Hvað er þurs?
ég velti þessu fyrir mér í morgun þegar ég fékk mér cocopuffs skammtinn minn(sykur fyrir allann daginn)
Ég meina.. hvaðan kom orðið þurs
Ég náði í orðabók.

<b>Þar stóð í grunnatriðum</b>
Þurs -, -ar K 1. Jötunn, risi, tröllkarl, þursi
2. Einfaldur auðtrúa maður: Ginna e-n eins og þurs
3. Óheflaður, rustafenginn og þrjóskur maður
4. Heiti rúnar sem táknaði þ-hljóð
5. Skýflóki

Hvað með þetta?
nú fór ég að spá í öðru…. af hverju er ég þá þurs?
1. jötunn, risi, tröllkarl, þursi: ég er ekkert alltof stór drengur…. reyndar bara frekar lítill…. hlýtur að tengjast því að ég át ekki hamborgara fyrr en árið 2000…. einfaldlega fattaði það ekki fyrr…. þannig að ég er ekki skýring nr.1
2. Einfaldur auðtrúa maður… tjaaaaa ég veit ekki með þetta…. ég er nú ekki auðtrúa…. til að vera nákvæmur trúi ég gersamlega engu….. nema á dreka…. drekar eru cool…. mig langar í þannig. Ég trúði á guð… en svo hitti ég GimP…. hann sannaði að ef guð er til þá vill maður ekki þekkja hann. þannig að skýring nr2 gegnur ekki upp heldur :/
3. Óheflaður, rustafenginn og þrjóskur maður. Jújú ég er þrjóskur…. ef þrjóska er það að neita að fara á fætur fyrr en maður er einn og allir vita að maður ákvað það sjálfur,,,, eða ef þrjóska er að slökkva ekki á vekjaranum bara til þess að hann vinni mann ekki. En ég er hvorki óheflaður né rustafenginn,… að ráði…. þannig að skýring nr 3 virkar heldur ekki….
piff
2 eftir
flókið mál
4. heiti rúnar…. tja ég er ekkert alltof hrifin af því að vera bók… hvað þá að vera bók sem var gerð á víkingatímanum…. hefur aldrey liðið vel inní glerbúri…. þessvegna var ég rekinn af vegas…..sem var samt fín vinna.
5. skýflóki…. ÞARNA KOM ÞAÐ…. auðvitað er ég skýflókieina lausnin sem er eftir….. held ég….

Eftir að hafa flett þessu upp fór ég aftur að spá…… og svo lenti ég í rökræðum við Dogma….. meina hvað heldur hann að hann sé
ég er miklu meiri þurs en hann….. En þá skellti hann einu á mig… hann á haterás á ircinu…. nú er ég ekki sáttur… ég ryðst uppí herbergið mitt og quakei á tölvunni minni. núna skal duga eða drepast. Ég fer á google.com og leita að orðinu TarAniS…. ekkert nema eitthvað kjaftæði um celtnenskann þrumuguð…. ekkert merkilegt þar. Á þessum tímapunkti er ég kominn á bömmer….. meina hvers vegna má dogma hafa rás en ég sem allir hata er ekki með neitt…. eru mínir óvinir svona innactive… ég sest niður og græt…. þetta er einfaldlega of mikið fyrir mig…… mig langar í svona hate klúbb…. en ekkert gerist í þessum heimi nema mar geri það sjálfur…. þannig að ég sest niður og stofna minn eigin hate klúbb…. fyrsta sem ég geri er að stofna ircrás #ég_hata_taranis …. megarás núna er ég búinn að ná dogma…. nema það er fólk á hans rás…
er það sanngjarnt?
ég held ekki
þannig að ég ákveð að fara lengra og geri heimasíðu
Http://www.simnet.is/taranis/hate
þarna er það komið
tók mig næstum 30 mínútur en núna er ég án efa mesti þursinn í quake samfélaginu…….. hvað á að gera næst?
hummmmm
klára tarpack
ég geri það
http://www.simnet.is/taranis/files/pak1.pak
úje
ég fæ mér meira cocopuffs