Hm.. arnihr.. ég held það segi sig nokkuð sjálft að þetta eru allt mínar skoðanir. Flest sem fólk lætur út úr sér eru skoðanir, sannfæringar, sem það getur ekki _sannað_ frekar en næsti maður. Það er satt, ég get ekki slegið því föstu að Denzel Washington hafi verið betri/verri en hver annar af þeim sem voru tilnefndir, það er allt saman smekksatriði. Ég hélt að svoleiðis formáli væri óþarfur, flestir skilja það án þess að það sé tekið fram að þegar rætt er um listir er allt afstætt. Ojæja....