Ef þú hélst að ég hafi
gefið þér
hjarta mitt, þá var það
misskilningur.

Ég afhenti það einungis
til láns,
til geymslu.

Einhvern dag
mun ég horfa
framhjá sólþurrkuðum tárum
alla leið inn í augu þín
og biðja þig
að skila því
- einhvern dag.

Bara ekki í dag…