hjálpaðu mér að svífa um himininn,
hjálpaðu mér að leita mér skjóls,
hjálpaðu mér að hlæja út í hafið,
hjálpaðu mér að hjálpa þér að lifa.

bjargaðu mér úr klóm sorgarinnar,
bjargaðu mér úr krumlum ellinnar.
bjargaðu mér úr höndum illsku heimsins,
bjargaðu mér úr hyldýpi þunglyndis.

komdu með mér að sigla út í heiminn,
komdu með mér að uppgötva ástina,
komdu með mér að skilja tilganginn,
komdu með mér að fljúga um himininn.

því þú ert það eina sem ég elska
því þú ert það eina sem ég skil
því þú ert það eina sem ég hugs´um
því þú ert mitt líf og yndi alltaf.

því þú ert lífið sjálft hafið og jörðin,
þú ert ástin, hatrið, brosið og tárið,
því þú ert listin, tíminn og gæskan,
þú ert dauðin, dýrin og mennirnir.

þú tilheyrir mér.
þú ert lífið sjálft.

*cecilie*
cecilie darlin