Klikkað session, sem fer fram með hraða.
rímnaflóð, sem lætur ykkur kafa
hittið Steinbít, að troða marvaða,
með flugnaspaða myndi aldrei ná hans hraða (tvöfalur hraði)
hvaða hvaða, það gerir mig bara svo graðann
þegar stúlkur koma til mín og vilja með munnvatninu bað'ann.
Hvaðan koma hljómsveitir? þær koma héðan og þaðan

Klikkað session, sem fer fram með hraða
rímnaflóð, sem lætur ykkur kafa
hittið Mezzias og látið tunguna lafa
breytir vatni vín og breytir brauði í fisk
gerir mikið grín og gefur út á disk
hring í kring um jörðina með rappi spilar risk
frelsarinn,flæðarinn, býður alltaf aðra kynn
sláð'nn fjórum sinnum þá færðu að komast inn.

Klikkað session, sem fer fram með hraða
rímnaflóð, sem lætur ykkur kafa
hér er Sesar A, ég vil ekkert með hann hafa
en ég býst nú við því að hann hafi eitthvað fram að skafa
eins og til dæmis lag um hvernig nafnið á að stafa.
Sesar A, bla bla bla bla bla, það eina sem hann kann
er að búa til takta

Klikkað session, sem fer fram með hraða
rímnaflóð, sem lætur ykkur kafa
Bent og Sjöberg vilja bjórinn með sér hafa,
en vímulausir verða þeir en hafa með sér safa
því einkunnarorð tónleikana eru drykkju til trafala.
Bannað er að kíla í bökku eða kíla í bala
það tekur af þér lífið og þér tekst ekki að tala.
minningar annarra tíma fer yfir að snjóa
ekki prófa, þú þarft að hafa hugsunina frjóa.

mcSB



Tónleikar þann 17. júni nk. kl. 16:00 til 17:30 á Austurvelli fyrir framan Alþingishúsið.Þeir sem komu ekki fram í textanum hér á undan en spila á tónleikunum eru:

Bæjarins Beztu

P.O.P.F.O.R.Z.

O.N.E