net dregin
á hyli
andlits þíns

tveir fiskar
hvor úr sínum hyl
sleppa

skjótast undan
niður á fölar
sléttur vanga

ég beygi mig
og ofurlétt nem á brott
með vörum mínum

og er augu okkar mætast
á milli okkar
- þögnin