Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Einmitt. Stolt yfir því að vera hvítur/svartur/kona/Íslendingur er svona eins og að vera stoltur af því að hafa ljóst hár (eða hver svo sem eðlilegur háralitur manns er). Stolt yfir því sem maður hefur ekki gert, hefur ekki átt neinn þátt í (foreldrar sem hafa alið börnin sín upp eiga í vissum skilning þátt í afrekum barnanna - þeir sem tóku engan þátt í uppeldinu hafa ekkert tilkall) er frekar lélegt stolt. Raunar vil ég taka svo djúpt í árinni að segja að það sé óréttlátt eða óverðskuldað...

Re: Ísland í 1-3 sæti í Eurovision 2003!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, en Kristína og Britney hafa efni á því að vera með dökkt hár; þær eru þegar orðnar svo stórar. Tökum aðra tónlistarkonu, Nelly Furtado. Hún hefur, eftir því sem ég hef best séð, alltaf verið dökkhærð. Hún kemst ekki með tærnar þar sem hinar tvær hafa hælana í frægðarmálum. Sömuleiðis Natalia Imbruglia. Jú jú, þetta eru nöfn sem maður þekkir, en þær eru engar stjörnur eins og B&C. Hins vegar er ég sannfærður um að ef Nelly myndi lita hárið á sér ljóst, þá strax myndi hún stækka. Og þar...

Re: Ísland í 1-3 sæti í Eurovision 2003!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er bara staðreynd að popparar, sérstaklega kvenkyns, eiga auðveldara með að meika það ef hárið er ljóst. Shakira er t.d. dæmi um þetta: Hún varð ekki „big time“ fyrr en hún litaði hárið ljóst. Ef þær lita ekki, eða eru ekki ljóshærðar fyrir, þá er sénsinn þeirra mun minni.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Nei, en af hverju tharftu ad vera stoltur yfir tví ad vera hvítur“ Góður punktur. Það mætti jafnvel ganga enn lengra og spyrja hvað þurfi að vera að til að maður finni hjá sér þörf (kannske meðvitaða, kannske ómeðvitaða) til að finna til stolts yfir afrekum annarra. Hefur fólk ekki afrekað neitt sjálft sem það getur hreykt sér af?

Re: bara vinátta

í Rómantík fyrir 23 árum, 1 mánuði
„veit ekki hvort ég geti verið henni bara vinur :/“ Ef þú getur ekki verið „bara“ vinur, hvað fær þig til að halda að þú getir verið kærasti? Ef þetta er svona æðisleg stelpa eins og þú virðist halda, þá er heldur ekki til neitt sem heitir „bara“ vinur.

Re: Rend mig i Traditionerne

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvers vegna lestu ekki bara bókina? Alveg prýðisgóð bók.<br><br>All we need is just a little patience.

Re: Ísland í 1-3 sæti í Eurovision 2003!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Á meðan að Birgitta gerist ekki sell-out og litar hárið ljóst, þá er mér alveg sama hvað hún gerir.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Ég held að frá þróunarlegu sjónarmiði hafi lífið í Afríku verið það þægilegt að íbúarnir hafi ekki haft sömu þörf til að leysa “survival” vandamál eins og á norðlægari slóðum.“ Og á hverju byggiru þetta? Já já, þeir hafa kannske ekki haft sömu vandamál að glíma við og Grænlendingar eða Samar, en ég afar bágt með að trúa að lífið hafi nokkurs staðar verið auðvelt, heldur frekar að fólk hafi staðið í sama strögglinu, hvort sem er í Ástralíu, Grænlandi eða þar sem nú er er Ohio. Í Afríku...

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég held nú að venjulegir múslimar hafi horn í síðu Nation of Islam vegna rasískra kenninga NoI (eins og að svarti maðurinn sé guð, eða a.m.k. engill, á meðan að sá hvíti er djöfull) en ekki einhvers „afrósentrisma“.

Re: Kjósum konu sem Forsætisráðherra!!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Af hverju svaraðiru ekki bara greininni minni?“ Mun áhugaverðari spurning er: Hvers vegna svarar þú ekki þeim svörum og spurningum sem hafa vaknað út frá greininni þinni? Það gæti síðan vel verið að zillus vilji koma sínum boðskap fram, og þá er vænlegra að skrifa heila grein heldur en að svara grein annars.

Re: Hræðsuáróður Sjálfstæðisflokksins og ESB

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þau geta gert það ef maður kærir sig um. Rétt eins og s og z hljóma öðruvísi ef maður nennir að leggja örlítið á sig.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég myndi kalla skattheimtu af þessu tagi (sem mig minnir að hafi m.a. verið lögð á til að fjármagna eitthvað stríð í Evrópu) eins konar kúgun. En já; það er afar áhugavert að Kanadmenn voru ekkert í uppreisnarpælingum, a.m.k. ekki af sama krafti og Bandaríkjamenn. En ég þakka leiðréttingar.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Eini munurin á þessum tveimur brjálæðingum, er að Hitler náði að framkvæma sinn “draum”. Malcolm X var drepin áður hann náði að framkvæma sinn. Annars deildu þeir sama draum, sem var kynþátta-stríð.“ Jú, eftir á að hyggja, alveg kolrangt. Hvorugan þeirra dreymdi nokkru sinni um neitt stríð milli kynþátta (hér erum við augljóslega að tala um „draum“ í óeiginlegri merkingu, því fáir geta beinlínis séð það sem menn dreymir þegar þeir sofa). Þeir litu svo á að stríðið væri á fullu og hefði...

Re: spegill , spegill hermd þú mér

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Speglar eru til margra hluta nytsamlegir. Ég get t.d. ekki rakað mig án þess að hafa spegil. Stundum þarf maður að vera vel klæddur, snyrtilegur og svo framvegis - t.d. þegar maður er að fara í jarðarför. Þá er nú gott að hafa spegil innan seilingar.<br><br>All we need is just a little patience.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Fyrst þú „spurð“: „Flestir sem að vita eithvað um Malcolm X vita að hann var ekki annað en morðóður rasisti.“ „Eini munurin á þessum tveimur brjálæðingum, er að Hitler náði að framkvæma sinn “draum”. Malcolm X var drepin áður hann náði að framkvæma sinn. Annars deildu þeir sama draum, sem var kynþátta-stríð.“ Ekki beint rangt, þar sem að hann aðhylltist þetta um tíma. En misvísandi, hann var búinn að hafna Nation of Islam og kenningum þeirra þegar hann var skotinn, hafði snúið við blaðinu....

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Og hvað er greinin um? Að allir hafi verið kúgaðir af einhverjum? Að svartir Bandaríkjamenn eigi til að væla aðeins of mikið? Ekkert athugavert við neitt af þessu. Hins vegar geriru aðeins of margar staðreyndavillur til að ég geti kyngt þessu. Maður hefði haldið að sæmilega skynsamt fólk myndi taka leiðréttingum fagnandi, en ekki pakka í vörn um leið.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Og enn eitt: „Það sem mér finnst svo skringilegt, er að ég þarf að skrifa hálfa ritgerð [...]“ Hálfa ritgerð? Hvaða ræfilsritgerð er 674 orð? Þegar þú kemur að þessum tilvitnuðu orðum hefuru ekki skrifað nema 337 orð. Það er varla inngangur að ritgerð, og kemur ekki til greina að það teljist hálf ritgerð.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er ekkert að efast um kúgun á breskum nýlendum; læs maður ætti að geta séð það. En einhver kúgun Breta á BNA; út í hött. Það hefur krafist mikillar einbeitni að hlusta ekki á neitt í sögutímum í grunnskóla til að halda því fram að Bretar hafi kúgað Bandaríkin.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég held að upphaflega svarið ætti að vera alveg nóg, en mig munar ekkert um að endurtaka mig: Söguleg vanþekking í hámarki.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Til að byrja með, vill ég spurja, afhverju ertu að verja þennan mann?“ Því þú gerir ekkert annað en að bulla. Hve mikil skíthæll sem Malcom kann að hafa verið, þá á hann samt að njóta sannmælis eins og allir aðrir. „Svo get ég heldur aldrei viðurkennt trú þar sem stendur í þeirra heilögstu skriftum (kóraninum) “Í gegnum blóð blóð heiðingja er styrsta leiðin til hins eilýfa lífs”“ Hvar í Kóraninum? Ég leitaði að orðinu „blood“, „infidel“, „heathen“, „idolater“, „eternal life“ og „eternal“,...

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Jú, mikið rétt - 4. júli er dagurinn sem BNA fagna sjálfstæði sínu. Að kalla það smámunasemi að benda á að „Frelsisstríðið“ og „Borgarastríðið“ eigi við sitthvort stríðið er furðulegt, hins vegar. Að tengja borgarastríðið við Breta er, eins og áður sagði, sambærilegt við að tengja Sturlungaöld við Dani og 17. júní. Það er heldur engin smámunasemi að benda á, að BNA urðu ekki BNA fyrr en eftir stríðið, og að BNA voru aldrei (eftir því sem ég best veit, kannske einhver geti bent á annað) kúguð...

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ekkert af því sem þú segir breytir neinu um það, að hann var orðinn sannfærðari um það að ólíkir kynþættir gætu lifað saman í sátt og samlyndi, eftir að hann fór til Mekka og sá þar fólk af öllum kynþáttum í mesta bróðerni.

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Egyptar voru víst háþróað stórveldi á sínum tíma. Ekki voru pýramídarnir og öl egypsk fornmenning bygð af mannætum og barbörum!!!“ Blómaskeið Egypta var bara löngu fyrir 0. Pýramíðarnir voru byggðir a.m.k. þúsund árum fyrir 0. Árið 0 voru Egyptar hins vegar ekkert veldi - álíka mikið veldi og Ísland var þegar það var hluti af ríki Danakonungs. „Þú hefur kannski heyrt af lítillri borgarastyrjöld sem átti sér stað í BNA fyrir nokkrum árum. Independence day? 4 júlí? hringir einhverri bjöllu?“...

Re: Rasismi? (uppfært version)

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú meinar ss „Afríkubúar“? Það er ekki til nein afrísk þjóð. Að tala um afríska þjóð er alger della.

Re: Áhugaverðar staðreyndir um fátækt á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Tek undir með hho - eina skiptið sem ég hef tekið eftir því að minnst hafi verið á aumingja var í svari Armonar. Fæstir aðrir líta á atvinnulausa sem aumingja.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok