Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: Klæðskiptingur kíkir út

í Ljóð fyrir 22 árum
Ég tek undir þetta með þér að flestu leyti nema einu. Það er eitt smáatriði sem fór svolítið í mig þegar ég las ljóðið upphátt. Í 2. línu kemur fyrir þrisvar -ta-…má vera að höfundur sé að reyna skapa hljóðmynd, en til þess finnst mér seinni tvö -ta-'in standa of þétt. Ég hef reyndar ekki neinar sérstakar uppástungur um betra orðaval eða góðar lausnir. Fannst bara rétt að benda á þetta, þó svo að þetta sé ósköp mikil sparðatínsla. En hvað um það, Glúbbi, þú pælir í þessu!

Re: Motionless

í Ljóð fyrir 22 árum
Ég veit alveg hver ég er og ég þarf ekki að þykjast vera neinn, ólíkt sumum stórskáldum hérna.

Re: Motionless

í Ljóð fyrir 22 árum
Ég skal segja þér hvað mér finnst! Þú ert fífl sem berð enga virðingu fyrir höfundarréttarlögum. Þetta er ljóð er eftir Kelley Saint. Heldurðu virkilega að enginn hérna lesi ljóð?

Re: 13.02.1945

í Ljóð fyrir 22 árum
Merkilegt að þú skulir kalla sjálfan þig Poetmaster…… Ætli það sé ekki það eina sem ég hef við þig að segja, enda segir það allt sem segja þarf!

Re: 13.02.1945

í Ljóð fyrir 22 árum
Ég ætla nú ekki að klappa. Zorglúbb getur ort mjög beitt ljóð, þar sem myndmálið ræður för og lesandinn velkist einhvern veginn með. Að lokum er síðan aðeins ein niðurstaða fáanleg. Þetta er hans allra sterkasta hlið. En hérna nær hann ekki þessu flugi. Hluta til vegna þess að hann eyðileggur fyrir sjálfum sér með stuðlasetningu. Til að byrja með er hún ekki alls staðar og þar að auki ekki alveg rétt þar sem hún er. Það má vera að skáldið sé að brjóta upp hefðir, en fyrst svo er ætti það...

Re: Ljóðaslagur Eddu og Fréttablaðsins

í Ljóð fyrir 22 árum
Frábært!!!! Til hamingju með það. Ég skal muna að kjósa þig áfram!

Re: Stelpur!!!.....auglýsing frá Verðandi

í Ljóð fyrir 22 árum
Þetta er nýtt tímarit sem ég er að koma á framfæri. Það er á vefnum, engin heimasíða eins og er, en allt slíkt býður úrlausnar og betri tíma. Þetta er hugsað sem tækifæri fyrir ung skáld og rithöfunda að koma verkum sínum á framfæri. Tímaritinu verður dreift endurgjaldslaust á netinu til þeirra sem það vilja. Útgáfudagur er 15.maí. Til að verða ákrifandi eða hafir þú áhuga á að senda inn efni í það, þá sendir þú email á netfangið: Verdanditimarit@hotmail.com

Re: Myrkrið og birtan

í Ljóð fyrir 22 árum
Það er merkilegt að þú skulir nefna þetta með myrkrið sem hræðir en heillar. Þetta er svo sem ekkert frumleg pæling, Lovecraft var fyrir löngu búinn að henda svipuðu fram auk þess sem Freud skrifaði ritgerð sem hét Hið Ókunna og þar fjallaði hann m.a. um tengsl ótta og þess sem er heillandi. Þessi upphafsetning…Það er eitthvað… ég er ekki alveg nógu hrifinn af henni, en því miður hef ég ekki neinar sérstakar úrlausnir. Það er hins vegar gaman að sjá hvernig þú spilar saman andstæðum, birtu...

Re: Ó sjá!!! Hina tilbúnu fegurð!!!

í Ljóð fyrir 22 árum
Stundum held ég að þú lesir ekki allt það sem ég skrifa. Hvergi nokkurs staðar held ég því fram að ég sé fullkominn né að mín ljóð séu það. Ég hef meira að segja skrifað það inn í spjall okkar til það fari ekki á milli mála. Lestu nú vel og vandlega: Ég er EKKI að segja þér hvernig þú átt að gera hlutina. Ég er EKKI að beina þér á ákveðnar brautir. Ég er EKKI að reyna að kenna þér eitt né neitt. Þetta eru athugasemdir sem þú sjálfur ræður hvort þú takir mark á eða ekki. Þetta eru...

Re: Ó sjá!!! Hina tilbúnu fegurð!!!

í Ljóð fyrir 22 árum
Eins og þú?

Re: Ó sjá!!! Hina tilbúnu fegurð!!!

í Ljóð fyrir 22 árum
Djöfull getið þið blaðrað á meðan maður er ekki við….:D…en hvað um það. Ég ætla nú aðeins að fá að svara Pardusi, þar sem nokkur mislétt orð voru látin falla um mig og aðra hugara. Clarification: Þetta er EKKI tilraun að beina þér inn á aðrar brautir. Þetta er EKKI tilraun til kennslu. Þetta er EKKI neitt annað en athugasemdir um hvað mætti betur fara. Það að ráðast á Sólufegri finnst mér ljótt, sérstaklega þar sem hún hefur ekkert komið nálægt þessum þráð og reyndar hef ég ekki séð til...

Re: Ljóðaslagur Eddu og Fréttablaðsins

í Ljóð fyrir 22 árum
Það hlýtur eiginlega að vera!

Re: Ó sjá!!! Hina tilbúnu fegurð!!!

í Ljóð fyrir 22 árum
Jæja, Pardus. Er svona í pottinn búið!!? Ljóð sem lög hafa verið samin við eru ort sem ljóð, en lagatextar sem texti við ákveðnar melódíur. Varla seturðu ljóð Ingibjargar, Tómasar, Þórbergs eða Halldórs á sama stall og lagatextar Buttercup, Sálarinnar eða Metallicu ef því er að skipta? Ég er alls ekki að gera lítið úr lagatextum, en þetta tvennt; ljóð og lagatexti; er ekki það sama. Hefur aldrei verið og verður aldrei. Ég kom með rökstutta rýni á ljóðið þitt. Þú getur gert það sem þér sýnist...

Re: Ó sjá!!! Hina tilbúnu fegurð!!!

í Ljóð fyrir 22 árum
Ég segi bara aftur: Þú þarft að lesa LJÓÐ! Þetta sem þú telur upp flokkast sem lagatextar. Og þar stendur kannski hnífurinn í kúnni. Það eru ekki til neinar ‘stefnur’ í ljóðagerð. Ljóð eru ort inn í ákveðnar stefnur, t.d. rómantík eða raunsæi. Ég er ekki að kenna þér að yrkja rétt né tel ég þig yrkja rangt. Hins vegar er ég að benda þér á atriði sem mættu betur fara að mínum dómi, en úr því að þú ert svona góður og þroskaður sem skáld, þá læt ég það bara vera.

Re: Ó sjá!!! Hina tilbúnu fegurð!!!

í Ljóð fyrir 22 árum
Vísunin ætti að vera: Sjá, þar sem háir hólar hálfan dalinn fylla

Re: Ó sjá!!! Hina tilbúnu fegurð!!!

í Ljóð fyrir 22 árum
OK….Ég er ekki hrifinn. En ég er almennt á móti pólitískum ljóðum, því þau eru svo rígbundinn í báða fætur. Það er engin leið að yfirfæra þau á önnur tungumál og ekki þar fyrir utan, þau eru dauð og ómerk eftir örfá ár, sum jafnvel skemur. Til að byrja með er stýringin /Ó sjá/ vitlaust uppsett, á eftir upphrópun kemur komma (stafsetningarvilla!?). Mér finnst hins vegar sniðugt hvernig þetta kallast á við /Sjá þar sem hólar hálfan dalinn fylla/, mér datt þetta ljóð strax í hug þegar ég sá...

Re: Íslenskt online bókmenntatímarit

í Smásögur fyrir 22 árum
Þau ykkar sem hafið áhuga á að fá blaðið sent til sín munið að senda tölvupóst á netfangið: verdanditimarit@hotmail.com og biðja um að vera sett/ur á póstlistann.

Re: Ótti - þýðing ljóðsins

í Ljóð fyrir 22 árum
Já, orðið Pass hefur þar að auki aðra merkingu í ensku, sem yfirfærist mjög illa í íslensku. Pass the ball. Þarna er þetta í mjög ákveðinni merkingu, mjög meðvituð gjörð. Hins vegar tekur höfundur fram að þetta er ómeðvitað. Merking orðsins í þessu ljóði er því gjörð sem er ómeðvituð. Ekki eitthvað sem gerist ósjálfrátt. Ég velti lengi fyrir mér hvort að sögnin /að bera/ nái utan um það, en hef því miður ekki neinar betri lausnir. Orð sem standa með greini í íslensku eru ákveðinn og vísa á...

Re: Terror in Iceland

í Smásögur fyrir 22 árum
OK…Þú segir að þetta sé þin fyrsta saga þannig að ég skal reyna að fara mjúkum höndum um þig. Til að byrja með langar mig til að hrósa þér fyrir tilraunina og ég lít svo á að þetta sé verk í mótun, ekki fullklárað. Það er margt við söguna sem er svosem ágætt en nokkrir punktar sem ég held að þér hafi yfirsést. Ríki samanstendur af einstaklingum. Án þeirra er ekki hægt að hafa ríki. Þó eru einstaka undantekningar, t.d. Vatíkanið. Hins vegar eru í nútímasamfélögum skriffinnskubjákn sem eru...

Re: Ótti - þýðing ljóðsins

í Ljóð fyrir 22 árum
Ótti berst frá manni til manns ómeðvitað líkt og lauf ber skjálfta sinn til þess næsta Á augabragði titrar allt tréð og það er logn

Re: Ótti - þýðing ljóðsins

í Ljóð fyrir 22 árum
Ég er ekki sammála ykkur. Þetta er ágæt þýðing, en ekki ótrúlega flott. Það að þýða ljóð er gott sem ógerningur, þar sem að hugsun er erfitt að flytja út einni tungu yfir aðra, sérstaklega þar sem að orð hafa ekki alltaf sömu merkingar, þetta á einkum við um orð sem hafa táknræna og yfirfærða merkingu í ljóðum. Í þessari þýðingu eru gerð ein stór mistök og það strax í byrjun. Enska: Fear passes from man to man íslensk þýðing: Óttinn berst mann frá manni. Til að byrja með er ekki notaður...

Re: Íslenskt online bókmenntatímarit

í Smásögur fyrir 22 árum
Kynningarbréf hefur verið sent til allra stóru útgáfanna og hafa viðbrögð þeirra verið mjög jákvæð. Hafa sýnt þessu mikinn áhuga. Þetta er því góð leið til að koma sér á framfæri við þær.

Re: Íslenskt online bókmenntatímarit

í Ljóð fyrir 22 árum
Kynningarbréf hefur verið sent til allra stóru útgáfanna og hafa viðbrögð þeirra verið mjög jákvæð. Hafa sýnt þessu mikinn áhuga. Þetta er því góð leið til að koma sér á framfæri við þær.

Re: Íslenskst online bókmenntatímarit

í Bækur fyrir 22 árum
Kynningarbréf hefur verið sent til allra stóru útgáfanna og hafa viðbrögð þeirra verið mjög jákvæð. Hafa sýnt þessu mikinn áhuga. Þetta er því góð leið til að koma sér á framfæri við þær.

Re: Íslenskt online bókmenntatímarit

í Ljóð fyrir 22 árum
Endilega sendu mér efnið þitt, Danni. Ég reyni að birta sem fjölbreyttast efni, ekki bara hábókmenntalegar pælingar um lífið og tilveruna í formi smásagna, heldur líka fantasíu-, sci-fi, horror-, örsögur og ljóð af öllum toga.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok