Jenson Button kom verulega á óvart á síðasta tímabili og fór fram úr björtustu vonum þeirra sem studdu hann. Hann hefur verið mikið lofaður og nú síðast var það Niki Lauda, þrefaldur heimsmeistari, sem lét hafa eftir sér að Button hefði verið áhugaverðasti ökumaðurinn í ár. “Button náði athygli minni þegar hann átti besta tímann á Nurburgring brautinni á æfingu”. Lauda er þá kominn í hóp merkilegra manna sem hafa verið að hæla Button, má þar nefna menn eins og Damon Hill, Ross Brawn, Gerhard...