Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Superbia
Superbia Notandi síðan fyrir 20 árum, 7 mánuðum Karlmaður
368 stig

Nornin, 7. kafli (5 álit)

í Smásögur fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Fyrsti hluti „Bókin!“ skrækti Dagný allt í einu. Þau stoppuðu og Sindri leit á hana með spurnarsvip. „Ég glemdi galdrabókinni. Á bókasafninu.“ Sindri hugsaði sig um í smástund og svaraði svo; „við skiljum hana eftir. Ég er með eina galdurinn sem við þurfum í vasanum.“ Hann stakk hendinni í vasann, til að vera viss, og fann fyrir samanbrotnum miðanum. -„OK…“ svaraði Dagný, rólegri. Hún leit í kringum sig. „Ég sé hana ekki. Helgu. Heldurðu að hún sé að elta okkur?“ -„Hún og fleiri. Bæði SSL og...

Nornin, 6. kafli - Helga (2 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum
Fyrsti hluti „Hjálpaðu mér,“ sagði Helga og tók um lappirnar á Sindra. Dagný lyfti á móti. „Upp á borðið.“ Þær létu hann varlega á skrifborð Helgu. „Hvað gerðist?“ -„Ég…“ Dagný hugsaði til þess sem Sindri hafði sagt, Samtökin eru ekki þekkt fyrir að gefa sénsa. „Hann… bara…,“ byrjaði hún. -„Mér sýnist hann hafa klárað galdramáttinn sinn.“ Helga tók fram lykil og opnaði eina af læstum skúffum skrifborðsins. Þaðan tók hún upp litla flösku, hálffulla af ljósbláum vökva. „Færðu þig,“ sagði hún...

Nornin, 5.Kafli - Flóttinn (6 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum
Fyrsti hluti Dagný skreið að Sindra þar sem hann lá, ennþá meðvitundarlaus, á gangstéttinni. „Sindri,“ hún hristi hann, „Sindri…“ Hún lagði eyrað að munni hans og hlustaði eftir andardrættinum, sem var orðinn sterkur og stöðugur. Hún stóð upp og dustaði af sér rykið. Í fjarska heyrði hún í sírenum en göturnar umhverfis hana og Sindra voru auðar. -„Dagný…“ sagði Sindri veiklulega. Dagný settist niður á hnén við hlið hans og strauk honum um ennið. -„Hvernig líður þér?“ spurði hún blíðlega....

Samkynhneigð... (197 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum
Svo virðist sem greinar um samkynhneigð fá alltaf mikla athygli þannig að ég ákvað að skrifa eina. Ég hef aldrei heyrt nein góð rök fyrir því af hverju samkynhneigð er slæm. Margir nota trúna sem afsökun fyrir hommahatri og aðrir segja að það sé einfaldlega ónáttúrulegt (http://youtube.com/watch?v=sTXabN1pnZY). Helsta ástæðan fyrir fordómum gegn samkynhneigðum er samt sú að fólk hræðist það sem er öðruvísi. Þetta er samt allt að breytast. Ég segi hommahatur hérna að ofan af því að það er svo...

Nornin, 4.Kafli - Myrkranornin (2 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum
Fyrsti hluti Fyrsti hluti „Stoppaðu,“ Dagný náði varla andanum, „Sindri.“ Hún grét stjórnlaust. Sindri faðmaði hana að sér. -„Við verðum að halda áfram.“ Hún ýtti honum frá sér. -„Allt þetta fólk,“ hún þurrkaði sér um augun, „var það…“ -„Dagný…“ Honum datt ekkert í hug sem hann gæti sagt til að hugga hana. „Við verðum að halda áfram.“ Hann gekk af stað. Þau voru búin að hlaupa í um 20 mínútur en það leit ekki út fyrir að myrkranornin væri að elta þau. Hún mun ná okkur. -„Var það öskrið?“...

Nornin, 3. kafli - Svartagaldur og töfrabrögð (5 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 1 mánuði
Fyrsti hluti Myrkranornir: nornir sem stunda svartagaldur. Þær leitast við að auka galdramátt sinn m.a. með því að drepa aðrar nornir og stela kröftum þeirra. ATH! Svartagaldur er með öllu bannaður innan SLL og mun hver sá sem hann stundar sæta hæstu refsingu, þ.e. líftiðarfangelsun eða dauða. „Hvað er svartagaldur?“ spurði Dagný og stafirnir í upplýsingabókinni endurröðuðu sér. Svartagaldur: töfrar sem hafa neikvæð áhrif á þann sem notar þá. Við notkun þeirra spillist sál viðkomandi nornar....

Nornin, 3. kafli - Svartagaldur og töfrabrögð (3 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 1 mánuði
Fyrsti hluti Myrkranornir: nornir sem stunda svartagaldur. Þær leitast við að auka galdramátt sinn m.a. með því að drepa aðrar nornir og stela kröftum þeirra. ATH! Svartagaldur er með öllu bannaður innan SLL og mun hver sá sem hann stundar sæta hæstu refsingu, þ.e. líftiðarfangelsun eða dauða. „Hvað er svartagaldur?“ spurði Dagný og stafirnir í upplýsingabókinni endurröðuðu sér. Svartagaldur: töfrar sem hafa neikvæð áhrif á þann sem notar þá. Við notkun þeirra spillist sál viðkomandi nornar....

Nornin, 2. kafli - Bókin (11 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Fyrsti hluti Dagný vaknaði daginn eftir við það að maginn hennar öskraði af hungri. Þegar hún fór á fætur, tók hún eftir því að hún var enn í fötunum frá kvöldinu áður og allt rifjaðist upp fyrir henni. Hvað í andskotanum gerðist?… ég var bara þreytt. Í raun neitaði hún bara að trúa því sem gerðist og hún vissi það líka. En það var auðveldara svoleiðis. Á leiðinni fram í eldhúsið rak hún augun í bókina sem lá á borðstofuborðinu. Hún settist í sófann og tók bókina í fangið. Hún byrjaði að...

Nornin - 1. kafli (4 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Fyrsti hluti Dagný leit upp á bókasafnsvörðinn, eldri konu með gleraugu og dökkt krullað hár. Hún opnaði og lokaði augunum til skiptist eins og hún væri að berjast við að halda sér vakandi. Dagný leit á úrið sitt. Klukkan var hálf sjö. Bókasafnið hefði átt að loka fyrir hálftíma síðan en hún hafði ákveðið að vera eins lengi og hún gat. Það var eins og öðruvísi þögn á bókasafninu en annars staðar og svo var hún alveg að verða búin með bókina sem hún var að lesa. Hún sneri sér aftur að bókinni...

Einn (5 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Á fyrsta deginum á nýju ári geng ég niður ganginn í skólanum. Klukkan er rétt orðin 8 og það er enn dimmt úti. Ég ætti að vera þreyttur en ég er það ekki. Ég er spenntur, kvíðinn fyrir fyrsta tímanum. Að hluta til af því að ég veit að Anna verður þar. Eða það held ég allavega. Fyrsti tíminn er stærðfræði og við höfum alltaf verið í stærðfræði saman. Ég geng inn í næstum auða stofuna. Ég er frekar snemma en kennarinn er mættur og þrír aðrir nemendur sem ég þekki ekki. Ég sest í autt sæti...

Vinkonur, 5. kafli (2 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 4 mánuðum
„Verður ekki örugglega í lagi með þig?“ spyr mamma. -„Jú,“ svara ég og brosi. Alvöru brosi. „Ég er búin að jafna mig. Það er bara búið að vera svo mikið í gangi…“ -„Ég veit,“ segir hún. Röddin hennar er huggandi og mér finnst ég örugg á ný. „Ég man hvernig það er að vera unglingur.“ Við horfumst í augu í smástund og hún faðmar mig svo. „Jæja, við erum þá farin.“ Ég fer fram og kveð pabba líka. „Á ég ekki að koma?“ spyr Linda í símanum. Það er áhyggjutónn í röddinni hennar. -„Nei, í alvöru,...

Vinkonur, 4. kafli (2 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 4 mánuðum
„Verður ekki örugglega í lagi með þig?“ spyr mamma. -„Jú,“ svara ég og brosi. Alvöru brosi. „Ég er búin að jafna mig. Það er bara búið að vera svo mikið í gangi…“ -„Ég veit,“ segir hún. Röddin hennar er huggandi og mér finnst ég örugg á ný. „Ég man hvernig það er að vera unglingur.“ Við horfumst í augu í smástund og hún faðmar mig svo. „Jæja, við erum þá farin.“ Ég fer fram og kveð pabba líka. „Á ég ekki að koma?“ spyr Linda í símanum. Það er áhyggjutónn í röddinni hennar. -„Nei, í alvöru,...

Vinkonur, 4. kafli (3 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég hrindi upp hurðinni þannig að hún skellur í veginn. Ég geng síðan hörðum skrefum inn í herbergið mitt og hendi veskinu frá mér út í horn. „Lára…“ byrjar Linda en segir svo ekkert meira. Ég finn reiðina dofna þannig að ég öskra til að reyna að halda í hana. Ég vil ekki að hún hverfi. En hún gerir það hægt og rólega og hræðsla tekur yfir. Ég fer upp í rúm og skríð undir sængina. Linda leggst hjá mér og faðmar mig. Ég byrja að gráta. Fyrst rólega með nokkrum tárum en ég ræð ekki við mig og...

Vinkonur, 3. Kafli (3 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Heimurinn snýst í nokkra hringi en verður svo aftur stöðugur. Ég er dofin í andlitinu en ég finn púlsinn inni í hausnum á mér, ég finn heitt blóðið pumpast um æðarnar. Ég reyni að halda jafnvæginu en dett næstum því. Reynir grípur mig og ég missi vodkaflöskuna á dökkblátt teppið. Hún brotnar ekki en afgangurinn lekur úr henni þannig að blettur myndast á teppinu. Allt í einu fjarlægist ég teppið en ég stari ennþá á það. Reynir dregur mig inn í herbergið hennar Lindu og ýtir mér að rúminu. Ég...

Vinkonur, 2. kafli (4 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Það er kominn miðvikudagur. Linda hefur ekki talað við mig í tvo daga og ég er strax að missa vitið yfir því. Ég hef þekkt hana síðan í þriðja bekk og við höfum verið bestu vinkonur síðan. Ég ætla ekki að láta einhvern strák eyðileggja það. Síðan á mánudaginn hefur rignt og svo er komið frost aftur þannig að gangstéttin er eitt stórt svell. Ég finn ennþá til í mjöðminni þegar ég labba en það er ekkert alvarlegt, bara smá bólga. Ég hef ekkert séð Lindu í skólanum en það er ekkert skrýtið ef...

Vinkonur, 1. kafli (7 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég og Linda göngum niður Laugarveginn á sólríkum sunnudegi í september. Klukkan er orðin hálf sex og við erum á leiðinni í strætóskýli. -„Ætlarðu að kaupa peysuna?” spyr Linda. -„Æ, nei, veistu, mig langar ekki lengur í hana,” svara ég. Ég er fegin að hafa ekki keypt hana. Allt í einu skrækir Linda og hleypur niður eftir gangstéttinni. Hún hoppar upp í fangið á strák sem grípur hana. Hún heldur um hálsinn á honum, með fæturna vafðar um hann og kyssir hann. Hann heldur um rassinn á henni og...

Kötturinn (10 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Hann opnar og lokar augunum til skiptis. Mér finnst eins og hann horfi beint á mig en sjái mig ekki því hann sér í gegnum mig. Hann sér lengra. Ég tala við hann og eyrun kippast til. Hann horfir beint í augun á mér. Hún er sterk sé ég. Sterkari en mín. Augun eru gluggar að sálinni. Ég hef séð sál kattarins… Ég renn niður úr rúminu á gólfið, með sængina með mér. Þar ligg ég í nokkrar mínútur með augun lokuð en ég get ekki sofnað. Á endanum rúlla ég mér á magann og ýtir mér upp. Þyngdaraflið...

Rangt (7 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 10 mánuðum
„Hvað er að,“ spyr hún þegar hann hættir að kyssa hana. -„Æ, ekkert,“ svarar hann og fer að kyssa á henni hálsinn. Svo hættir hann aftur. „Þetta gengur ekki lengur,“ segir hann svo og ýtir henni frá sér. -„Hvað meinarðu?“ spyr hún, ringluð og særð á svipinn. -„Hvað erum við búin að vera lengi saman,“ spyr hann svo og leggst á bakið. -„3 ár… næstum því,“ svarar hún og tár myndast í auganu hennar sem lekur svo niður kinnina.Henni fannst þetta vera og auðvelt fyrir hann. -„Þú veist jafnvel og...

Leyndarmál (15 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 10 mánuðum
„Þetta var örugglega ekki alvöru ást,“ skrifaði ég rétt áður en bankað var á hurðina. Ég lokaði dagbókinni og hljóp til dyra í von um að setningin sem ég var að enda við að skrifa væri röng… Þriðjudagur 6.mars 2007: Dagurinn byrjaði eins og hver annar þriðjudagur á leiðinlegum íslenskutíma með tilgangslausu upplýsingaflóði um bókmenntasögu. Það var svo í fyrstu frímínútunum sem ég sá hann. Ég sat bara með Beggu og Lindu inni í matsalnum þegar hann settist við borðið rétt hjá okkur. Hann var...

Óli litli og Herra Snigill (7 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég var á leiðinni heim á fallegum fimmtudegi í byrjun maí þegar Skúli kom hlaupandi til mín. „Komdu, Óli,“ kallaði hann til mín, „við vorum að finna svolítið magnað.“ „Æ, ég er eiginlega að drífa mig heim,“ svaraði ég. Mamma var að fara að versla föt á mig og ég þurfti að koma með til að máta. „Þú verður samt að sjá þetta, komdu!“ Hann togaði í ermina á mér þar til ég elti hann en þá hljóp hann af stað. Hann hljóp yfir götuna og inn milli grænu húsanna, þar sem við lékum okkur alltaf í...

Tómleiki (5 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum
Ég slekk ljósið en ljósastaurinn fyrir utan gluggann gefur herberginu skuggalega ásýnd. Ég leggst svo í rúmið á loka augunum. Hún nálgast herbergið, ég finn sígarettulyktina. Hún tekur í hurðarhúninn og opnar þannig að það ískrar. Eitthvað sem ég ætlaði alltaf að laga. „Ég er búin að pakka,“ segir hún. Ég svara ekki en orð hennar hringsnúast um heilann á mér. Það er ekki vottur af tilfinningum í rödd hennar. „Pappírarnir eru frammi í eldhúsi. Ég er búin að skrifa undir. Gvendur er á leiðinni...

Myrkur (1 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Bærinn er heillandi í myrkrinu. Það eru engir bílar á ferð og næstum heldur enginn gangandi. Það er líka kalt úti. Fyrsta frost vetrarins. Ég hef alltaf verið hrifnari af nóttunni en deginum og af vetrinum en sumrinu (af því að þá eru næturnar lengi). Maður getur nefnilega gert hvað sem er þegar enginn sér mann. Ég trúi því varla að það hafi bara verið fyrir tveimur mánuðum sem ég sagði pabba að ég væri ólétt. Hann varð alveg brjálaður. Ég er líka bara 15 ára. Allt líf mitt er ónýtt af því...

Kæra Dagbók (9 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Sara Ósk Friðriksdóttir. Og þá sá hann hana, þegar hún svaraði kennaranum. Hún sat bara tveimur sætum frá honum en samt hafði hann ekki tekið eftir henni fyrr. Hún var fallegasta stelpan sem hann hafði nokkurn tímann séð. Kæra Dagbók (08.01.07 ritað kl. 22:01). Ég sá fullkomna stelpu í dag. Hún heitir Sara og er með mér í líffræði. Eftir að ég sá hana gat ég ekki hætt að stara á hana og þegar hún leit á mig á móti sá ég það í augunum hennar að hún þráði mig jafn mikið og ég þrái hana. Við...

Söknuður e. Jóhann Jónsson (1 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Hérna er nýrómantískt ljóð eftir jóhann Jónsson sem mér finnst virkilega fallegt: Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað, og ljóðin, er þutu um þitt blóð frá draumi til draums, hvar urðu þau veðrinu að bráð, ó barn, er þig hugðir borið með undursamleikans eigin þrotlausan brunn þér í brjósti, hvar? Við svofelld annarleg orð, sem einhver rödd lætur falla á vorn veg - eða að því er virðist vindurinn blæs gegnum strætin, dettur oss, svefngöngum vanans, oft drykklanga stund dofinn úr...

Saga frá Sólblóminu (4 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ömurlegur titill, ég veit það, en sagan kemur sólblómum ekkert við. Ég heyrði hana frá konu sem vinnur á Sólblóminu sem er svona frístundarheimili fyrir krakka. Ég mundi ekki nákvæmlega hvernig hún var enda heyrði ég hana fyrir 10 árum þannig að ég skáldaði í eyðurnar… Við lágum öll í sama rúminu. Eftir að pabbi missti vinnuna og við þurftum að selja húsið höfðu við búið í þessari litlu tveggja svefnherbergja íbúð. Mamma var löngu sofnuð inni hjá sér en ég lá andvaka við hlið Siggu og Telmu,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok