Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: spilamót í rvk

í Spunaspil fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Heyr, heyr!

Re: Kennaradeila í hnút

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Og þegar samninganefnd sveitarfélaga segir að sveitarfélögin standi ekki undir þessum kröfum, eiga þá kennarar bara að yppa öxlum og segja: ,,Æ, það var leitt. Förum þá aftur að kenna, krakkar, þeir geta ekki borgað okkur mannsæmandi laun!" Ég skal taka undir það með þér að deilan er í hnút en mundu, sjaldan veldur einn þá er tveir deila. Kennarar eiga sína sök á hvernig staðan er, en sökin er líka sveitarfélaganna og ríkis. Sjálfur er ég kennari og skýt mér ekkert undan ábyrgð. Ég kaus...

Re: Skífan vs. Deilir (DC)

í Tilveran fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það þarf ekkert að rífast um hvort að þetta sé lögbrot eða ekki. Höfundarréttarlög eru alveg skýr. Það sem er hins vegar undarlegt er að ekki fyrr en tölvur og p2p koma fram höfðu höfundarréttarsamtök ekki amast við þess háttar hátterni. Þegar vídeótækin komu var jú boðið upp á möguleikann að taka upp og fjöldi fólks tekur enn þann dag í dag upp efni úr sjónvarpi eða er með tvö tæki heima og afritar leigðar spólur. Það er ekkert við þessu að gera, enda gera þetta svo margir að það tæki...

Re: Hvað gerir grunnskólakennari?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Það er ekkert mál að vinna yfirvinnu, enda hluti af flestum störfum. En að þurfa að vinna tvær vinnur, þeas. vera í tveimur störfum a.k.a. auakvinna, ætti ekki að vera háskólamenntuðum nauðsynlegt til að eiga í sig. Það er kosturinn við að vera langskólagenginn, þú átt að geta farið fram á hærri laun, þess vegna er jú fólk að mennta sig. Þetta er ekki spurning um að vera heiladauður, heldur að leggja saman tvo plús tvo og fá út fjóra.

Re: Mót fyrir norðan?

í Spunaspil fyrir 21 árum, 7 mánuðum
ég væri meira en til í að rúnta norður og spila eina helgi. það væri bara gaman, enda mikið fjör síðast.

Re: Hvað gerir grunnskólakennari?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þetta sem þú nefnir er ekki í boði alls staðar og alls ekki fyrir alla. Yfirvinna er mjög illa séð í menntakerfinu. Vissulega er hægt að taka fleiri tíma, t.d. í forföllum en kennari sem er með fulla stundaskrá á erfitt um vik að gera það. Það að vera með umsjónarbekk bjargar heldur ekki öllu, í mesta lagi auka 3500 kr. á mánuði. Hlutirnir eru ekki jafn skelfilega auðveldir og þeir virðast, jafnvel þó þú teljir þig hafa svar við öllu. Þar að auki á háskólamenntað fólk ekki að þurfa að vinna...

Re: Hvað gerir grunnskólakennari?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
<i>afhverju má ég ekki segja það sem er rétt ekki eins og þú vitir allt</i> Einfaldlega vegna þess að það sem þú ert að segja er ekki rétt! Kynntu þér málið. Já, og lærðu betur málfræði og stafsetningu. Það er ekki hægt að taka mark á einstaklingi röfla um kennara sem er hvorki skrifandi né að því virðist með málfræði á hreinu, vegna þess að viðkomandi lítur alltaf út fyrir að vera heimskur. Og hver hlustar svo sem á heimskingja?

Re: Hvað gerir grunnskólakennari?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þannig að uppfinningamenn eiga ekki að reyna gera heiminn betri með nýjum uppfinningum, heldur eiga þeir að sætta sig við það að búið sé að finna upp allt. Það var jú þannig þegar þeir fóru í starfann. Vísindamenn eiga ekki að komast að nýjum sannleik, heldur aðeins staðfesta þann sem er fyrir. Því þegar þeir byrjuðu var sá sannleikur svo ágætur. Málarar eiga bara að nota sömu málningu og þeim var kennt að nota, því sú máling virkaði einu sinni. Þetta eru heimskuleg rök. Hvað er að því að...

Re: Hvað gerir grunnskólakennari?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Elvarsi, kynntu þér málið! Lærðu síðan stafsetningu og málfræði, byrjaðu svo að rífa kjaft.

Re: Hvað gerir grunnskólakennari?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Jæja…alltaf er hægt að treysta því að á huga.is séu einstaklingar sem vita hvað þeir tala um og gera það ekki án þess að vera vissir. Mér sýnist þessi umræða vera annars vegar færð áfram af þeim sem hafa smá samúð með kennurum og hinum sem hafa enga. Hvor hópurinn um sig bullar og bullar og veit ekkert um hvað þeir eru að tala. Einhvers staðar stendur: <i>Það er betra að þegja, því þá kemst ekki upp hversu vitlaus maður er</i>. Held að sumir hér mættu taka þetta alvarlega. Hvaða heilvita...

Re: Hvað gerir grunnskólakennari?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Mér sýnist Skita að þú megir hreinlega ekki við þessu verkfalli. Kannt hvorki stafsetningu né málfræði. Þér væri nær að reyna að læra eitthvað í skólanum, í stað þess að gagnrýna hann.

Re: Grátur og gnýstran tanna

í Spunaspil fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Hvernig gengur leitin? Eruð þið komnir í grúppu?

Re: Að sýna eða segja

í Smásögur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Endalausar lýsingar, sbr. Thor, eru oft mjög þreytandi, rétt eins og endalausar romsur af blaðri, þe. þar sem allt er sagt. Jafnvægi er lykilatriði, en að feta þann mjóa stíg veitist manni oft erfitt. Mín skoðun er sú, að það verður að vera tilgangur með því sem kemur fram, þeas. ef að þú lýsir ákveðnum bíl, þá er það af því að hann hefur e-ð gildi í sögunni. En ef að bíllinn skipar ekki neinn sérstakan sess þá þarf ekki að lýsa honum…það er allavega mín tilfinning.

Re: Að sýna eða segja

í Smásögur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Lýsingar geta verið svo margs konar. Og það sem oftast gleymist, er að útlits- og umhverfislýsingar eru ekki einu lýsingarnar. Hegðun, hugsanir og slíkt er líka lýsing. Það sem mér finnst oftast vera að í þeim sögum sem ég sé hér á huga.is, er að flestar þeirra höfða einungis til augna. Sjálfur hef ég oft fallið í þá gryfju, en það er nefnilega svo að maðurinn er með fleiri skilningarvit. Það að vond lykt fylgi einhverjum er líka lýsing, hljóð er líka lýsing og snerting. Þú nefndir að gefa...

Re: Deyjandi rósir

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Nei, ég er nokkuð viss um að svo er ekki. Amma mín talar á þennan hátt við barnabörnin sín og segir að svona hafi verið talað við hana þegar hún var yngri.

Re: Deyjandi rósir

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég er ekki að tala um aðgerðina, að lauma kossi þar sem hálsakotið er, heldur orðavalið. Ertu virkilega að halda því fram að þú notir þetta dagsdaglega við annað fullorðið fólk? Í einni vel þekktri vísu kemur fram: …er að mjólka ána sín… Að nota sín í stað sína er almennt talið barnamál eða vísa til barna. Notarðu það þá líka í tali þínu við fullorðið fólk? Það er stigsmunur á því máli sem notað er í tali fullorðinna og barna. Ég tel að það sé lýti á þessu ljóði að ekki skuli virtur sá...

Re: Deyjandi rósir

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Hvernig er aftur lagið með Villa Vill: Að koma í holu hlýja, höfgum pabba sínum hjá, kúra sig í koti hálsa kærleiksorðin þurfti þá. Og fjallar einmitt um samband foreldris og barns. Eruð þið virkilega að halda því fram að þið notið þetta dags daglega við annað fullorðið fólk. ‘Já, komdu hérna og kysstu mig í hálsakotið.’'Má ég kúra í hálsakotinu þínu?' Hugsið um þetta og veltið fyrir ykkur í hvaða samhengi og tilgangi þið notið þetta, ég er þess fullviss að þið komist að sömu niðurstöðu og...

Re: Deyjandi rósir

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ágætt ljóð, sér í lagi myndin: ilmur sem blæður út í nótt, mjög flott og skemmtilegt. Hins vegar hef ég tvær athugasemdir: 1. Hvers vegna notarðu lh.nt í titli ljóðsins? Mér finnst það til að byrja með fráhrindandi að sjá svo enskulega orðanotkun og auk þess notarðu ekki þessa mynd sagnarinnar í ljóðinu, heldur einfaldari og mun fallegri. Hvers vegna kallaðirðu ekki ljóðið: Á meðan rósirnar deyja? Mun fallegra og í stíl við það sem á eftir kemur. 2. setningin: Laumaðu kossi í hálsakot, er úr...

Re: Spilamót í Borgarnesi.

í Spunaspil fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Já, ég geri ráð fyrir því að ég myndi mæta.

Re: Orða[sann]leikur

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Nei, veistu. Ef þetta væri sögn þá væri setningin alltaf: Sannleika er sagna best. Lýsingarorðið sem kemur á eftir tengir sig við meginno. setningarinnar, þe. stendur í sama no.lið. Hér er nafnorðsliðurinn sögn (kvk., ft., ef) + góð (est., kvk., ft., ef.). En þar sem lo. límir sig við sannleikann þá færð það sömu einkenni (est., kk., et., nf.). Þess vegna gengur þetta ekki upp hjá þér. Þú ert að klikka á setningafræðinni.

Re: Orða[sann]leikur

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Nei, ég er hræddur um að þú sért sá sem ert á villigötum. Þú segir í ljóðinu: gæti einhver tekið ÞESSA “sögn” og beygt hana fyrir mig? Þá ertu að vísa til þess að sannleikurinn sé sögn, sem orðið er ekki. Þú ert að færa inn í málsháttinn tvíræðni sem gengur ekki upp, af því að sögnin sannleika er ekki til og gengur ekki upp. Ég leyfi mér að fullyrða að þú sért ekki svo heimskur að halda því fram að aðeins ein sögn sé til, þar af leiðir sértu að vísa í SÖGNINA. Þetta gengur einfaldlega ekki...

Re: Orða[sann]leikur

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Þetta er ekkert crap! Orðaleikurinn nær ekki nógu góðu flugi vegna þess að í þessu tilfelli er ekki sú tvöfeldni sem þarf að vera til staðar. Til þess þyrfti orðið sannleikur að hafa bæði no. og so. ígildi en þú veist sjálfur að svo er ekki. Hér er ekki verið að leika sér með sagnir almennt, heldur nafnorðið, það er gert að sögn. Það er að sannleika. Gallinn er sá að sú sögn er ekki til og merkingin á reiki. Hvað er að sannleika? Hvað á höfundur við? Þú sem náðir boðskapinum, hlýtur að geta...

Re: Spilamót

í Spunaspil fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ætlar Nexus að halda mót!!?

Re: Fornleifar

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
;)

Re: Fornleifar

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
úff, witty and ironic….hve ég öfunda þig af hæfileikaflóru þinni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok