Hinn 32 ára gamli snillingur Real Madrid, Zinedine Zidane, er hættur að leika með franska landsliðinu. Þetta tilkynnti hann í dag og þá búinn að slást í hópinn með Desailly, Thuram og Lizarazu sem eru einnig búnir að leggja landsliðsskónna á hilluna. Zidane vann til ótal margra afreka með liðinu og má mestmegnis þakka honum fyrir það enda var hann oftar en einu sinni valinn besti knattspyrnumaður veraldar.