Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: Fornleifar

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Eru steingervingar almennt blautir? Þarf að taka þornaðan fram?

Re: Vinir þínir

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ágætt. Ein athugasemd: sinna svörTUsTU sTUnda. Hljómurinn vefst eitthvað fyrir mér. Ég er ekki hrifinn af þessu, því þetta er svona punchið og þar af leiðir vil ég það hljómi massívt. Þetta verður einhvers konar hljóðklifun sem missir marks, því áherslan er ekki á þessum atkvæðum, nema því síðasta.

Re: eitt augnablik

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
My main man…Snorri Hjartarson upp á sitt besta. Znillingur, bara eitt orð: Znillingur.

Re: E-mail

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Þannig að þú myndir segja: Sólin skín mót mér??? Nýyrðasmíðin er ágæt, en mér finnst hin notkunin ekki til fyrirmyndar og hreint út sagt ljót, þó að erfitt sé að benda nákvæmlega á hvar málfræðilega villan liggi. Skv. Íslenskri orðabók eru eftirfarandi orðasambönd virk: Skína í e-ð, t.d. sólin skín í heiði Skína á e-ð, t.d. það skein á hafflötinn Skína af e-u, t.d. það skín af degi Ég held að þetta sé fremur einfaldlega hugsanavilla. Ef skoðuð eru ofangreind dæmi auk þeirra málshátta og...

Re: pbf?

í Spunaspil fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég er að spila þannig og það er fínt. Þú getur líka skoðað rpol.net, það er mjög stór rpg vefur sem hýsir nokkur hundruð leiki og auðvelt að finna eitthvað við sitt hæfi.

Re: spjöll

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
hehehehe….góður! Vel gert!

Re: Heiðarleg ást

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
sorrý eldoro…en ZZZ zzz ZZZ zzz… hér er ósköp lítið sem gleður augað…nema þetta með sólþurrkuð tár. Sniðugt…en tár vekja hjá mér svo mikla andúð að ljóð sem nota þau eiga lítinn sem engan séns. Við erum á 21. öldinni, ekki þeirri 19….vera frumlegri, koma frá sér þessari tilfinningu á frumlegri og skemmtilegri máta. Þú átt fegurri tóna í þinni hörpu, ef við viljum halda okkur í rómantíkinni ;)…. sláðu frekar á þá en þessa sem þú notar hér.

Re: Ég stend á skýi...

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sé fyrir mér Helga Björns í Jagger stellingunni sinni í Ýdölum 1992.

Re: Frá Verðandi, 1. tbl væntanlegt 15.maí

í Smásögur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Nei, höfundarréttur er tryggður. Textinn er merktur í bak og fyrir.

Re: Íslenskst online bókmenntatímarit

í Bækur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sæl! Nú eru 9 dagar þar til Verðandi kemur út. Til stendur að fá Kistuna.is í samvinnu við Skelmi. Hugmyndin er að birta eina, tvær sögur á þeim vef og bjóða notendum kistunnar möguleika á því að hlaða niður blaðinu. Útgáfur hafa sýnt þessu töluverðan áhuga, m.a. JPV og Edda, og fá vel flestar blaðið sent. Ég hvet ykkur eindregið til að dreifa blaðinu á sem flesta vini og kunningja, því meiri dreifingu sem blaðið fær, því betri vettvangur. Endilega hvetjið sem flesta til að lesa og skrá sig...

Re: í september

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Kaldhæðið!!?……Ég!!? Á ekki til kaldhæðið bein í mínum líkama.

Re: í september

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ágætt ljóð, en það eru nokkur atriði sem mig langar til að draga fram. Í fyrstu línu ertu með stuðlun, ég geri sjálfkrafa ráð fyrir þá að ljóðið sé stuðlað og það stingur mig í augun að svo sé ekki. Fínt táknmál. Sölnuðu laufin, greinar, vindur, vor…. allt mjög einfalt og stílhreint. Ein spurning þó: Er vindurinn eineygður eða er þetta auga frábrugðið hinu? Gaman að sjá hvernig þú spilar saman andstæðum. Vor - haust (sölnuðu laufin) Vor hefur oft verið tákn um líf, endurnýjun á meðan haustið...

Re: án titils

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ágætt! Seinna erindið óþarft. Bætir engu við og sannast sagna finnst mér það draga ljóðið niður. Taka það í burtu og þá ertu með skemmtilega pælingu í höndum.

Re: upp og niður

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
En þetta er einmitt kynferðislegt. Reyndar er rakinn niðri í kjallara svolítið í ætt við sagga og fúa, er ekki viss um það þyki fínt kynferðislega séð….gæti verið frekar viðbjóðslegt…en hvað um það, hugmyndin er sniðug og jú, er ekkert annað en kynferðisleg. Leyndarmálin um hann kalla fram raka í hinu neðra….

Re: Orðamáttur

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Þetta er gott!

Re: Í fjallinu

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sniðugt. hef reyndar nokkrar athugasemir varðandi form. til að byrja með fer ekki vel að hafa stuðla í 4. línu 1. erindis. Þar er líka rím sem er hreint út sagt hörmung að sjá, á þessu annars ágæta ljóði. orðið ótti eða afleiddar myndir af þeirri rót koma full oft fyrir. Hræðist, skelfist hefði líka mátt nota. Ég er mjög ánægður að sjá skáld nota tákn á þennan máta, fleiri hér mættu taka það sér til fyrirmyndar.

Re: Ef ég væri

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ágætt….alveg ágætt.

Re: Ég er hér!

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Eitt af því erfiðasta við að yrkja ástarljóð er að nota ekki klisjur og verða væminn. Sannast sagna finnst mér þú detta í hvoru tveggja hérna. Springandi stjörnur, hjartað brosir, geislar eins og sólin. Það má vel vera að stelpurnar andvarpi og finnist þetta ógurlega rómantískt, ég skal einfaldlega ekki segja (stelpur, hvað finnst ykkur?). Hins vegar geri ég það ekki. Það sem rís upp úr ljóðinu er viðlíkingin við nornirnar. Þar stígurðu af ljósrauða væmnisskýinu og kemur smá gothic fílingur....

Re: Tálkvendi

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Fyrra erindi nokkuð gott (augnalok finnst mér ekki fallegt orð, mættir leita að einhverju betra)…rauðar varir roðaðar…þetta er stuðlasetning sem fer illa í þetta nútímalega ljóð. Seinna erindi nær ekki að halda sama flugi og það fyrra. Það er einum of mikið sem er gefið, ef svo má segja. Einn maður vaknar einn….nástaða…taka annað hvort /einn/ í burtu… Einnig er niðurlagið ekki heillandi. Hefði mátt vera…hljóðlega….það finnst mér tengja seinna erindið betur við það fyrra....

Re: Sólarlag

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Fallegt ljóð um horfna sál og minninguna sem eftir situr. Vel gert, S!

Re: Við veginn

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Endurbætt útgáfa: Blóðrauð dvaldi hún í sinnu minni nótt og strauk orðfingrum litdaufa vanga ég lauk upp augum leit en sá ekki nóttina fyrir myrkri að morgni reis bláklukka á vegi og ég dró mig að henni viðjar álaga bundu líkama ferðlúinn ég sat þar og hlustaði á vind eyðimerkur svartrar uns jurtin visnaði hvíta fjöður bar að og endaði í opnum lófa hvellt gá sjakala kolsvartur ljár í huga mér -er komið að því, spurði ég með fjöðrina elti ég sjakalann dauðadjúpt í eyðimörkinni blóðrauð nótt...

Re: Þegar minnst varir

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
1. erindi: allt sagt, ekki dregin upp mynd. Með hækkandi sól er svolítið notað, það hefur ákveðna merkingu í huga manns, en myndin er ekki endilega af hækkandi sól, heldur frekar lóu eða laufblöðum, blómum að springa út osfrv. 2. erindi: Ágætt, barnsleg einfeldni í augunum…ágætt, sumarlegt á sinn hátt. Þessi skríkjandi ánægja sem fylgir sumri, stuttum pilsum, bjór á Austurvelli kl. 13 á föstudegi rétt á meðan verið er að ákveða hvort grill sé áhugaverðara en sundlaug. 3. erindi: mættir skera...

Re: Þegar orð eru óþörf

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Þú hefur rétt fyrir þér. Ég sneri þessu eitthvað vitlaust, var að flýta mér. Orðasambandið er að draga net á e-ð. Ég held, að hver sem leggur sig fram um að nota tungumálið til að túlka hugmyndir, tilfinningar eða slíkt þurfi að leita nýrra leiða í sífellu. Annars er hætt við að viðkomandi staðni í ákveðnum málheimi, innan ákveðins ramma og fullnýti þá möguleika sem þar eru. En einmitt með því að kynna sér málið, þekkja alla króka þess og kima, er hægt að komast hjá þessu. Það er nefnilega...

Re: Þegar orð eru óþörf

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Beygist eins og hestur; hest-ur, hest, hest-i, hest-s,; fleirtalan reyndar ólík; hyl[j]ir, hyl[j]i, hyl[j]um, hyl[j]a; munar þarna a - i. Fleirtölumyndin með /j/ eldri, ætli orðið sé ekki komið af ijan-flokki, var þá ef til vill hylijan í norrænu. En þú ert með eintöluna rétt beygða. Hins vegar hefðirðu mátt skoða betur orðasambandið að draga á net, það stýrir þolfalli þar sem þetta er dýnamískt. Gömlu orðasamböndin, sér í lagi í kringum hljóðskiptasagnirnar, eru að týnast smám saman úr...

Re: Þegar orð eru óþörf

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Reyndar má þess til gamans geta að orðið hylur er með tvær fleirtölu myndir, annars vegar hylir og hins vegar hyljir. Má vera að þetta hafi slegið ryki í annars glögg augu Hildar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok