Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: Þegar orð eru óþörf

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hildur mín, hylur í þf. ft. er hyli!!! Já, net geta staðið fyrir margt. Orð, vandamál, myrkur, sársauki…fyrir fiska merkir það dauði, ekki satt!?

Re: Endir kreppunnar.

í Ljóð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Góður punktur, breyti því.:)

Re: Íslenskst online bókmenntatímarit

í Bækur fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Af öllum stærðum og gerðum.

Re: Íslenskst online bókmenntatímarit

í Bækur fyrir 21 árum, 12 mánuðum
15. maí…..fréttatilkynning bráðum.

Re: Endir kreppunnar.

í Ljóð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
OK….þetta er alveg skelfilegt. Hreint út sagt hryllilegt. En jæja, hér kemur aðeins betri útgáfa. (skil ekkert hvað ég var að henda þessu hérna inn, greinilega eitthvað verið sofandi yfir þessu) Endir kreppu Orð mín innantóm merking þeirra gulnuð laufblöð horfins sumars. Uns ég stend í gættinni og horfi í augu þín.

Re: Viðvera mín í vitund þinni

í Ljóð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
ÉG biðst afsökunnar ef þú hefur tekið nærri þér þetta ekkert alltof vel heppnaða grín. Ég leyfi mér að efast stórlega um að þú eða nokkur annar hér fletti í gegnum notendur og greinar þeirra þegar þeir rýna hjá öðrum. Slíkt tekur alveg óhemju tíma, sem ég hreinlega nenni ekki að eyða í þetta. Auk þess, þegar þú póstar svona, þá máttu búast við því að vera rýndur á alla mögulega vegu. Fólki mun ávallt finnast eitthvað um það sem þú gerir, hvort sem það er jákvætt eða neikvætt.

Re: Viðvera mín í vitund þinni

í Ljóð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Ef þú bara vissir hversu vítt þeir leita. Ég veit t.d. til þess að á Rithringnum eru nokkrir útgefendur skráðir notendur. Og afhverju ættu þeir ekki að kíkja hingað eins og hvert annað fólk? Af því að, eins og þú segir, þetta er ‘ruslakista’? Þá má svipaða sögu segja um fleiri vefi, ljóð.is, rithringinn ofl., en þar má finna útgefendur jafnt innan um aðra notendur. Aldrei að segja aldrei, minn kæri.

Re: einkaréttur

í Ljóð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Frábært! Sleppa /og/, bætir ekki miklu við að mínu mati. Þetta er svona ákveðin tíska í enskum ljóðum og var um tíma einnig hér á landi. Ég er mishrifinn af því, en tel það ekki vera við hæfi hér. Auk þess má þá benda á að bæði erindin muni þá byrja á /að/ sem er skemmtileg tenging þar á milli.

Re: Viðvera mín í vitund þinni

í Ljóð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
En ég er að gagnrýna þetta ljóð, ekki heildarverk þitt! Ég hef bara ekki lesið það mikið eftir þig, svo ég get ekkert fullyrt um hvernig það kemur út. En gagnrýnin er á þetta ljóð og það viðurkennir þú sjálfur að sé líkt T&V. Mér finnst líkindin of mikil og það er bara mín skoðun. Ég er á þeirri skoðun að skáld eigi að bera virðingu fyrir ljóðinu. Ekki bara henda saman nokkrum orðum og kalla ljóð. Fullmargir senda hingað inn allt sem fellur úr þeirra kolli og það er miður. Ég vil frekar hafa...

Re: Viðvera mín í vitund þinni

í Ljóð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Sko, Haukur. Þetta ljóð er að öllu leyti, tel ég, líkt Tímanum og Vatninu, ekki bara uppsetningin, heldur líka hvernig þú beitir myndmáli, notast t.d. frekar við viðlíkingar heldur en myndhverfingar. Auk þess er notað svipaður stíll og efnistök. Þú vilt halda því fram að undirtóninn sé annar, allt í lagi, en það er ekki nóg til þess að Steinarsaðdáendur sjái ekki strax hvaðan ljóðið er sprottið og andvarpi. Eitt það helsta sem Steinn stóð fyrir í íslenskri ljóðagerð var frumleiki. Þessi...

Re: Viðvera mín í vitund þinni

í Ljóð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Hvernig væri listamannsnafnið Hauk Haukurr? Einum of líkt Steinari, einum of mikið af stafsetningarvillum. Orðfæri gott og margar skemmtilegar myndir. Endilega vinna úr þeim eitthvað frumlegra og eitthvað sem er ekki eins og viðbót við Tímann og Vatnið eða þau ljóð Steinars.

Re: Reykelsi

í Ljóð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Ég get ekkert að því gert og mér þykir það afskaplega leitt. En ég get ekki annað en spurt: Er þetta ljóð?

Re: Nostalgía

í Ljóð fyrir 22 árum
Góð myndhverfing í upphafi. Það er óþarfi að endurtaka það sem Hildur benti á, ég er sammála því sem hún segir. Persónulega finnst mér 3. erindi bæta litlu við, hefði mátt sleppa því alveg. Ljóð þar sem ein myndhverfing er látin líða í gegn (nýgerving) eru nokkuð vinsæl, það hafa margir spreytt sig á þessu og kemur misvel út. Þetta er hreint ágætt hjá þér, frumlegt og nokkuð ögrandi. Ég hefði viljað draga fram enn fremur og undirstrika hið kynferðislega. Hey, þegar allt kemur til alls þá...

Re: Siðferði skáldsins

í Ljóð fyrir 22 árum
Jæja, Haukur! Þá er að líta á þetta ljóð þitt. Það sem ég rek strax augun í er að þú þarft að bæta við orðaforða þinn. Það er nefnilega svo í ljóðum að talmál fer oftast illa, nema það sé þeim mun betur notað og til þess þarf oftast snillinga eða meistara tungunnar. Megas, Tómas og Þórbergur eru skáld sem þú gætir leitað uppi til að fá hugmyndir um hvernig hægt sé að leysa slíkt. Ef við skoðum strax upphafserindið: Ég kann vel við að gera ekki neitt, en alltaf þegar ég geri ekki neitt ætlast...

Re: Dreggjar dagsins

í Ljóð fyrir 22 árum
Þetta er meira í þínum anda! Hef samt tvær athugasemdir, báðar smávægilegar. Í 3. línu 1. erndi þætti mér betur fara no. án greinis, gárum. Kallast á við 3.línu 2. erindis. Í 1. erindi eru ljóðstafir á eftir stuðlum, ekki í 2. erindi. Þetta finnst mér vera miður. Annars mjög fínt og gott ljóð.

Re: Opið bréf til barna þessa lands

í Ljóð fyrir 22 árum
Ég er ekki sammála því að fáir kaupa þessa goðsögn. Ef þú skoðar vel íslenskt bókmenntalíf í dag og berð saman við t.d. millistríðsárin þá stöndumst við í nútímanum engan veginn þann samanburð. Sama hvort um leikrit, ljóð eða sögur sé að ræða. En hver er þá munurinn á millistríðsárunum og nútímanum? Ef þú skoðar það vel, muntu komast að svipaðri niðurstöðu og Hildur í þessu ljóði. Hmm, Pardus, blikkallar fara í taugarnar á þér, gagnrýni sem er ekki 1/2 jákvæð og 1/2 neikvæð, er eitthvað...

Re: Opið bréf til barna þessa lands

í Ljóð fyrir 22 árum
Sjáðu nú til, Pardus. Það sem ljóðið segir er eftirfarandi: good times = bad books Bad times = good books Þetta er mjög viðurkennd skoðun og kemur hroka ekkert við. Öll sú gervireiði, sýndartilfinningar og ímyndaðarskoðanir gegnumsýra margt sem er að koma út í dag. Og þeir taki til sín sem það eiga. Það er ótrúlegur fjöldi fólks sem situr og skrifar, fæstir hafa nokkuð af viti að segja og ég undanskil sjálfan mig ekkert frá því. Það að bölsótast yfir Írak er gott og blessað, en sársaukinn...

Re: Von í brjósti

í Ljóð fyrir 22 árum
Glúbbi! Nei….nei….nei…! Hvað er í gangi? Þetta er svo langt frá þínu besta að ég á hreinlega ekki til orð. Ég gæti rætt um stuðlasetninguna, sem er afleit. Eða notkun ákveðins greinis. Kannski myndmálið eða klisjur. Ég veit að þetta er skelfilega ‘harsh’ en þetta er ekki gott ljóð. Þú átt til mun frumlegri hugsun og ert miklu einbeittari og meðvitaðari í notkun tungumálsins en þú ert að sýna hér. Það liggur við ég segi þér að skammast þín, en læt það ógert, því það eina sem hefur ljóðið upp...

Re: Lítt merkilegt ljóð en sannsögulegt engu að síður

í Ljóð fyrir 22 árum
Sannsögulegt!!? Púff! Þetta er gaman að lesa. Reyndar er það bara uppsetningin sem gerir þetta að ljóði. Gæti allt eins verið örsaga og nokkuð góð sem slík. Þankastrikin (braghvíldirnar) gefa þessu svolítið skemmtilegan blæ þegar maður les ljóðið upphátt. Fær svona nett bros til að læðast frá á varirnar og hugann til að spretta af stað í leit að hinu ósagða. Kunngulegur > kunnuglegur.

Re: Vonbrigði til betra veðurs

í Ljóð fyrir 22 árum
Reyndar felst í 1. línu bæði orðaleikur og myndhverfing, þar fyrir utan er ég að daðra við súrrealisma. Sár, rauð ský leka yfir himin getur líka verið rauð ský, eins og sár, leka yfir himin Myndhvörfin renna saman við persónugervingu, þetta býður af sér mynd af sólarlagi og skýjum á himni sem öðlast rauðbleikan blæ. Myndhvörfin eru því /Ský:sár/….hins vegar er persónugervingin /sár ský/ líka falin þarna. Uppsetningin leggur áherslu á myndhvörfin, en hvor skilningurinn sem er á rétt á sér....

Re: Það eru engar tilviljanir

í Ljóð fyrir 22 árum
Hæ, Hildur! Ég ætla aðeins að renna í gegnum þetta ljóð og benda á nokkur atriði sem eru ætluð þér til umhugsunar. Upphafið er nokkuð gott, ágæt pæling, en þar hefði ég sett punkt á ljóðið. Það sem á eftir kemur bætir svo að segja engu við, sem þessar tvær setningar; titillinn og 1. erindi; segja. Persónulega tel ég ljóðið hefði orðið mu sterkara, víðtækara og vísa betur til lesandans og upplifunar hans en útskýringin sem á eftir kemur. Það þarf ekki að útskýra allt, ljóð eru ekki bandarískt...

Re: Sadómasókismi Drottins

í Ljóð fyrir 22 árum
Það var einhver austantjaldsrithöfundur sem sagði eitt sinn: Úr því að skáld eru að rembast við einhver örsmá og knöpp ljóð, ættu þeir að ganga alla leið og þegja bara! Ekki svo að skilja að það eigi við hér, því ljóðið er ágætt, fyrir utan áðurnefnda villu. Bara datt í hug að nefna þetta!:)

Re: Ferðalag um malbik

í Ljóð fyrir 22 árum
Frumleiki er eins og áll í vatni, erfitt að koma auga á, erfitt að festa hendur á, en þegar það tekst er ánægjan þeim mun meiri.

Re: Undir áhrifum hafsins.

í Ljóð fyrir 22 árum
OK…. Þú ert með ágæta pælingu hérna í gangi, skemmtilegt að sjá hvernig þú vinnur með útjaskað tákn og reynir að bregða á það nýju ljósi. Það eru nokkur atriði sem ég ætla að benda þér á, atriði sem mér finnst mega betur fara. Þú ofnotar ákveðinn greini. Slepptu honum og ljóðið verður miklu sterkara og vísar þar að auki út fyrir tíma og mörk. Meðan þú ert að nota ákveðinn greini ertu að vísa til ákveðinna hluta, ekki almennt. Ljóð sem hafa þennan almenna faktor (afsakaðu slettuna) eiga...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok