heitt rúllubrauð

Efni:

1 rúllutertubrauð
1 lítil dós majónes
1 bolli þeyttur rjómi
1/2 bolli rifinn ostur
1 og 1/2 bolli soðin hrísgrjón
250 gr rækjur
1 lítil dós grænn aspas
1-2 tsk aromat
1-2 tsk karrý
2 egg(aðskilin)

Meðhöndlun:

Hrærið saman majónesi,rjóma, eggjarauðum og osti. Þvínæst hrísgrjón og rækjur samanvið. Aspas saxaður og settur í og að lokum kryddið.
Þessu er smurt á rúllutertubotn og það rúllað upp. Að lokum eru eggjahvíturnar stífþeyttar og settar utaná rúllutertubrauðið. Bakað í 200 gráðu heitum ofni, þar til hvíturnar eru gullinbrúnar.