Ég fékk lítinn auglýsingamiða í pósti frá Vinstri-Grænum og þar stóð:

“Krakkar! Getiði hjálpað orrustuflumanninum að sprengja íraska radarstöð?”

Fyrir neðan var síðan völundarhús, eins og þekkist úr blöðum eins og barna DV. Á fjórum stöðum kemst þú útúr völundarhúsinu og á hverjum stað stendur hvað þú hefur gert og sýnd er mynd.

Þetta stendur orðrétt við hvern stað:

1. “Æ-Æ! Þú sprengdir sjúkrahús”

2. “Þú hittir íbúðarhús og drapst konu og sex ára gömlu stelpuna hennar”

3. “Nei-nei! Ekki moskuna”

4. “KABOOM - Til hamingju! Þér tókst að bjarga hinum frjálsa heimi og lýðræðinu! Vei!”

Þetta er tekið beint af miðanum.

Oj bara! Þetta finnst mér virkilega viðbjóðslegt og ósiðferðislegt.

Ekki miklar líkur á að þeir vinni atkvæði á þessu. PÚ á VG……!!!!!!!!!!