Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

yngvi
yngvi Notandi síðan fyrir 20 árum, 9 mánuðum Karlmaður
2.154 stig

Kastljósið: mooN (12 álit)

í Half-Life fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég og mooN erum ágætir félagar. Við smellum okkur af og til á KFC, og við gerðum það í liðinni viku og ég ákvað að leggja fyrir hann nokkrar spurningar. Þess má til gamans geta að hann er aumingji því að hann gat ekki klárað burgerinn sinn.. :) Sæll viltu gerast svo vænn að kynna þig fyrir lesendum? Hæbb, ég heiti Egill Árni Sigurjónsson og ég spila undir nickinu moon. Ég er í morTal-action. Ég er 16 ára og ég stunda nám við Menntaskólann í Kópavogi. Hvað hefurðu spilað Counter-Strike lengi...

Kastljósið: sPiKe (18 álit)

í Half-Life fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Margir hafa velt því fyrir sér hvað sé í gangi hjá ice þessa dagana eftir að þeir töpuðu óvænt fyrir Drake í úrslitum Skjálfta. Óvænt? segja eflaust margir, en þetta segi ég í ljósi þess að margir, og ef ekki flestir, spáðu því að ice myndu bera Drake ofurliði. Til þess að svala spurningaþorsta ykkar þá bjallaði ég í aðal manninn í ice, engan annan en sPiKe. Við fengum okkur beikonbát á Nonnabita og spjölluðum saman. Undirritaður: Sæll Birgir. Viltu gerast svo vænn og kynna þig fyrir...

Kastljósið: Cyberian (19 álit)

í Half-Life fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég ákvað að mæla mér mót við Frey sem spilar undir nickinu Cyberian. Freyr ásamt félögum sínum í heitasta spútnik clani landsins, running with scissors, stóðu sig eins og hetjur á nýafstöðnum Skjálfta. Þar lentu þeir í 3 sæti og slóu út lið á borð við GEGT1337 og 1988. Ég og Freysi fengum okkur heitt kakó og kleinur og hérna er afraksturinn. Undirritaður: Sæll Freyr. Viltu gerast svo vænn og kynna þig fyrir lesendum huga? Cyberian: Já, ég heiti Freyr Sigurðsson og hef spilað Counter-Strike í...

Manchester United 0 - 0 Everton (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Manchester United og Everton skildu markalaus eftir frekar bragðdaufan og leiðinlegan leik. Everton áttu að geta fengið hugsanlega 1-2 vítaspyrnur í leiknum en dómarinn sá enga ástæðu til þess að dæma víti. Markramminn bjargaði Everton 2 sinnum að minnsta kosti, og átti Alan Smith gott skot í stöngina ásamt Cristiano Ronaldo, sem skipt var útaf í seinni hálfleik. Lið Manchester United Howard, G.Neville, O'Shea, Silvestre, Spector, Fletcher, Kléberson, Ronaldo, Scholes, Saha, Smith. Ónotaðir...

Rooney mjög líklega til Man. Utd. (27 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Heitasta ungstirnið í enska boltanum í dag, Wayne Rooney, gengur að öllum líkindum til liðs við Manchester United á næstu dögum. Ástæðan er sú að Manchester United virðast hafa yfirboðið Newcastle um þennan frábæra leikmann en athugið að ekkert er staðfest. David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins og fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur sagt honum að það besta í stöðunni sé að fara til Manchester. Ástæðan sé einföld - Sir Alex Ferguson. Peter Schmeichel, fyrrverandi leikmaður...

Robson ekki sáttur við Bellamy (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Sir Bobby Robson, stjóri Newcastle United, hefur heldur betur verið í sviðsljósinu undanfarna daga. Tímabilið byrjaði á því að Freddy Sheperd, forstjóri félagsins, gaf það út að þetta yrði seinasta leiktíð Robson hjá Newcastle. Sá gamli var að sjálfsögðu hundsvekktur en ætlar þó ekki að láta þetta skemma fyrir sér leiktíðina. Núna fyrir stuttu bauð Robson 20 milljónir punda í ungstirnið Wayne Rooney, sem leikur með Everton, en Robson telur að Rooney yrði fullkominn eftirmaður Shearer sem...

Dregið í riðla Meistaradeildarinnar. (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Nú fyrir skömmu var dregið í riðlana í Meistaradeild Evrópu sem eins og allir vita, fer fram í vetur. Drátturinn raðaðist á þennan veg. Riðill A: Deportivo Liverpool AS Monaco Olympiakos Riðill B: Real Madrid AS Roma Bayern Leverkusen Dynamo Kiev Riðill C: Bayern Munchen Juventus Ajax Maccabi Tel-Aviv Riðill D: Manchester United Lyon Sparta Prague Fenerbahce Riðill E: Arsenal Panathinaikos PSV Eindhoven Rosenborg Riðill F: Barcelona AC Milan Glasgow Celtic Shakhtar Riðill G: Valencia Inter...

Manchester United á eftir Rooney (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Opinber heimasíða Manchester United, ManUtd.com, hefur staðfest það að félagið hafi boðið 20 milljónir punda nú fyrr í kvöld í Wayne Rooney, sóknarmann Everton. Tilboðið hlýtur að vera frekar sérstakt þar sem Everton neituðu svipuðu boði frá Newcastle United fyrr í vikunni. Sir Alex Ferguson hefur oft lýst yfir hrifningu sinni á þessum frábæra sóknarmanni og telur hann að ungstirnir eigi eftir að styrkja sóknarlínuna enn frekar og sérstaklega þegar marga lykilmenn liðsins vantar vegna...

Rooney til Newcastle United? (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Bobby Robson, framkvæmdarstjóri Newcastle United, segist staðráðinn í því að fá ungstirnið Wayne Rooney til félagsins. Robson segist þess fullviss um að Rooney sé hinn fullkomni arftaki fyrirliðans Alan Shearer sem leggur skónna á hilluna eftir þetta leiktímabil. Newcastle buðu 20 milljónir sterlingspunda í leikmanninn fyrir nokkrum dögum en því var neitað strax. Greinilegt er að það er töggur í gamla þar sem hann er búinn að bjóða 22 milljónir í stráksa og ef því verður neitað þá ætlar hann...

Úrslit dagsins. (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
2 leikir voru á dagskrá í dag og við skulum fara yfir stöðu mála. WBA 1 - 1 Aston Villa 1-0 Olof Mellberg ‘4 1-1 Neil Clement ’38 Arsenal 5 - 3 Middlesbrough 1-0 Thierry Henry ‘25 1-1 Joseph Desire-Job ’43 1-2 Jimmy Floyd Hasselbaink ‘50 1-3 Franck Queudrue ’53 2-3 Dennis Bergkamp ‘54 3-3 Robert Pires ’65 4-3 Jose Antonio Reyes ‘66 5-3 Thierry Henry ’90

Tekur Strachan við af Berti Vogts? (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Fyrrverandi miðvallarleikmaður Manchester United og stjóri Southampton, Gordon Strachan, hefur viðurkennt það opinberlega að það kitli hann í fingurna að hugsa til þess að stjórna skoska landsliðinu. Strachan, sem spilaði 50 landsleiki fyrir Skota og skoraði í þeim 5 mörk, stjórnaði Southampton mestallt seinasta tímabil þangað til hann vék fyrir Sturrock þar sem hann vildi hvíla sig á boltanum. Skotinn rauðhærði, sem eitt sinn var kóngur í ríki sínu á miðju Man. Utd., er alveg viss um að...

Everton næsta Rússaveldið? (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Enskir fjölmiðlar vilja statt og stöðugt halda því fram að rússneskur auðkýfingur vilji kaupa 40% hlut í knattspyrnuliðinu Everton. Talið er að þessi auðkýfingur, sem heitir Boris Zingarevich, vilji kaupa liðið og setja u.þ.b. 25 milljónir punda í leikmannakaup. Auðkýfingurinn á fjöldan allan nóg af peningum en er þó langt frá Roman Abramovich, eiganda Chelsea, í þeim efnum. Zingarevich á þó ekki að vera einn á bakvið þetta en bróðir hans á einmitt að vera með honum.

Úrslit dagsins. (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Við skulum líta yfir úrslit dagsins. Southampton 3 - 2 Blackburn - 1-0 Kevin Philips ‘32 - 1-1 Barry Ferguson ’50 - 1-2 Paul Dickov ‘68 - 2-2 Anders Svensson ’74 - 3-2 James Beattie '90 víti Birmingham 0 - 1 Chelsea - 0-1 Joe Cole '68 Charlton 2 - 1 Portsmouth 1-0 Jason Euell ‘23 1-1 Patrik Berger ’53 2-1 David Unsworth '87 sjálfsmark Crystal Palace 1 - 3 Everton 1-0 Mark Hudson ‘9 1-1 Thomas Gravesen ’19 víti 1-2 Thomas Gravesen ‘62 1-3 Marcus Bent ’82 Fulham 2 - 0 Bolton 1-0 Andy Cole ‘5...

Carrick til Tottenham. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Michael Carrick er genginn til liðs við Tottenham. Margir voru farnir að komast á þá skoðun að þessi frábæri miðjumaður myndir ekki fara frá West Ham enda voru Hammrarnir búnir að neita mörgum boðum í leikmanninn. Carrick hefur spilað 2 landsleiki með Englandi og haugan allan af leikjum með West Ham, en c.a. 150 talsins. Það er greinilegt að Santini, stjóri Tottenham, ætlar sér stóra hluti með liðið enda er hann búinn að vera að styrkja liðið af fullum mætti í sumar. Tottenham eiga mikinn...

Ísland - Ítalía (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Í dag fer fram vináttuleikur Íslands og Ítalíu í Laugardalnum. KSÍ eru að reyna eftir fremsta megni að slá núverandi aðsóknarmet Laugardalsvallar sem var sett 18. september 1968 í leik Vals og Benfica. Búist er við skemmtilegum leik og hefst hann kl 19:15 stundvíslega eftir nokkur góð og skemmtileg skemmtiatriði. Lið Íslands - Árni Gautur Arason, Vålerenga - Birkir Kristinsson, ÍBV - Hermann Hreiðarsson, Charlton - Pétur Marteinsson, Hammarby - Ívar Ingimarsson, Reading - Kristján Örn...

Leikir dagsins. (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Núna eru búnir 7 leikir af fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Einn leikur er eftir í dag og er það leikur Middlesbrough og Newcastle United sem fram fer á heimavelli Middlesbrough, Riverside. Við munum koma með nánari umfjöllun um þann leik um leið og honum líkur. <a href="http://www.hugi.is/knattspyrna/bigboxes.php?box_id=73148&action=cp_grein&cp_grein_id=2480">Sjá umfjöllun um leik Tottenham - Liverpool</a> Aston Villa 2 - 0 Southampton 1-0 Vassell (12) 2-0 Cole (34) Blackburn 1 - 1...

Zidane hættur með landsliðinu. (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hinn 32 ára gamli snillingur Real Madrid, Zinedine Zidane, er hættur að leika með franska landsliðinu. Þetta tilkynnti hann í dag og þá búinn að slást í hópinn með Desailly, Thuram og Lizarazu sem eru einnig búnir að leggja landsliðsskónna á hilluna. Zidane vann til ótal margra afreka með liðinu og má mestmegnis þakka honum fyrir það enda var hann oftar en einu sinni valinn besti knattspyrnumaður veraldar.

Francis Jeffers til Charlton (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Það er greinilegt að það sé metnaður í Alan Churbisley en kallinn hefur keypt tvo góða leikmenn á skömmum tíma. Fyrst keypti hann Danny Murphy frá Liverpool og svo núna fyrir stuttu þá bárust fregnir af því að Francis Jeffers sé kominn á The Valley. Kaupverðið er talið vera 2.6 milljónir punda en leikmaðurinn hefur ekki fengið að spila sem skyldi með Arsenal. Á seinustu leiktíð var leikmaðurinn lánaður til Everton og svo missti hann númerið sitt, 9, til Jose Reyes sem keyptur var til liðsins...

Úrslit 3 umferðar Meistaradeildar Evrópu. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Fyrri leikir 3. umferðar Meistaradeildarinnar fór fram í gær og í fyrradag. Seinni leikir þessarar umferðar verða svo leiknir eftir hálfan mánuð en við skulum líta á úrslitin. Þriðjudagurinn 10. ágúst 2004 CSKA Moscow 2 - 1 Rangers Dynamo Kiev 1 - 2 Trabzonspor PAOK Salonika 1 - 2 Maccabi Tel-Aviv Graz AK 0 - 2 Liverpool Benfica 1 - 0 Anderlecht Juventus 2 - 2 Djurgarden Miðvikudagurinn 11. ágúst 2004 Shakhtar Donetsk 4 - 1 Club Brugge Ferencvaros 1 - 0 Sparta Prague Bayer Leverkusen 5 - 0...

Michael Owen til Real Madrid? (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Spænskir fjölmiðlar fullyrða það að framherji Liverpool og enska landsliðsins, Michael Owen, sé á leiðinni frá félaginu til risanna á spáni, Real Madríd. Mörg verð hafa verið nefnd í tengslum við þetta og þá ber helst að nefna 10 milljónir punda alveg upp í 20 milljónir punda. Orðrómur hefur líka verið í gangi um að Fernando Morientes eða Samuel Etoo fari upp í kaupverðið en það er talið afar fjarstætt. Morientes var á dögunum bendlaður við Manchester United en framlínan þar á bæ er afara...

Danny Murphy til Charlton. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Danny Murphy, sem neitaði Tottenham á dögunum, er genginn til liðs við lærisveina Alan Churbisley, Charlton Athletic. Kaupverðið er talið vera 2.5 milljónir punda og skrifaði þetta miðjumaður undir fjögurra ára samning en Murphy kom til Liverpool frá Crewe Alexandra árið 1997.

Kezman sleppur við leikbann. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Eins og við greindum hérna frá fyrir nokkrum dögum, þá var Mateja Kezman, framherji Chelsea, dæmdur í þriggja leikja bann fyrir ófagmannlega framkomu þegar hann réðst að Oliver Dacourt í æfingarleik Chelsea og Roma í Bandaríkjunum. Framherjinn var dæmdur í 3 leikjabann sem átti að hefjast 17 ágúst en núna var hann hreinsaður af ásökununum.

Ole Gunnar Solskjær frá allt tímabilið. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Versta martröð Sir Alex Ferguson hefur orðið að veruleika. Norski töframaðurinn, Ole Gunnar Solskjær, verður frá allt þetta tímabilið sökum þess að hnéð hans er mikið laskað og þarf hann að fara í aðgerð sem gæti gert það að verkum að hann yrði frá í heilt ár. Þetta eru vond tíðindi fyrir Ferguson og náttúrulega leikmanninn sjálfan en getgátur hafa verið uppi um að þessi norski snillingur ætli að leggja skóinn á hilluna. Ferguson þarf að huga að löngum meiðslalista United en leikmenn á borð...

Danny Murphy á leið frá Liverpool (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Danny Murphy, hinn krúnurakaði miðjumaður Liverpool, er á leið frá liðinu. Murphy kom útaf fundi með Rafael Benitez fyrir nokkrum dögum og tók í höndina á liðsfélögum sínum og þakkaði þeim fyrir samfylgdina undanfarin ár. Talið var að Tottenham Hotspurs myndu festa klærnar sínar í leikmanninn en annað hefur komið upp á daginn. Leikmanninum var ekki lofað föstu byrjunarliðssæti sem gerði það að verkum að hann hefur ekki áhuga á að ganga til liðs við Lundúnaliðið.

Arsenal unnu Man. Utd. í Samfélagsskyldinum. (10 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Leikurinn í dag var ekki ýkja skemmtilegur fyrr en í seinni hálfleiknum. Fyrri hálfleikur endaði 0-0 og var hann frekar daufur en þó sýndi Thierry Henry, framherji Arsenal, mörg snilldar tilþrif sem gaman var að horfa á. Gilberto kom Arsenal yfir eftir frábært spilerí í gegnum vörn United. Alan Smith jafnaði metin síðan og svo skoraði Reyes flott mark fyrir Arsenal og staðan orðin 2-1. Svo varð Mikael Silvestre fyrir því óláni að skora sjálfsmark þannig að leikurinn fór 3-1 og Arsenal menn...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok