Þú öskrar!!
Þú lemur!!
En hvorugt virðist hjálpa.


Sársaukinn er þarna enn.
Hann vill ekki fara.
Hann eykst og eykst
uns þér finnst þú vera að springa.


Þú öskrar HÆRRA,
en sársaukinn hættir ekki.

Þú lemur FASTAR,
en sársaukinn vill ekki hverfa.


Hvað get ég gert
spyrðu sjálfan þig.
Langt í fjarska heyrist svar
hjá sál sem er að gefast upp

………..ekkert,ég get ekkert!!!!