Það eru tvær (eða fleiri) hliðar á öllum málum. Sú hlið sem við sjáum daglega, í Morgunblaðinu, í Ríkissjónvarpinu, á CNN og víðar, er sú Vestræna. Í fréttum frá Ísrael og Palestínu er jafnan sagt frá því þegar Ísraelskur hermaður særist í fólskulegri árás Palestínskra hryðjuverkamanna, en lítill gaumur gefinn að framferði Ísraelshers í Palestínskum þorpum og bæjum. Þegar NATO gerir árásir á Júgoslavíu eru það “návkæmnissprengjuárásir” sem eyðileggja aðeins “hernaðarskotmörk” og drepa aðeins...