Það var talað um það í spurt og svarað kork, að Jennifer Aniston hefði upphaflega átt að leika Monicu og Courteney Cox, Rachel.
Ég sé það svo sem alveg fyrir mér, en hvort eð er segðum við örugglega ef það hefði orðið svoleiðis að við sæjum ekki fyrir okkur Anison sem Rachel. Maður er einfaldlega búinn að venjast þessu. Þessi karakter hefur skapað Anison og í öllum hennar myndum sé ég smá Rachel. Eins og hjá öllum vinunum.

En þá fór ég að hugsa, er það rétt hjá mér að upphaflega hefði Joey átt að vera leikinn af Matthew Perry og Chandler af LeBlank? Ég er næstum 100% viss um það, og að það hafi meira að segja verið búið að taka upp alveg þó nokkra þætti í 1. seríunni, en þá langaði Matt frekar að vera Joey og Matthew var samþykkur því svo að því var breytt. Hins vegar sé ég Joey ekki fyrir mér leikinn af Perry. LeBlank er hinn eini sanni Joey.
En eins og ég sagði væri maður vanur því og það væri ekki skrýtið. En ég er fegin að þessu hafi verið breytt, því að Matt er einfaldlega þessi karakter…

En pæliði líka í því, að Cox og Shwimmer, leika systkini. Og líta örugglega á hvort annað eins og systkini eftir að hafa leikið það í svona mörg ár. En ef að þessu hefði ekki verið breytt, væru þau margoft búin að vera saman og kyssast oft og ættu nú saman barn.
Soldið fyndið að pæla í þessu..