo byrjum við, allir vanir nema ég en mér tekst nokkurn veginn að sprikla með. Eftir tímann skildi...

vissi ekki að ég gæti þetta!!!!!! (11 álit)

í Skóli fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég hélt 20 mínútna fyrirlestur í dag og það gekk alveg að óskum. Vissi ekki að ég gæti þetta…þá er ég að meina að tala svona mikið án þess að lesa upp það sem einkenndi listamanninn! Ég er stolt af sjálfri mér:D Ég sá mig fyrir mér stama og að það myndi líða yfir mig!!!!!! Ég var að halda fyrirlestur EIN í fyrsta skiptið og ég tel þetta góða byrjun :D Sú sem var á eftir mér, og miklu öruggari og ákveðnari í tali, hún las allt upp og gat ekki sagt utanbókar frá neinu. Sem sýnir að hún hafi...

Lygin spinnur vefnað (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Lygin spinnur vefnað, sem flókar myndast í. Lygin spinnur vefnað sem raknar oftast upp Léleg er sú hönnun sem ekki gengur upp því lygin spinnur vefnað sem aldrei gengur upp

Hvað er búið að vera að mér??? (18 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég er búin að vera bæði full efasemda í nýja sambandinu en inn á milli er ég mjög sæl…það koma svona tímar að ef hann hringir ekki eða sendir færri sms en hann er búinn að vera vanur, þá fer ég að fyllast efasemdum og halda að hann missi einhverntímann áhugann á mér og segi mér upp. Mér er svo illa við sambandsslit sérstaklega þegar ég er viss um að hann er sá rétti!!! En svo er alltaf að koma í ljós að hann er alveg frábær og ég þarf ekki að hafa neinar áhyggjur. Þetta hefur samt lagast...

Ástin og stjörnumerkin 4 (18 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Vog-Bogmaður: ÞEgar Vogin og Bogmaðurinn koma saman verður útkoman gáfuð tvenning. Vogin leggur til vitsmuni og rökvísi í sambandið, Bogmaðurinn innsæi og orðkynngi. Bæði unna bókum, kennslu og námi, og því er líklegt að þau breyti ástahreiðri sínu í hugmyndaríkan, skemmtilegan skóla þar sem bæði kenna og bæði læra hvort af öðru. Þetta par er í ágætu jafnvægi þar sem Vogin telur sig fremur örvast en vera ógnað af hinum fljóthuga Bogmanni. Og Bogmaðurinn gefur fúslega meira af sjálfum sér í...

Ástin og stjörnumerkin 5 (5 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mey-Steingeit: Jarðbundin sjónarmið og gagnkvæm virðing mynda sterk bönd milli Meyjarinnar og Steingeitarinnar. Bæði þessi merki gæða sambandið hagnýtum hæfileikum og hyggindum sem í hag koma. Bæði eru mjög heimakær. Meyjan finnur fátt gagnrýnisvert í lífsstíl hinnar einbeittu, framgjörnu Steingeitar. Eins dáir Steingeitin hina óþreytandi eljusemi MEyjarinnar og fullkomnunaráráttu. Hvort veitir hinu mjög vel þegna virðingu og viðurkenningu, og full ástæða er til að telja að þetta samband...

Ástin og stjörnumerkin 3 (17 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Naut-Vatnsberi: Þó að þetta par líti heiminn mjög ólíkum augum þá ber svo við öðru hverju að ólík skapgerð þeirra hrífur Nautið og Vatnsberann svo þau ná saman. En þó að sameiginleg festa þeirra geti gefið sambandinu nokkra fyllingu þá gæti eðlislæg gagnkvæm vanþóknun þeirra borið líkamlega aðlöðun ofurliði. Hinn frjálslegi Vatnsberi fúlsar við staðfestunni sem er svo ríkur þáttur í eðli hins öryggisþurfandi Nauts. Og Nautið hefur engin tök á að sannfæra maka sinn um ágæti hinna einföldu,...

Ástin og stjörnumerkin 2 (10 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Naut-Naut: Þetta eru einhver staðföstustu, jarðbundnustu og holdlegustu samböndin. Þegar tvö Naut fella hugi saman er öruggt að sambandið verður jarðfast, þar sem hvor aðili gerir sig ánægðan með að njóta ástar hins og þau sökkva sér í sameiginlega holdlega nautn í kyrrlátu umhverfi heimilisins. Þegar tvö Naut sameinast verður úr því tvíefld, vinnusöm, trygglynd eining, svo tilhneiging Nautsins til afbrýðisemi fær sjaldan tíma til að koma uppá yfirborðið. Nautum hættir til að vera svolítið...

Ástin og stjörnumerkin 1 (21 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hér kemur samanburður á hinum ýmsu merkjum sem þið getið leitað í til gamans :) góða skemmtun: Hrútur-Naut: Milli þessara tveggja merkja ríkir sterk gagnkvæm hrifning; það sem ólíkt er virðist veita sterkan gagnkvæman stuðning og jafnvægi. Hinn eldlegi Hrútur veitir inní sambúðina áhuga og frumkvæði, en Nautið leggur til stöðugleika og ástríðu. Árekstrar hljóta þó að verða. Hin óslitna þörf Hrútsins til að árétta einstaklingseðli sitt, og leit hans að nýjum ævintýrum, ýfir hina eigingjörnu,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok