Vor í lofti
Skap léttist
með hækkandi sól

laus undan oki
myrkurs og frosts
brokka ég um göturnar
með barnslega einfeldni
í augunum

þegar þú þegar þú
þú þú

skýtur upp gleymdum kollinum
skýtur mér skelk í bringu
skýtur mig beint í hjartað

kyssir mig á ennið
og brosi