Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Falleg kisa (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fim og fislétt kisa, með fallega,brúna snoppu. Uppáhald er mysa hún hefur eina hvíta loppu. Þrjár loppur svartar, svart er hennar skott. Aldrei hún kvartar, er fær hún dótið flott. Allir að kisu dást, því fær hún mikla ást. Þakklát er hún líka, að fá umhyggjuna ríka.

Árangri náð!!! (0 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú uppskerð eins og þú sáir: Vertu góður við aðra, sýndu áhuga á þeim með því að spyrja um áhugamál þeirra og þeir munu launa þér í sömu mynt. Svona aflar þú vinsælda hvert sem þú ferð. Þegar þú deyrð þá á mest af þessu fólki eftir að fylgja þér til grafar. Klara var óvinsæl í skóla og kenndi öðrum um að vera vonda við sig og skilja hana útundan. Hún klagaði í skólastjórann án þess að gera sér grein fyrir að hún uppgötvaði að það var hún sem var með leiðindi og öll upptök að rifrildum....

hundur og köttur (4 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Á einhver hund sem eltir ekki ketti heldur starir bara allan tímann og liggur í felum eins og hann sé í vígahug. Tíkin mín hún fer ekki út fyrir lóðina. Þetta er eins ef hún sér önnur dýr (nema aðra hunda þá hleypur hún af stað geltandi), hún starir og slefar á fullu. Blikkar ekki einu sinni augunum. Þetta gerir hún þegar hún vill að maður kasti dótinu svo hún geti gripið…starir á dótið á meðan hún liggur í fjarlægð. Einu sinni veltum við fjölskyldan fyrir okkur hvort tíkin okkar væri...

Einskis manns hús í óbyggðum (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Í ryðguðu bárujárni, bjó maður að nafni Árni. Um daginn hvarf hann sporlaust, það var um síðla haust. Skildi dyrnar eftir opnar, svo ekkert húsið vopnar. Allt bramlað og brotið, myglað og rotið. Þrepin skökk, flögnuð lökk. Veggfóður rifið, ekkert heyrist klukkutifið. Dældað teppi og blautt, eitt sinn var það rautt. Nú er það bara bleikt og í gardínum var kveikt. Nú fara þangað rónar, sem ekkert eiga skjól. Siggar,Pallar og Jónar, sem sækja þar sín ból.

We respect life (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Wasn´t it Jesus, who made those masterpieces, the man and the earth and our mother who gave us birth? Earth,air,water and fire, is our God´s desire, that we can admire but our age goes higher and higher. We must respect all life, in case we have no other. Maybe we would never arrive and that wuold be a bother. This one life we have to enjoy, every single girl and boy. God he gave us just one life, it means the life is ONE not FIVE! It´s your choice how you enter, as young soul, old soul or...

SUMARIÐ KÆTIR (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sólin skein í björtum dal, sólin skein í fjallasal. fáir voru skuggar, en margir sólskinsgluggar. Börnin öll í kæti hlógu, kassabíla sína drógu. öll höfðu þau nóg að gera, því um sumarið er mikið um að vera.

Furðusaga (1 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sandra vaknaði einn morguninn með sólskinið beint í andlitið. Glugginn var opinn og það var blíðalogn úti. Hver opnaði eiginlega gluggann? Hún leit ringluð í kringum sig og sá að sjónvarpið hennar var horfið en videoið brotið í spað. Myndirnar héngu skakkar á veggjunum, hundurinn hennar lá eins og meðvitundarlaus á gólfinu (hundur sem átti að kallast varðhundur) og páfagaukarnir báðir horfnir úr búrinu. Það voru innbrotsþjófar í herberginu hennar í nótt!!!!! Hún athugaði hvort hundurinn væri...

störfin okkar (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það yrði mikill léttir, ef ermarnar upp brettir, aðstoðar við störfin, því þeirra er þörfin. Verum ekki löt, því meiri er okkar hvöt, það huga og vöðva styrkir ef mennirnir eru virkir.

Neyðin kennir naktri konu að spinna (1 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sólveig átti engan mann og bjó hjá öldruðum foreldrum sínum. Mamma hennar eldaði oní hana og faðir hennar borgaði reikningana hennar…eða stóran hluta af þeim. Þetta varð til þess að ef foreldrar hennar fóru út úr bænum í viku, gat Sólveig ekki eldað og lifði á óhollum skyndibitum, átti bara skítug föt því hún kunni ekki að þvo þvott, vaskurinn fylltist af leirtaui því aldrei treysti hún sér til að vaska upp og allt var í drasli í íbúðinni þegar foreldrar hennar komu heim. Nú fengu foreldrar...

naggrísir (11 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég veit að þetta er kattasíðan en mig sárvantar ráð: Ég er að passa 2 naggrísi. Það er svo mikið hljóð í þeim og ég veit ekkert hvernig þeim líður þegar þeir “hrína” svona. Líður þeim illa hjá mér? Þeir klára matinn sinn daglega og eru mjög fljótir með vatnið. Þeir hljóta að sakna eigandans, því það heyrist ekki svona mikið í þeim þegar eigandinn er með þá. Þetta eru yndisleg dýr sem eru kyrr í fanginu hjá manni og maður gæti sofnað með þessi mjúku kríli í fanginu og vaknað með þau ennþá í...

sumar (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sumarnóttin björt og hlý, sólin okkar vermir ský. Sumarfríið enn á ný nú allir fá sitt langa frí. Kettir stökkva,hundar hoppa, apinn klifrar,kengúran skoppar en sólin alltaf allt og alla toppar því sumarbrosið hennar aldrei stoppa

Hvíldin (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nóttin hún er ung, dagur vinna þung. hvíldu þig nú meira og lát oss drauma heyra. Draumar taka völdin, líða hratt um eins og öldin. Þú vaknar endurnærður en ringlaður og hrærður.

Tjáning (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það veldur engum skaða, að láta það bara vaða. Láttu orðin flakka, jafnt við fullorðna sem krakka. Þú tjáir þig er lifir, þó þú skjálfir og lifir. Eini sjénsinn í þessu “lævi” er þinn sjéns alla ævi. Svo dauðinn á skellur, tjaldið niður fellur. Ævin er búin og beinin orðin lúin.

Blindur (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
hann er blindur en margt hann skynjar skimar með höndum, þannig hann sig brynjar. hann getur heyrt og finnur lykt hann getur snert og dundað við fikt. Hann á blindrahund, sem er hans nánasti vinur þeir eiga alla tíð stund, líka er eitthvað á dynur.

Arna kjarna-barnapía (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hún Arna kjarna-barnapía hún aldrei óþekkt þurfti að flýja. Hún kunni sko á börnum lagið svo hún fór og kenndi fagið. Börnin gat hún róað er urðu þau æst, aðrar barnapíur hefðu sko hvæst. Arna tók þau í fangið og eftir það hafa þau í henni hangið. Hún gefur ykkur ráð því hún er allsgáð. Allt veit hún Arna því hún er barnapía í kjarna.

Flugurnar (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég heiti Oddljótur, bróðir minn, Oddhvass. Ég er sko steinbrjótur og systir mín, Skass Skass er þvílík frekja þau orð eru sönn. Til ættar má rekja þá frekju í Tönn Já, Tönn kann að bíta, og hún bítur fast! og vængina slíta, þá fyrst fær hún kast. Geðveiki í ætt okkar það er vægast sagt en “rólegir ættflokkar”: í okkar ætt var aldrei lagt.

Höfnun (2 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hún fékk neikvætt svar frá Listaháskólanum. Hún gerði sig fyrirfram undirbúna til að taka hvaða svari sem var frá þessum skóla sem hana dreymdi lengi um að komast í. Hún lifði og hrærðist í listum frá blautu barnsbeini og var farin að vera bjartsýn um jákvætt svar þegar henni var tekið inn í viðtal og inntökupróf. Allt tók þetta sinn tíma og dagarnir liðu mishratt og mishægt þangað til svörin birtust. Það fór mikil vinna í undirbúning til að þóknast þessum bráðvinsæla skóla og samkeppnin í...

spjallrás (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvað varð um ykkur öll? Heyrið þið ei hróp og köll? Á spjalli er ei sálu að sjá, nú öskra ég:“Hvað gengur á?” Ég veit sumir eru feimnir og aðrir frekar spakir ýmsir eru gleymnir hinir eru stakir Komið nú á spjallið það ætti ekki að skaða í tómar eyður fallið og það má í allt vaða spjöllum um daginn og veginn, spjöllum um heima og geima ég yrði svo dauðsfegin að þurf´ei að spjalla ein heima Til þess er rásin, til spjallsins gerð komið nú í básinn þangað er stutt ferð
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok