Flott grein og fróðleg. En hvaðan komu zetan og ypsilonið? Nöfnin eru grísk, en a.m.k. það sem við notum fyrir ypsilon (já, eða upsilon) er ekkert líkt þessu gríska. Já, og þú talar um mörg grísk stafróf. Var mikill munur á þeim, eða var þetta frekar kannske eins og munurinn á sænska og norska stafrófinu (einn og einn ólíkur, en meira og minna það sama)? Hvaðan kom gríska stafrófið (svo maður fari nú enn lengra aftur á bak)? Það er varla skylt þessu hebreska?