KR 3:1 ÍA KR vann í kvöld öruggan 3:1 sigur á Skagamönnum í upphafsleik annarrar umferðar Símadeildarinnar. Enn og aftur var Sigurvin Ólafsson á skotskónum en hann gerði tvö marka KR. Hið þriðja var sjálfsmark Reynis Leóssonar. Ellert Jón Björnsson skoraði mark Skagamanna í stöðunni 2:0 en þá hafði Hjálmi Hjálmssyni verið vikið af velli eftir að hafa farið með skósólann harkalega aftan í Einsa Dan.
KR komst með sigrinum á topp deildarinnar með eins stigs forystu á Fylki og Þór Akureyri, sem eiga leik til góða á morgun.