Situr um mig myrkrið
er hugsa ég til þín
í myrkri dafnaðir þú, í myrkri varst þú,
úr myrkri varst þú.
Hatur, hatur byggt á mér
á hatri til mín
dafnaðist þú,í hatri varst þú
úr hatri varst þú.
Ég grét mig í svefn
en til hvers ?
Þú fórst með mig eins og hlut
dúkku, dúkkuna þína
litla draslið þitt
þú hefðir getað selt mig
en þú gekkst lengra,
þú gafst mig.
Þú komst fram við mig eins og druslu
ég hélt ég væri drusla
en mér skjátlaðist.
Þú ert druslan.