Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Nafngiftir barna

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Alís = Alice? :) Elís er hins vegar strákanafn. Snót þýðir stúlka og ég hef aldrei vitað um tík sem hefur heitið Snót en ég hef vitað um bæði tík og meri sem hétu Tara þannig að mér finnst það vera dýranafn. Ég var að kíkja á listann yfir hafnað og fann að fólk hefur sótt um að skíra dætur sínar strákanöfnum eins og Axel og Örn. Einhver hefur líka reynt að skíra son sinn nafninu Gígja sem er stelpunafn. Annars er það algengt í N-Ameríku að fólk skíri sérstaklega dætur sínar strákanöfnum...

Re: Air Canada

í Ferðalög fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þú getur leitað á expedia.ca að einhverju frá Kanada til London. Fer líka eftir því hvaða borg þú ert að tala um. Ég er að sjá fargjöld frá Toronto til London frá $700 fram og tilbaka með United. Það er betra að fara til London eða Köben vegna þess ef maður flýgur til Bandaríkjanna og þaðan til Íslands er maður fastur í Flugleiðaverðinu sem er nú yfirleitt ekkert lágt en ef maður kemst til London getur maður fengið samkeppnisverð til Íslands.

Re: Kárahnjúkar/Laun/Aðstaða

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er annar punktur í þessu sem er stórfyrirtækin sem flytja sig milli landa þvers og kruss eftir því hvar er best boðið. Koma sér hjá að greiða skatta og ef verkafólkið fer að verða frekt þá fer verksmiðjan eitthvað annað. Nike selur þér ekki flíkurnar neitt ódýrara þó þær séu saumaðar af fólki sem þénar það á dag sem við fáum á tímann.

Re: ótrúlegt hvað hægt er að gera..

í Heimilið fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er ótrúlegt hvað er hægt að koma miklu fyrir í lítilli íbúð ef það er vel skipulagt. Annars nenni ég aldrei að gera neitt heima hjá mér. Ég bjó t.d. í lítilli dökkmálaðri íbúð í 5 ár og nennti aldrei að mála :)

Re: Starfsmenn Impregilo leggja hendur á Íslendinga...

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“Margt sem að getur réttlætt það, svo sem vítavert kæruleysi sem að hefði getað kostað mannslíf.” Ég er ósammála. Ef starfsmaðurinn er að gera eitthvað hættulegt sjálfum sér eða öðrum þá labbarðu ekki að honum og lemur hann sem verður þess valdandi að hann missir stjórn á því sem hann er að gera og drepur einhvern. Jafnvel getur verið hættulegt að öskra á hann við slíkar aðstæður. Frekar ætti að fara rólega að honum og aðstoða hann þar til hættan er yfirstaðin. Eftir atvikið þjónar engum...

Re: hjálp ´hjálp

í Heilsa fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Prófaðu að þegar þig langar í kók og nammi að hætta við það og ákveða að fá þér eftir klukkutíma, eftir hádegi eða eitthvað. Svo þegar sá tími kemur, frestaðu því þá lengur. Ef þú getur hætt svona í nokkra daga, þá hættir þig að langa í það en þá máttu heldur alls ekki byrja aftur því þú verður enga stund að fara í sama farið.

Re: Starfsmenn Impregilo leggja hendur á Íslendinga...

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sama hvað náunginn hefur gert, þá er ekkert sem réttlætir það að yfirmaðurinn berji hann. Ef hann er alveg ömurlegur starfsmaður má bara reka hann og senda heim með næstu ferð. Búið mál. Menn sem missa stjórn á skapi sínu þannig að þeir berja starfsfólkið hafa ekkert að gera með að vera yfirmenn. Svo skil ég ekki í öðru en að það séu einhver lög um aðbúnað verkamanna og þá aðstöðu sem á að vera fyrir hendi og það hlýtur þetta fyrirtæki að hafa kynnt sér áður en þeir buðu í verkið. Munar smá...

Re: Veit einhver

í Hugi fyrir 22 árum, 9 mánuðum
1' = 30,48 cm 1“ = 2,54 cm 5'5” = 165,1 cm

Re: Þoli ekki

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég hélt það væri Villi, um Villa, frá Villa, til Villa ;)

Re: Hvalveiðar

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mér finnst reyndar að við eigum að taka mið af alþjóðasamfélaginu ef það væri eitthvað mjög slæmt. Hins vegar segja norðmenn að þetta hafi ekki haft nein áhrif á þeirra útflutning eða ferðaþjónustu þannig að það er engin ástæða til að hafa áhyggjur.

Re: Iðnaðarmenn

í Heimilið fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“hérna á Akureyri heyrir aldrei svona sögur um slóðahátt eða fúsk” Væntanlega vegna þess að það er svo lítið bæjarfélag (með fullri virðingu fyrir höfuðstað Norðurlands) að menn myndu aldrei komast upp með það. Það myndi strax fréttast og þeir fengju ekkert að gera.

Re: innhverf íhugun

í Heilsa fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er greinilega til íhugunarfélag á <a href="http://www.yoga.is/">http://www.yoga.is/</a>. Bara spyrja þá.

Re: Gifting!

í The Sims fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Láttu kallinn elda áður en hann býður henni í heimsókn, svo borða þau strax og svo skaltu láta þau í heita pottinn og þar fá þau bæði að sitja, tala saman og fun. Þá getur hún ekki neitað :)

Re: Hörmung!

í The Sims fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ef þú vilt að fólk eldi án þess að kveikja í þarf það að hafa 2 cooking punkta. Ef þér leiðist grenjandi fólk geturðu tekið legsteininn eða öskukrukkuna og selt :)

Re: Hvalveiðar

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að við eigum ekki að láta aðra segja okkur hvernig við megum nýta okkar náttúruauðlindir. Samt finnst mér aumingjaskapur að kalla þetta vísindaveiðar því þetta hefur ekki rassgat að gera með vísindi. Þeir hefðu frekar bara átt að kalla þetta takmarkaðar veiðar. Vissulega verður eitthvað af fólki sem hættir við að ferðast til Íslands vegna þessa eða hættir að kaupa íslenskar vörur en þorri manna erlendis mun ekki koma til með að hafa hugmynd um þetta.

Re: Bönnum kirkjuklukkur

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég er með lausn á þessu. Í stað þess að hafa kirkjuklukkur getur fólk gerst áskrifendur að SMS þjónustu safnaðarins og fengið skilaboð send á þessum tímum til að minna það á að mæta í kirkju. Ef vill má búa til hringingu sem minnir á klukknahljóm og það getur notað hana fyrir SMS-in sín :)

Re: Herbergi !

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
1. Talaðu við húsnæðismiðlun stúdenta uppí háskóla. Margir halda að hún sé bara fyrir háskólanema en svo er ekki og fullt af fólki auglýsir bara á þessari miðlun því það vill bara leigja til námsmanna. 2. Auglýstu líka í smáauglýsingum Fréttablaðsins. Það margborgar sig því ef það er eitthvað að hafa, þá hringir fólk í þig og þú getur valið en ef þú ert að svara fólki sem auglýsir hafa þau alltaf úr mörgu að velja. 3. Settu miða uppá töflur í öllum skólum sem þú nennir að fara í, líka í HÍ...

Re: Skrítið email ...

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ef ég man rétt þá virkar BBcode bara á korkum og í greinum ef þú skrifar upphaflegu greinina virkar yfirleitt html url en í greinasvörum virkar bara ekki neitt :(

Re: Þjóðkirkjan og hjónabönd samkynhneigðra.

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þjóðkirkjan samanstendur ekki af þjóðinni heldur um 87% þjóðarinnar og þar af eru margir sem fara aldrei í kirkju og eru ekki trúaðir en hafa bara ekki nennt að segja sig úr henni. Stjórn hvers trúfélags verður að ákveða það í samráði við (virka) meðlimi hvort þeir vilja leyfa þetta eða ekki. Ef stjórnin neitar og meðlimirnir eru óánægðir þá geta þeir mótmælt eða farið annað.

Re: Tryggingafélögin, Sigurður Helgason & Umferðarráð

í Bílar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“Hvað hefur maður að gera við 440hö V8 bíl eða turbocharged japana þegar maður má ekki nota tækin?” Já, ég skil ekki í þeim að leyfa slík tæki fyrst það má hvergi nota þau. Ætli það sé ekki stefnan að banna þetta næst. Láta bara alla á bíla sem komast ekki hraðar en 100 :-/

Re: Hver ræður, ég eða hundurinn ?

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég hef bara heyrt að maður eigi ekki að segja neitt þegar maður fer, bara labba út. Annars er maður að biðja hann um leyfi. Líka þegar maður kemur heim, bara láta sem maður sjái hann ekki þar til manni þóknast :)

Re: Skrítið email ...

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Yfirleitt er þetta bara svindl til að hafa af fólki peninga. Maður sem pabbi var að vinna fyrir svaraði svona bréfi og fyrst vildu þeir koma til Íslands að hitta hann en hættu við á síðustu stundu og vildu að hann kæmi til Nígeríu sem honum leist nú ekki alveg á. Þá vildu þeir að hann borgaði einhverja upphæð til að hægt væri að leysa út þessar milljónir sem þeir ætluðu að láta inn á reikninginn hans og þá hætti hann við. Kannski í lagi að athuga svona en aldrei láta þá hafa númer á...

Re: Hver ræður, ég eða hundurinn ?

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Varðandi nr. 17, þá hélt ég að það væri ekki ráðlagt að gefa hundum kjúklingabein eða jafnvel ekki bein yfirleitt þar sem þau geta brotnað illa og stungist í góminn eða gegnum innyfli. Ég hef líka heyrt að maður eigi að fara út úr húsinu á undan hundinum og líka inn vegna þess að leiðtoginn fer alltaf fyrstur og verndar hina. Einnig að þegar maður hittir fólk eða aðra hunda á maður að láta hundinn sinn fyrir aftan sig þar sem leiðtoginn passar uppá að þeir séu vinveittir. Líka að maður á...

Re: Þarf að fara :(

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Geturðu ekki þjálfað hann þannig að hann hætti að toga?

Re: Vegaxlir böl eða nauðsin

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mér finnst alla vega mjög þægilegt þegar 18 hjóla trukkarnir færa sig aðeins út á vegöxlina til að gera manni auðveldara fyrir að komast frammúr þeim.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok