Ja, ég er a.m.k. á því að til að teljast eitthvað af þessum toga, þá sé það nauðsynlegt skilyrði að líta á sig sem þetta eitthvað. Auðvitað er það ekki nægjanlegt skilyrði, en það er bráðnauðsynlegt. Ef einhver færi að segja mér, “strangtrúuðum” trúleysingjanum, að ég sé kristinn því foreldrar mínir eru það - ég myndi halda að sá maður væri klikk. En kannske má segja að Marx sé gyðingur “að nafninu til”, eins og hann var Þjóðverji “að nafninu til”. Síðan má raunar benda á að gyðingar, eða...