Danny Murphy, hinn krúnurakaði miðjumaður Liverpool, er á leið frá liðinu. Murphy kom útaf fundi með Rafael Benitez fyrir nokkrum dögum og tók í höndina á liðsfélögum sínum og þakkaði þeim fyrir samfylgdina undanfarin ár.

Talið var að Tottenham Hotspurs myndu festa klærnar sínar í leikmanninn en annað hefur komið upp á daginn. Leikmanninum var ekki lofað föstu byrjunarliðssæti sem gerði það að verkum að hann hefur ekki áhuga á að ganga til liðs við Lundúnaliðið.