Francis Jeffers til Charlton Það er greinilegt að það sé metnaður í Alan Churbisley en kallinn hefur keypt tvo góða leikmenn á skömmum tíma. Fyrst keypti hann Danny Murphy frá Liverpool og svo núna fyrir stuttu þá bárust fregnir af því að Francis Jeffers sé kominn á The Valley.

Kaupverðið er talið vera 2.6 milljónir punda en leikmaðurinn hefur ekki fengið að spila sem skyldi með Arsenal. Á seinustu leiktíð var leikmaðurinn lánaður til Everton og svo missti hann númerið sitt, 9, til Jose Reyes sem keyptur var til liðsins síðastliðinn janúarmánuð.