Ég er með augun opin
þau ráðast á hold þitt
eins og rándýr á bráð sína,
grunlaust um örlög sín.

Nakin í nóttinni
velti mér um vígvöllinn
með augun að vopni

Í hjartlausum leik verður enginn sigurvegari
Við horfumst í augu og semjum um vopnahlé