Hæ, góð vika liðin síðan ég skrifaði greinina umdeildu. Þykir okkur gott að sjá að eldmóðurinn er til staðar en hefur “því miður” legið í dvala í allnokkurn tíma.
Muna margir eftir gamla MurK korkinu þar sem óhætt er að segja að stemningin gat orðið gríðarleg og alloft var athugað oft á dag eftir nýju greinarsvari eða nýju umræðuefni. Ljóst er fyrir mörgum að þessi stemning fór forgörðum þegar þessi ágæta heimasíða quake samfélagsins var sett upp og er það tilgangur þessarar greinar sem ég skrifaði ekki einn.

// Samsæriskenningin

Byrjum á því að ég er f(blaze) fyrir þá sem ekki vita.
Sátum við félagarnir MurK'ynGz í Íslensku 503 og lét ynGz fallen hafnarfjarðarbröndurum rigna yfir mig til að stytta mér stundir, mjög gaman , fengum við síðan þá hugmynd heima hjá mér strax eftir tímann, þá orðnir 3 með f(Maxium) , að búa til eitthvað eldfimt sem gæti skapað næstum því gleymda stemningu.
Talaði ég (Reaper-blaze) við KotZen á irc og var hann samþykkur því að ég myndi skjóta aðallega á hann en bað mig þó um að hafa það góð skot svo hann myndi nenna að ansa.

//Grein samin af = blaze, Maxium , ynGz, með samþykki KotZen.

Innihald greinar speglar engann veginn persónuleg álit þeirra manna sem koma að greininni né heldur þau greinarsvör meðlima MurK og fallen sem voru helst til of persónuleg og vond.
Ég skrifaði eitt reply við öllu þessu , Maxium sá um að svara öllu hinu með gríðar beinskeyttum tilsvörum, ynGz & KotZen áttu einnig sinn þátt í að virðast vel móðgaðir og kynduðu undir alvarleika bréfsins(sem í raun var enginn).
Tek ég fram að allir meðlimir fallen vissu af þessu gríni sem og vel flestir MurKarar.


Þökkum góða þáttöku & vonumst eftir hressum greinum hér á huga hér eftir.

ps. fann einhver fyrir smá nostalgíu fílíng ? :)