En sjáðu til; að segja að kynstofn sé latur er róguburður af sama tagi og að segja út um allar trissur að Davíð sé Gilles de Rais okkar tíma, eða að Ingibjörg sé nútíma útgáfa af Elísabetu Bathory. Að þú sért ekki kærð fyrir að segja Íslendinga, eða bara íslenska karlmenn, er hins vegar all-heimskulegt, myndi ég segja, og bendir aðallega til eins konar tvöfeldni í samfélaginu, tvöfalt siðgæði eins og sumir kalla það.