Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: Heartbreak

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
er lífið ekki bara um að gleðja stráka!?!….djö….!!! Ljóðið er ágæt útrás, tilfinningar þína skína skært í gegn….byrjun 3. erindis góð….xaxa rím, verð ekki var við ljóðstafi, hrynjandi annars ágætur, einfalt myndmál en skýrt,ágætis ljóð en umfram allt aðallega útrás….ertu viss um að lífið gangi ekki út á að gleðja stráka!?

Re: Eitt Lítið Hjarta............!

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
ágætlega gert….ég næ samt ekki alveg utan um línuna….,,enn litla hjartað veit að þegar það er farin líður öllum vel….en ljóðið er ágæt frásögn…..skilur lesandann eftir í lausu lofti….

Re: Stunga í hjartað!!

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
´…en hugsanir mínar kroppa í hin gömlu sár…..frábær mynd, virkilega flott

Re: ÁSTIN!!!!!!!!!

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
skemmtileg skilgreining á ást…..gaman að þessu

Re: Á ljósum

í Smásögur fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Gallinn er bara sá að slíkur raunveruleiki er svo langt frá okkur. Við erum ekki vanir að sjá blóð, ofbeldi og kynlíf í þeirri mynd sem þú lýsir eftir. Reyndar hefur einn íslenskur höfundur tekið svolítið á því og það er Steinar Sigurjónsson. Mætti ég í því samhengi benda þér á að lesa ,,Blandað í svartan dauðann". Það er yfir leitt sagt við upprennandi rithöfunda að þeir skrifi um raunveruleika sem að þeir þekkja, ef að farið er langt út frá því er hætta á að sköpun þeirra verði rembingsleg...

Re: sonur minn

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Mjög gott….vel uppbyggt….endurtekningin myndar tengsl milli hvers erindis…vel gert….vel spilaðar saman andstæður….gott val á hugtökum..vindur/týra/fiðrildi….einstaklega vell gert ljóð sem nær mjög vel utan þá tilfinningu að eiga barn…..frábært!

Re: Hverfur

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Frábært myndmál….sérstaklega síðasta erindið…mjög vel gerðar myndhverfingar….þó svo að ég sé almennt ekki hrifinn af sjálfsmorðsljóðum þá nær þetta mjög vel til mín og það er einkum sökum afburðagóðs myndmáls…frábært!

Re: Angist sálarinnar.

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Þetta ljóð nær ekki góðu flugi….síðasta erindið er ekki gott og í raun eyðileggur annars ágæta hugmynd….þetta með lemur og öskrar….hástafirnir geri ég ráð fyrir að hafi verið hugsaðir til áhersluaukningar….smá tip: frekar að setja orðið sér í línu en að nota hástafi (hástafir í bókmenntatexta virka eins og að söguröddin öskri, og þó svo að það eigi kannski við hér þá er alveg nóg að segja það, eins og þú gerir!)….en hugmyndin er góð en þarfnast kannski betir úrvinnslu!

Re: næturljóð

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Mér finnst þér takast þó nokkuð vel upp….myndirnar eru flottar….góðar myndhverfingar…..sérstaklega finnst mér síðasta eridnið gott, frábær viðlíking….saltlaus sjór…vatn oft tákn fyrir tímann….þurftir þú að bíða lengi eftir endurfundum?….þettaaa ljóð er fullt af þrá, kærleik og hlýju…..mér finnst ljóðið mjög gott, virkilega nærð mér á flug….meira svona takk!

Re: Frumskógarlögmálið

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
nokkuð gott…..

Re: ritstíflan!!!!!! MIKLA!

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
flott hugmynd….byrja í 1.p en fara út í 3. p….mjög hrifinn af því….abab karlrím en vantar ljóðstafi….flott saga….skemmtilegar myndir….rímið í fyrsta erindi svolítið teygt…..en umfram allt frábær hugmynd….

Re: símaþreytan

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
ágætt….abab karlrím en engir ljóðstafir…mættir fara betur yfir orðaval og rím, notar sumstaðar sömu rímorðin….hrynjandi ágætur en gæti verið betri….ágætlega gert en ég er viss um að þú getir betu

Re: Hringrás lífsins

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
ágætt…..fyrra erindið inniheldur ljóðstafi…(spyrjandi)….notar tvisvar mynd af augum….endurtekur þrjú hugtök …líf, augu og regn….notar mikið sambeygðar myndir…er það tilraun til að vera háfleygur!?…ljóðið djúpstætt og tákn ríkjandi…..ágætlega gert

Re: Dauðinn! :)

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
skemmtilega naívt…getur boðið upp á dýpri pælingar um barnið og skilning þess á Guði og dauðanum….ágætt

Re: Árið kva(l)tt

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
mjög gott fyrir utan fyrsta erindið

Re: frosið bros

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
í einu orði sagt…frábært!

Re: Minning

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
vel gert….

Re: Baksund sálarinnar

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
flottar myndir…skemmtilegt ljóð

Re: 3sinn

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
þau ljóð sem koma beint frá hjartanu eru yfirleitt lang best…orð sem hafa verið á sveimi kannski í hausnum á manni í þó nokkurn tíma og skrifa sig einhvern veginn sjálf niður….gagnrýni þýðir mjög góður lestur og ég les alltaf ljóðin þín vel…þó svo að þú fáir ekki alltaf góða dóma fyrir það sem þú ert að gera frá mér þá finnst mér hæpið og hálfniðurlægjandi að kalla það lélégan eða slæman dóm og gagnrýni þegar það er sett út á eitthvað hjá manni….er þessi gagnrýni eitthvað meira alvöru af því...

Re: Nálægð

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
ágæt retorík….ekki góður endir…sammála síðasta ræðumanni um það….næ ekki alveg utan um fordómana gagnvart brúnum velvöxnum einstaklingum….ein hugleiðing að lokum….geispar fólk með raddböndunum? er það ekki af því að loft frá lungunum streymir um opið barkakýlið og fyrir vikið heyrist hljóð? Fólk geispar ekki, að minni vitund, með raddböndunum…. myndin af trúðnum er góð….by the way…trúðurinn er 3.p.et. þar af leiðandi hugsa[r] hann, ekki hugsa…tilfinningin er rík og kemur vel í gegn…ágætar...

Re: 3sinn

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
flottar myndir….einfaldar og skýrar…góðar viðlíkingar…..flott táknmál….spurning um uppsetningu, til að ná fram ákveðnari áhrifum….dæmi…..án vökva(flott)….síðan hefði ég sett ….bak við myrkrið…(í sérlínu)…ást…(í sérlínu)…frá mér…(í sérlínu)…nær betri áhersluáhrifum að mínu mati…skil ekki nafnið 3sinn (3ja sinn!?!)….ljóðið er flott, góðar og skýrar myndir, einfalt….stundum er nefnilega betra að segja minna heldur en meira….good work!

Re: Nokkur ljóð frá ungum dreng

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Fyrstu tvö ljóðin eru rómantísk í efnisvali og umfjöllun…persónugervð náttúra….ágætlega gert…mér finnst ég verða svolítið var við Sigur-rósar áhrif….einfaldur og fallegur boðskapur…ágætlega ort, sérstaklega þegar horft er til þess að þetta eru þín fyrstu ljóð(þau eru mun betri en mín fyrstu)…. Seinni tvö ljóðin, þrátt fyrir að vera persónulegri ná ekki, að mínu mati, sama flugi og þau fyrri….í þeim er mikill friðarboðskapur….kannski full pólítísk fyrir minn smekk, virka eflaust betur á...

Re: Bara hatur..

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
svolítið myrkt og reitt ljóð….ágætar endurtekningar….þreföld endurtekning virkar þannig á lesandann að hann hraðar lestrinum en atburðarrásin verður hægari í hausnum á honum….það er alla vega 2 þrefaldar endurtekningar, voru þær hugsaðar til að hægja á skilningi/atburðarrás lesandans?…annars vel gert….en fyrir mínar sakir, full mikil og persónuleg reiði sem ég á erfitt með að skilja en það er vissulega bara persónubundið…….

Re: hjálpaðu, bjargaðu og komdu með mér að lifa

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Flott ljóð….vel byggðar endurtekningar, virka vel á mig….2.p.et. finnst mér snilld/vel gert….þú veist að svona ljóð er alltaf hægt að túlka sem ávarp ljóðmælanda til sín sjálfs!?….ágætur hrynjandi…,,dauðin[n!]"…mjög flott, ánægður með þetta ljóð

Re: Hér einn ég sit

í Ljóð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
ágætt….abab karlrím ágætt….oftast nær ljóðstafir…ágætar myndlýsingar…hrynjandi mætti vera betra…skemmtilegt efnisval….annars ágætt ljóð!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok