Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Enn fremur er slúður alltaf um einhverja tiltekna manneskju.

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“ég tel mig alveg hafa rétt á því að lifa lífinu án þess að þurfa að hlusta á viðbjóð í fréttum á hverju kvöldi.” Alveg rétt; þú hefur þann rétt. Enginn er að neyða þig til að horfa á fréttir, heldur geriru það af fúsum og frjálsum vilja. “Ég sá þátt um Monroe og þá kom þetta fram að hún lennti í slatta af kynferðislegri áreitni út af þeirri ímynd sem hún hafði skapað sér.” Og þér þykir það í lagi? Langar þig til að við hverfum aftur til sjötta áratugarins, svo að þú getir þuklað og káfað að...

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Maður skilar því sem maður stal, auðvitað, og borgar síðan viðeigandi skaðabætur. Ef maður getur ekki skilað því sem stolið var, þá greiðir maður andvirði þess sem stolið var. Auðvitað gæti vel verið að til að geta borgað sektina þurfi maður vinnu - ekki gengur að menn brjótist inn á einum stað til að borga sekt fyrir innbrot! - og hugsanlega þyrfti einhvern lokaðan vinnustað til þess (n.k. fangelsi). Ef innbrot var framið til að fjármagna dópneyslu, þá væri líka sjálfsagt að skella mönnum í...

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Og oftast er meira til í stuttum innleggjum heldur en löngum, verður að segjast.

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
GunniS: Já, raunar þykja mér almennt þessar hugmyndir um kynjaímyndir vera ferlega hlægilegar og bjánalegar - hvort sem er karl- eða kvenímyndir. Ekki aðeins kjánalegar og bjánalegar, heldur jafnvel beinlínis hættulegar. Öll mót sem reynt er að steypa fólk í þjóna ekki öðrum tilgangi en þeim, að koma í veg fyrir að fólk geti náð fullum þroska. Sömuleiðis allt tillit til skoðana og álits annarra. “Nei, ég get ekki farið í jóga - það er bara fyrir kellingar!” “Nei, ég get ekki farið að segja...

Re: DÓMARASKANDALL!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Botnleðja? Ertu óður, maður!? Rúnni Júl átti svo skilið að fá að fara til Eistlands og þenja röddina aðeins, enda gulltöffari þar á ferð. Miðað við hann eru Botnleðjustrákarnir ennþá á leikskóla að borða sand.<br><br>“Disobey … it's allowed”

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
GunniS: Enda er þessi “karlmennskuímynd” einn af lélegri bröndurum sem heyrst hafa í háa herrans tíð. Þetta er jafn ógurlega ófyndið og t.d. brandarinn um að “við” höfum náð að komast á ólympíuleikana 2004, eða önnur birtingarform þeirrar áráttu manna að líta á sig sem hluta af þjóð. Ef karlar þykjast svo merkilegir að geta ekki tjáð sig um það að hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka síns, þá er það þeirra vandamál og ekki annarra. Ef þeir eru svo aumir að geta ekki horfst í augu við...

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
LenaPena: Það ríki sem þar sem hvað verst ku vera hvítur karlmaður er víst Rússland. Eitthvað með alkohólismann að gera, víst. Eða svo sagði í Newsweek fyrir tveim-þrem árum. Veit ekki hvort þetta svari spurningunni.

Re: Kínverjar banna

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já, stórsigur segiru. Af u.þ.b. 121 þingsæti fékk Likud-flokkurinn 37. Það eru aðeins meira en 25% - ætli 28-29% sé ekki nærri lagi. Það ætti að vera nokkuð ljóst að Sharon og Likud njóti ekki beint stuðnings meirihluta Ísraela. http://news.bbc.co.uk/2/hi/middle_east/2703 871.stm

Re: barna þrælkun

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já, ég veit að þetta er ekkert frábært, og þetta var sagt í hálfgerðu hugsunarleysi. En af tvennu illu…

Re: barna þrælkun

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það er þó alltént skárra að krakkar vinni og fái 2 kr. á tímann (sem er dáldið meira þar en hér - ef eitthvað fyrirtæki tæki nú upp á því að borga fólki sömu laun í Víetnam og fólk fær t.d. hér, þá yrði afar skrautlegt í Víetnam) heldur en að þau vinni ekki og svelti.

Re: Kínverjar banna

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
"En flestir Ísraelar styðja Sharon [...]" Á, er það svo væni? Hvað fékk flokkurinn hans aftur mörg atkvæði?

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
lhg: Viss um að þetta kerfi á a.m.k. ekki eftir að vera verra en það sem við höfum:).

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
lhg: Hvernig væri það annars; ef einhver nauðgaði, fer inn í endurhæfingu og það allt, fer út og nauðgar aftur - myndi hann fá lengri vist í seinna skiptið (þ.e.a.s. í kerfinu þínu)?

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
GunniS: Hvað með það þótt það yrði hlegið að þér? Ef þetta skiptir þig virkilega miklu máli, þá ætti hlátur smámenna ekki að bíta á þig frekar en mannshráki slekkur þorsta fíls.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Cassia: Hvernig þá? Hvað var það sem ég skildi ekki?

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef þér þykir það vera eitthvað gríðarlegt vandamál að karlar megi ekki kvarta yfir sams konar áreitni og konur, hvers vegna einbeitiru þér ekki að því að vekja athygli á að körlum sé nauðgað, að þeir verði fyrir áreitni og svo framvegis, frekar en að væla og tuða yfir því sem einhverjar kvensur og “fréttamenn” eru að gera?

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“Mættu þeir þá koma til Íslands og bera það fyrir sig þegar þeir væru handteknir. ”Þetta er hluti af menningu minni“!” Hvað er að, skiluru ekki það sem þú hefur sjálf skrifað? “Snúðu dæminu við, ef eitthver kæmi til íslands frá landi sem er hluti menningarinnar að grýta konur til bana og nauðga þeim, mættu þeir þá halda því áfram eftir að þeir kæmu til Íslands.?? Nei, því það stríðir gegn lögum.”

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Æ, reyndu nú að ná þessu rétt. Maður er búinn að vera að reyna að kenna ykkur nýliðunum - hvers vegna getið þið ekki skilið þetta? Það er “Sieg heil”, ekki “Seig heil”. Við erum að tala um brottvikningu með skömm ef þú ferð ekki að ná þessu. Og bróðir Adolf (hvernig dirfistu að kalla hann “Dolla”? Flenging á næsta fundi!) var aðeins að reyna að leysa gyðingavandann, en ekki að vinna bug á gulu hættunni.

Re: Kínverjar banna

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það er einhvern veginn afar lítið vit í þessu hjá þér, Rebekka. Eina ríkið á Vesturlöndum til að taka fólk af lífi er BNA, og þar aðeins í sumum ríkjum. Sala á fíkniefnum á skólalóðum er, eftir því sem ég best veit, ekki umborin - en kannske veist þú um eitthvert ríki þar sem mönnum þykir slíkt ekki sérlega eftirtektarvert. Kynferðisleg misnotkun, hvort sem er frá prestum eða öðrum, er heldur ekki liðin - hins vegar getur verið erfitt að koma upp um slíkt. Vesturlönd hafa síðan ekki sagt...

Re: Staða innflytjendamála í Danmörku í stórum dráttum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“Þarna stendur að ”hópar fólks“ leggi stund á alvarlega glæpi. Það stendur ekki að það séu restin af hópnum, þ.e.a.s þeir sem ekki séu á framfæri hins opinbera.” Það er reyndar satt, ef ég er að skilja þig rétt, að þessar tölur segja í rauninni ekkert nema um hlutfall glæpamanna. Til að þetta yrðu virkilega áhugaverðar tölur þyrfti maður frekar að fá upplýsingar um hve margir af heildarfjöldanum það eru sem fremja glæpi.

Re: Staða innflytjendamála í Danmörku í stórum dráttum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Titta: “”Í Danmörku eru um 70% nauðgana framdar af múslimum og um 70% fangelsaðra eru sömuleiðis múslimar." [ritter] Bull og vitleysa. Það eru engar opinberar tölur í Danmörku yfir fjölda múslima. Það er ólöglegt að kanna það, það eru nefnilega skýrar reglur um persónuvernd í landinu." En það er ekki verið að tala um fjölda múslima í DonnuKaren, heldur aðeins um þá trú sem ákveðinn hluti nauðgara og dæmdra manna aðhyllist (eða a.m.k. er sagður aðhyllast). Annars þykir mér ótrúlegt að það sé...

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það er sennilega nær lagi að segja greindarvísitölu vera helbert kjaftæði. Greind er ekki mælanlegt fyrirbæri, að halda því fram að það sé hægt að mæla slíkt með einhverjum aðferðum er gamall og úreltur hugsanaháttur.

Re: Kínverjar banna

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Æ, þetta eru svo eitursnjöll stjórnvöld. Það er bara ekki hægt annað en að dást að svona pólitíkusarugli. Svona sko … alveg dásamlegt.

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
ENKI: Raunar er racism tvírætt orð (a.m.k.) þar sem það getur bæði þýtt kynþáttahyggja og kynþáttahatur. Þegar það er tekið upp í íslenskuna, þá tók það aðeins síðari merkinguna. Svipað og með orðið fuck. Það þýðir bæði að ríða og “allrahanda blótsyrði”, en aðeins síðari merkingin hefur eitthvað náð inn hér á landi í orðinu fokk/fökk.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok