fólkið sem leitaði þín
þegar lífið
hafði gert því ókleift

að brosa

púslaði sér saman
á ný
með þinni hjálp

& sneri svo við þér baki
því í bláu augunum þínum
sá það bergmál

sinna svörtustu stunda