Hann er vindur
Hvæsandi rok
Glottandi gola
Sem bærir upp bros.

Hann er hrollur líkamans
Sláttur hjartans
Hnútur magans
Sem bærir upp bros

Hann er týra
Brennandi byrta
Ýlfrandi ljós
Sem bærir upp bros.

Hann er fiðrildi
Flöktandi fluga
Svífandi fugl
Sem bærir upp bros.