Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Hvort virkar betur?

í Deiglan fyrir 23 árum
Veit nú ekki hvort ég geti fyrirgefið þér að rugla mér saman við boltara. Jæja, kannske ég geri það samt - ég nenni ekki öðru.

Re: Hvort virkar betur?

í Deiglan fyrir 23 árum
Þarna er misskilningurinn: Ég var aldrei (a.m.k. ekki í þessari umræðu) að verja lögleiðingu (öllu heldur lögleyfingu) kannabisefna. Ekki fyrr en í síðasta svari - og ég sé enga ástæðu til að blanda verkjalyfjum í málið, þetta er alfarið á þeim grundvelli að fólk eigi að fá að ráða því sjálft hvað það gerir sér, og þá hvort sem um er að ræða hass, tóbak eða húðflúr. Morfín er býsna gott verkjalyf, skilst mér - ekki er það almennt aðgengilegt. Nú geturu (eða ættir að geta) troðið uppí þá sem...

Re: Hvort virkar betur?

í Deiglan fyrir 23 árum
Hvenær sagði ég eitt aukatekið orð um hlutverk kannabisefna sem verkjalyf eða neitt slíkt? Hvers vegna ertu alltaf að fara svona langt út fyrir efnið frekar en að svara því sem ég segi? Ef eitthvað er útúrsnúningur, þá er þetta svar (og svar þitt á undan því síðasta frá þér) það. Hins vegar er satt að hass (og önnur hampefni) virka betur en verkjalyf, sérstaklega fyrir fólk með krabba eða alnæmi, m.a. vegna tiltölulegra fárra aukaverkanna (og það eykur matarlyst, sem er gott mál þegar...

Re: Ríkistjórnin mun falla núna, eða eftir 4 ár.

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Bullið í þér. Vinstri stefna er ekki bönnuð í Bandaríkjunum. „Bandaríkin: Stór hluti þjóðarinnar kýs ekki vegna þess að vinstistefna er hreinlega bönnuð þar.“ Stór hluti kýs ekki vegna þess að það er of mikið mál að fara og setja sig á kjörskrá. Þar, ólíkt því sem hér tíðkast, þurfa menn að skrá sig til að kjósa, og það eru ekki allir sem nenna því. Vinstristefna er hins vegar ekki bönnuð. Hún var það kannske á McCarthy-tímanum, en ekki lengur. Menn eins og Martin Sheen eru vinstri menn án...

Re: Álit mitt ýmsu fyrir kosningarnar

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Ein pæling varðandi kosningaloforð flokka: Er ekki nær lagi að líta svo á, að þetta er það sem flokkurinn mun stefna að gera, ef hægt er og ef aðrir sem eru með í stjórn samþykkja?

Re: Ísland í 1-3 sæti í Eurovision 2003!

í Deiglan fyrir 23 árum
„ímynd skiptir alls ekki svo miklu í rokktónlist“ Bull og vitleysa. Ímynd skiptir jafn miklu máli þar og annars staðar. Ætli t.d. Ac/DC væru jafn stórir og þeir væru ef þeir væru með fölbleikan varalit, klæddir eins og Duran Duran þegar þeir voru upp á sitt besta? Ég held ekki. Og það sem fylgir á eftir er langt frá því að vera satt. Sjá t.d. hvað kom fyrir Metallica þegar þeir klipptu sig (nema Jason sem var búinn að snoða sig fyrir löngu). Þeir fengu fullt af nýjum aðdáendum - en þeir...

Re: Hvort virkar betur?

í Deiglan fyrir 23 árum
1. Eðlilega, þegar menn hafa verið í mikilli neyslu í langan tíma getur verið erfitt að hætta. Og það má einnig vel vera, að eftir tvö ár þar sem menn hafa verið stónd mest-allan daginn, alla daga þá sé erfitt að hætta. Það gæti t.d. verið að það sé auðveldara að fá alka til að hætta því það verður oft auðveldara að taka eftir vitleysunni sem maður er í þegar maður drekkur. Þegar maður er stónd liggur maður bara í sófa eða eitthvað og er engum til ama … maður er ekki að berja besta vin sinn...

Re: Konungsríkið ísland

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Samfylkingin virðist almennt vera sammála um það að flest af því góða sem gerst hefur í tíð Sjálfstæðisflokksins hafi ekki verið flokknum að þakka, heldur ytri aðstæðum. Hvers vegna ætti þá það slæma að vera þeim að kenna?+ Enn fremur er það rétt sem Apocalisp segir, það er aðallega fólkið sem hefur verið að auka bilið á milli sín. Það gæti vel verið að það sé aðallega þeim ríku að kenna, hins vegar. Það er a.m.k. ekkert sem bannar það að vel ríkur maður leggi ófáar milljónir á bankareikning...

Re: Hvort virkar betur?

í Deiglan fyrir 23 árum
1. Hvernig á þetta að vera svar við mínu svari? Ég var ekki að tala um skaða af einu eða neinu; ég var aðeins að tala um hve erfitt það væri að hætta hassneyslu. 2. Skaði áfengis er varanlegur, því áfengið einfaldlega drepur frumur í heilanum. Hassið sest á þær, en það fer aftur (þótt það taki langan tíma, sérstaklega ef maður hefur verið í sterkri neyslu).

Re: Gallinn við lýðræðið hugleiðingar

í Stjórnmál fyrir 23 árum
„Rétt, en klerkarnir eru einmitt rödd þeirra gilda sem meirihlutinn temur sér.“ Tja, að hluta til er þetta rétt. En miðað við að umbótasinnar hafa meirihluta á þingi, þá virðist það ekki alveg vera raunin. Að minnsta kosti ætlar maður að ef meirihluti á þingi sé ákveðinnar skoðunar, þá séu þeir fulltrúar þeirra gilda sem meirihlutinn temur sér. Þar sem klerkarnir eru ekki kosnir í neins konar almennum kosningum, þá er varla hægt að segja að þeir séu fulltrúar meirihlutans, er það nokkuð?

Re: STÓR SPURNING!!!!!!!!!!!!!!!!

í Heimspeki fyrir 23 árum
Og hvað með það? Guð getur vel verið til þótt Biblían sé uppspuni frá rótum.

All we need is just a little patience.

Re: STÓR SPURNING!!!!!!!!!!!!!!!!

í Heimspeki fyrir 23 árum
Hvers vegna þarf einhver að hafa skapað Guð?

All we need is just a little patience.

Re: STÓR SPURNING!!!!!!!!!!!!!!!!

í Heimspeki fyrir 23 árum
Ég spyr sömu spurningar og TheEagle: Hvað veist þú um það hvort Guð sé til eða ekki? Svar þitt, „hvernig þykist þú geta sannað það?“ er ekkert svar, aðeins tilraun til að komast hjá því að svara. Ég veit ekkert um það hvort Guð sé til eða ekki. Þú þykist hins vegar vita að hann sé ekki til. Hvernig veistu það?

All we need is just a little patience.

Re: Foreldrar hittast... hjálp

í Rómantík fyrir 23 árum
Kannske að bíða aðeins fram yfir kosningar ef t.d. foreldrar þínir eru Samfylkingarfólk af Guðs náð, en foreldrar hennar Sjálfstæðisfólk af lífi og sál? Annars ætti þetta allt saman að ganga vel, yfirleitt eru foreldrar til í annað eins og að vera a.m.k. kurteis við tengdaforeldra barna sinna.

All we need is just a little patience.

Re: Hrifning, losti, væntumþyggja og ást.

í Rómantík fyrir 23 árum
Jú jú, þú sagðir alveg að það væri munur á því að vera ástfanginn annars vegar og að elska hins vegar. Ég er hins vegar að leyfa mér þann munað að vera ósammála „ástfangin/n = sönn ást“ pælingunni hjá þér. Eins og ég sagði, þá er ást til vina ekkert ósannari heldur en ást til kærustu, og það er afar ósanngjarnt gagnvart þeirri ást að segja að aðeins ást til kærustu (ss að vera ástfanginn) geti talist sönn ást.

Re: Konungsríkið ísland

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Hver segir að efsti maður á lista eða þá formaður flokks eigi að vera forsætisráðherraefni flokksins? Eru einhver lög um slíkt?

Re: Konungsríkið ísland

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Munurinn er væntanlega sá, að hann sagði ekki við fólk „Ég mun ekki bjóða mig fram í Alþingiskosningum næsta vor! Ég verð borgarstjóri næstu fjögur ár nema ég hrökkvi upp af!“

Re: "50 million Elvis fans can't be wrong"

í Deiglan fyrir 23 árum
Þetta á kannske frekar heima inni á heimspekiáhugamálinu? En nei, fjöldi stuðningsmanna skoðunar segir ekkert um sannleiksgildi skoðunarinnar. Þótt allir hafi trúað því að jörðin hvorki snerist um sjálfa sig né um sólina, en frekar trúað því að hún væri miðja alheimsins og að allt snerist um hana, þá er það jafn ósatt. Hvort minnihlutahópar hafi oftar rétt fyrir sér veit ég ekkert um.

All we need is just a little patience.

Re: Hvort virkar betur?

í Deiglan fyrir 23 árum
„einnig á að vera nær ómögulegt að hætta að reykja hass.“ He? Bull er þetta. Það getur kannske verið erfitt að venja sig af reykingum ef maður hefur vanið sig á ansi mikla og stöðuga neyslu - 1-2 grömm á dag í nokkra mánuði eða ár - en nákvæmlega það sama gildir um áfengið. Ef menn venja sig á að drekka kippu af bjór á dag í nokkra mánuði eða ár, þá verður erfitt að hætta því. Þeir sem fá sér hass öðru hvoru eiga ekkert erfiðara með að hætta að reykja heldur en einhver sem fær sér neðan í...

Re: Gallinn við lýðræðið hugleiðingar

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Langar að kommenta aðeins á Írans-hlutann. Þeir sem eru kosnir af þjóðinni eru flestir umbótasinnaðir og jafnvel frjálslyndir. Síðan eru klerkarnir sem hafa of mikil völd, sem eru ekki kjörnir af neinum sem eru í því að hindra framfarir og þessháttar. Þannig að EF meirihlutinn réði nú í Íran, þá er ekkert ólíklegt að einstaklingsfrelsið þar væri meira.

Re: Konungsríkið ísland

í Stjórnmál fyrir 23 árum
„Miðað við þessa 16 ára reglu þína ætti þá ekki R-listinn að fara fram á að fólk sé ekkert að kjósa hann í næstu borgarstjórnarkosningum þá verður hann búinn að sitja í 12 ár og væri þá að fara að stefna að 16 árum.“ Ekki endilega. Eina reglan myndi vera sú að enginn sem hefur setið lengri en í þessi átta ár (eða eitthvað) megi bjóða sig fram. Það er ekki verið að tala um lista eða flokka, heldur um einstaklinga sem mynda listana. Svo er væntanlega hluti af þessari hugmynd að það sé allt í...

Re: Hrifning, losti, væntumþyggja og ást.

í Rómantík fyrir 23 árum
Eftir því sem ég kemst næst, þá er hann að tala um ást, og það sanna ást. Er það einhver útúrsnúningur að benda á að ást til vina og ættingja er jafn sönn og ást til makans? Eða felst útúrsnúningurinn kannske í því að benda á að losti er hvorki sjúklegur né neins konar þráhyggja?

Re: Hrifning, losti, væntumþyggja og ást.

í Rómantík fyrir 23 árum
Losti er heldur ekki þráhyggja. Lostin er aðeins það að vilja stunda kynlíf með einhverjum, að eðla sig. „Ég trúi ekki að þessi sanna ást sé hægt að hafa nema til einnar manneskju í einu“ Hmm. Ást mín til vina og fjölskyldu er þá ekki sönn? Er það bara platást?

Re: Gallinn við lýðræðið hugleiðingar

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Jæja þá. Frjálshyggjumenn hafa reyndar sumir hafnað honum einmitt fyrir að vera of sósíalískur, það er satt, ég var búinn að gleyma því. Hvað um það, það er vel hægt að taka upp frjálshyggjuna án þess að taka sósíalismann. Heimspekingar eru ekki bara einhver pakki sem verður að taka í heilu lagi. Að hann hafi verið sósi ætti því ekki að skipta frallana neinu máli.

Re: Gallinn við lýðræðið hugleiðingar

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Það voru sósíalískir þræðir í hugsun hans, en hann var ekki sósíalisti. Hann var frjálshyggjumaður í húð og hár, jafnframt því að vera nytjastefnumaður.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok