rósrautt skýið
sem ég held dauðataki í
er byrjað að trosna
og ég færist neðar…

bleksvart skýið
sem ég strýk með iljunum
er byrjað að þykkna
og ég færist neðar…

rósrautt skýið
sem ég held dauðataki í
rifnar í tætlur
og ég hlunkast niður…



á svörtu rigningarskýinu
sit ég uppgefinn og hissa
með rósrauðan hnoðra
í köldum höndunum

til minningar
um rósrauðu tætlurnar
sem færast í burtu…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.