Hann hringir og hringir
en ég nenni EKKI að svara
garg í höfðinu klingir
en ég NENNI ekki að svara

Hann ætlar aldrei að stoppa
hann hringir aftur og AFTUR
mig langar í jörðina að hoppa
því það stoppar hvergi KJAFTUR

Ég set hann undir púða
en heyri þetta samt
reyni að gera mig stillta og prúða
en þetta er símanum tamt!!!!

Það er honum tamt
að láta ENGAN í friði
ég slekk á honum samt
og úr höfði losna við kliði

Nú hef ég loks frið, en NEI, þá hringir HEIMA
þá hringir svokallaður “vinur”
og vill tala um heima og geima
en vinkonan af óþoli stynur

Hann finnur það á sér að hann hafði hana truflað
en heldur samt áfram að tala um ekki neitt
segir frá sögu er hann ennið hafði hruflað
en hún másar og stynur, því hún er á honum ÞREYTT