Gaman að sjá að “ljóð vikunnar” hefur vaknað til lífsins! Og það með ekki ómerkara ljóði en Austurstræti ;) klárlega eitt af betri ljóðum Tómasar og þar með vorrar þjóðar. Kannski rétt að taka fram að annar kafli ljóðsins inniheldur tvö erindi auk þeirra sem hér eru birt, en ljóðið í heild er 5 kaflar, allir ortir undir mismunandi bragarháttum. Merkilegt nokk :P